Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Allt utan efnis
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af lukkuláki »

verba skrifaði:Síminn með yfirlýsingu um innlent youtube
http://www.siminn.is/siminn/i-fjolmidlu ... 1/item2517" onclick="window.open(this.href);return false;
Gott múv hjá símanum vonandi er þetta komið til að vera en það kæmi mér ekkert á óvart þó síminn skipti um skoðun einn daginn og færi sömu leið og vodafone bara fyrir CA$H.
Hef slæma fyrri reynslu af símanum sem olli því að ég er búinn að vera núna hjá vodafone í 9 ár.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af GuðjónR »

Auglýsing Símans skrifaði:Mikilvægast fyrir viðskiptavininn er að vera í réttri áskriftarleið, og vera ekki að borga fyrir allt of stóra gagnapakka þegar erlend meðalnotkun heimilis er 22 GB.
Af hverju er fyrirkomulagið ekki öðruvísi, t.d. grunngjald uppá 4000 og 22 kr. hvert GB í erlendu.
Þá liti það svona út:
10 GB væru á 4220
100 GB 6200
200 GB 8400

Ef notandi væri með t.d. 86Gb þá yrði reikningurinn 5.892.- kr.
Þú ert þá að borga fyrir það sem þú notar, ekki kaupa einhverja fyrirfram ákveðna pakka og nota svo hluta af þeim.
Eins og verðunum er stillt upp núna þá eru litlu tengingarnar að niðurgreiða þær stærri, þar sem þær eru hlutfallslega miklu dýrari.
Skjámynd

daremo
spjallið.is
Póstar: 423
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af daremo »

Ég skil ekki hvers vegna menn eru að væla yfir þessu núna.
Þegar ég var viðskiptavinur Vodafone (2008-2012) tók ég mjög greinilega eftir því að öll spegluð umferð (Akamai) var talin sem utanlandsumferð. Minnir meira að segja að ég hafði nefnt það í þráði á þessu spjalli fyrir nokkrum árum.
Skjámynd

Orri
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Orri »

daremo skrifaði:Ég skil ekki hvers vegna menn eru að væla yfir þessu núna.
Þegar ég var viðskiptavinur Vodafone (2008-2012) tók ég mjög greinilega eftir því að öll spegluð umferð (Akamai) var talin sem utanlandsumferð. Minnir meira að segja að ég hafði nefnt það í þráði á þessu spjalli fyrir nokkrum árum.
Þú hlýtur nú að vera eitthvað að rugla þar sem það er alveg greinilegt að breytingin (að spegluð umferð teljist sem erlend) á sér stað í okt/nóv eins og menn eru búnir að sýna fram á í þessum þræði.
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS
Skjámynd

Baldurmar
Tölvutryllir
Póstar: 680
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Baldurmar »

Var að kíkja hvort að ég væri kominn með 500GB í heimild:
0,22 GB af 150 GB inniföldu gagnamagni hefur verið notað !
Asrock Gaming K4 - Ryzen 1600 @ 3.7ghz - 16GB Ripjaws 3200mhz - GTX 1070 8gb

RazerLycoz
Nörd
Póstar: 103
Skráði sig: Sun 01. Ágú 2010 17:34
Staðsetning: no comment
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af RazerLycoz »

Baldurmar skrifaði:Var að kíkja hvort að ég væri kominn með 500GB í heimild:
0,22 GB af 150 GB inniföldu gagnamagni hefur verið notað !
sama hér :-" átti þetta ekki að breytast eftir 31 jan :-k
CPU:i5 2400@ 3.10 Ghz Quad Core | MB:Gigabyte Z68Xp-UD4 | Ram:Corsair 3x4Gb@1333 MHz DDR3 |HDD:Samsung 840 Pro 256 | GPU:Gtx 550Ti | Samsung 23"SA350B Full HD "Going to Upgrade Soon"

verba
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 16:32
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af verba »

RazerLycoz skrifaði:
Baldurmar skrifaði:Var að kíkja hvort að ég væri kominn með 500GB í heimild:
0,22 GB af 150 GB inniföldu gagnamagni hefur verið notað !
sama hér :-" átti þetta ekki að breytast eftir 31 jan :-k
Tekur oft nokkra daga að uppfærast var mér sagt þegar ég breytti um leið síðast.
Skjámynd

GrimurD
spjallið.is
Póstar: 465
Skráði sig: Fös 01. Ágú 2008 13:17
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af GrimurD »

Ég get nánast lofað ykkur því að það á bara eftir að breyta nöfnunum á þjónustuleiðunum í kerfinu hjá þeim. Er oft þannig hjá þeim þegar það er verið að breyta þjónustuleiðum á þennan hátt.
Antec P182 | Asus Sabertooth Z77 | Intel Core i7 3770k @ 4.2ghz | Kingston HyperX 16gb DDR3 @ 1600mhz | Samsung 840 EVO - 240gb SSD | Gigabyte Radeon R9 290 OC 4gb | 3x 24" BenQ G2420HDB

Bon
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Þri 28. Jan 2014 22:17
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Bon »

Þó kominn sé 1 feb er ég drullu pirraður út í Vodafone. Ég hélt að nýtt niðuhalstímabil byrjaði eftir miðnætti 31 jan og kannski gert það, en hjá mér er erlent niðurhal ennþá pikkfrosið, en íslenskt niðurhal er ok. Hringdi áðan í vodafone og ætlaði að spurja um þetta, fékk það svar að ég væri númer 30 í röðinni, sorrí nenni ekki að bíða í símanum í klukkutíma :pjuke Ætlaði að láta þennan mánuð líða svo sjá til hvort ég ætti að flytja mig ](*,)

Höfundur
BaldurÖ
Fiktari
Póstar: 77
Skráði sig: Þri 23. Jún 2009 22:28
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af BaldurÖ »

var að reyna að hringja og ætlaði að spyrja útí aukagagnamagnið hjá mér það kom bara símsvari
sem sagði.... netnotendur finna fyrir truflunum á netsambandi til útlanda vegna uppfærlu :) svo slitnaði bara :)
er númer 30 í röðinni :)

hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af hkr »

GrimurD skrifaði:Ég get nánast lofað ykkur því að það á bara eftir að breyta nöfnunum á þjónustuleiðunum í kerfinu hjá þeim. Er oft þannig hjá þeim þegar það er verið að breyta þjónustuleiðum á þennan hátt.
Minnir að ég hafi séð að % sem segir til um hvað ég sé búinn með mikið af gagnamagninu hjá mér hafi sýnt eins og það væri búið að stækka hjá mér pakkann þó svo að það hafi ekki staðið rétt í textanum sjálfum, er reyndar ekki heima núna þannig að ég get ekki staðfest það.

Þetta sýnir, að mínu mati, að þessu hafi verið flýtt - greinilega verið að nýta þetta til þess að svara fyrir því að þeir séu mæla innlenda traffík sem erlenda.

En fyrir þá sem eru að hringja inn í þjónustuverið, þá mæli ég hiklaust með að nota vefspjallið. Oftast miklu fljótari að fá svör þar en að bíða í símanum.
Skjámynd

GrimurD
spjallið.is
Póstar: 465
Skráði sig: Fös 01. Ágú 2008 13:17
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af GrimurD »

Bon skrifaði:Þó kominn sé 1 feb er ég drullu pirraður út í Vodafone. Ég hélt að nýtt niðuhalstímabil byrjaði eftir miðnætti 31 jan og kannski gert það, en hjá mér er erlent niðurhal ennþá pikkfrosið, en íslenskt niðurhal er ok. Hringdi áðan í vodafone og ætlaði að spurja um þetta, fékk það svar að ég væri númer 30 í röðinni, sorrí nenni ekki að bíða í símanum í klukkutíma :pjuke Ætlaði að láta þennan mánuð líða svo sjá til hvort ég ætti að flytja mig ](*,)
Það er bilun hjá þeim, það uncappaðist enginn viðskiptavinur á miðnætti, (þess vegna er svona mikið að gera hjá þeim núna). Það er verið að vinna í þvi.
Antec P182 | Asus Sabertooth Z77 | Intel Core i7 3770k @ 4.2ghz | Kingston HyperX 16gb DDR3 @ 1600mhz | Samsung 840 EVO - 240gb SSD | Gigabyte Radeon R9 290 OC 4gb | 3x 24" BenQ G2420HDB

lama
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Lau 01. Feb 2014 19:59
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af lama »

Hefur enginn beðið vodafone um sundurliðun á mældu gagnamagni?
Þar ætti að koma fram svart á hvítu fyrir hvaða ip-tölur þeir rukka.

http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... 65a4aaf7e9" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af lukkuláki »

Einhver sagði að það kostaði líklega 20 - 30 þúsund kr.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Daz »

Mér finnast þessi lög ekki nógu góð til neytendaverndar í netmálum. Símtöl sundurliðuð niður á mínútur, í-hringt-númer og kostnað, en netkostnaður bara niður á klukkutíma.
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af AntiTrust »

Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Daz »

AntiTrust skrifaði:Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Þessvegna notar maður report server sem er klónaður á einhvernhátt útfrá live serverinum. Eða bara með buisness warehouse þar sem er mögulega búið að transforma gögnin.

Notandinn getur ekki metið réttmæti skuldarinn ef hann getur ekki fengið aðgang að þeim gögnum sem seljandi notar til grundvallar. Mér finnst það bara merkilegt að það hafi enginn farið í mjög opinbera kvörtunarherferð yfir þessu. Eru til dæmi annarstaðar frá þar sem rukkun getur verið byggð á jafn óljósum grunni?

Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Garri »

AntiTrust skrifaði:Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Þá fullyrði ég að grunnurinn sé rangt hannaður.

Ég hef smíðað ógrynni af gagnagrunnum og sumir með gögn sem skipta miljónum. Ég lykla á algengustu fyrirspurnirnar sem þýðir að ef ip-tala mín er lykluð, aðeins örfáar sekúndur að tína út þúsunda færsla.

Með því að lykla á grunninn þá stekkur leitarvélin inn í röðunina þar sem atriðið er og listar þar til það hættir að vera til. Þannig er maður aðeins að skoða örlítinn glugga af öllum grunninum.

Þetta virðist bróðurparturinn af ungum forriturum ekki skilja í dag. Halda að "engine-ið" sjái um þetta.. einhvern veginn í cloud-i eða einhverju.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Daz »

Garri skrifaði:

Það er oft ekki praktískt að búa til marga/flókna lykla á "high volume" töflur/grunn þar sem IO kostnaðurinn við alla Indexa fer að telja á við það að inserta færslunni sjálfri. Þá er betra að clona grunninn með öðrum aðferðum og keyra report fyrirspurnin á clonið, frekar en á original grunninn.
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af AntiTrust »

Ég er náttúrulega ekki gagnagrunnsmaður fyrir fimmkall, ekkert frekar en forritari svo ég læt alveg vera að kommenta frekar á hvernig þetta er unnið. Það eina sem ég veit með vissu er að gögn sem eru lesin yfir á þjónustuvefi og í kerfi sem framlína getur lesið úr, þeas þegar verið er að skoða notkun á tímabasis er alltaf lesið úr spegli, ekki 'live' grunni. Þekki svo nákvæmlega ekki hvernig hrágögn eru filteruð út, og mætti örugglega hvort sem er sem minnst tjá mig um það.

Ég er allur fyrir að neytendur hafi aðgang að sem mestum upplýsingum um eigin notkun á allri þjónustu, hef þó engu að síður talsverðan efa um að ítarleg sundurliðun um traffík verði í boði fyrir neytendur á næstunni. Værí þó ágætis byrjun að gefa upp top 10 síður/IP tölur/protocols sem notuð voru yfir mánaðartímabil t.d.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.

Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Garri »

Daz skrifaði:
Garri skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Þá fullyrði ég að grunnurinn sé rangt hannaður.

Ég hef smíðað ógrynni af gagnagrunnum og sumir með gögn sem skipta miljónum. Ég lykla á algengustu fyrirspurnirnar sem þýðir að ef ip-tala mín er lykluð, aðeins örfáar sekúndur að tína út þúsunda færsla.

Með því að lykla á grunninn þá stekkur leitarvélin inn í röðunina þar sem atriðið er og listar þar til það hættir að vera til. Þannig er maður aðeins að skoða örlítinn glugga af öllum grunninum.

Þetta virðist bróðurparturinn af ungum forriturum ekki skilja í dag. Halda að "engine-ið" sjái um þetta.. einhvern veginn í cloud-i eða einhverju.
Það er oft ekki praktískt að búa til marga/flókna lykla á "high volume" töflur/grunn þar sem IO kostnaðurinn við alla Indexa fer að telja á við það að inserta færslunni sjálfri. Þá er betra að clona grunninn með öðrum aðferðum og keyra report fyrirspurnin á clonið, frekar en á original grunninn.
Það þarf að vera andskoti hægvirkur server sem stoppar á því að viðhalda einum einföldum lykli/index.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Daz »

Garri skrifaði:
Daz skrifaði:
Það er oft ekki praktískt að búa til marga/flókna lykla á "high volume" töflur/grunn þar sem IO kostnaðurinn við alla Indexa fer að telja á við það að inserta færslunni sjálfri. Þá er betra að clona grunninn með öðrum aðferðum og keyra report fyrirspurnin á clonið, frekar en á original grunninn.
Það þarf að vera andskoti hægvirkur server sem stoppar á því að viðhalda einum einföldum lykli/index.
Þegar fjöldi inserta er farinn að nálgast tugir þúsunda per mínútu þá vill maður kannski ekki setja þetta auka 5-15% álag á serverinn án þess að vera mjög viss um ágóðann.

Ef kerfið er uppsett eins og Antitrust segir með speglaðan grunn fyrir framendakerfið er aftur á móti ekkert mál að smíða hverskonar indexa á það kerfi. Aftur á móti er líklegt að það sé ekki 100% spegill, heldur einmitt transformuð gögn (data warehouse) þar sem búið er að fækka víddunum, til að minnka gagnamagnið.

Málið er bara að nútíma öflugir gagnagrunnar nota multitasking og nota cache í botn. Þannig eru lyklar kannski ekki uppfærðir nema í minni og aðeins flússaðir niður á einhverju grófu intervali. Hér í denn í árdaga SQL grunna þá voru þetta sequential skrár sem þurfti að færa til (inserta) og steindrápu allt sem hét hraði. Í dag eru þetta linkaðir listar (b-tree+) og uppfærsla á lykli aðeins minor breyting á pointerum í grunninum sjálfum.

Refur
Nýliði
Póstar: 4
Skráði sig: Þri 28. Jan 2014 18:45
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Refur »

Ef ágreiningur rís um hvernig viðkomandi þjónustuaðili túlkar grunngögnin (t.d. hvaða IP tölur eru erlendar) er lítil hjálp í því að fá nákvæmari sundurliðun á túlkuðum gögnum frá þjónustuaðila. Það hlýtur að vera réttur neytenda að fá í hendurnar þau gögn sem höfð eru til grundvallar gjaldtöku - og þá eru það aðeins óunnin hrágögn sem koma til greina.

En í lok dags er mjög hart að geta ekki treyst þjónustuaðila sínum til að standa rétt og heiðarlega að gjaldtöku.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Póstur af Daz »

Garri skrifaði: Málið er bara að nútíma öflugir gagnagrunnar nota multitasking og nota cache í botn. Þannig eru lyklar kannski ekki uppfærðir nema í minni og aðeins flússaðir niður á einhverju grófu intervali. Hér í denn í árdaga SQL grunna þá voru þetta sequential skrár sem þurfti að færa til (inserta) og steindrápu allt sem hét hraði. Í dag eru þetta linkaðir listar (b-tree+) og uppfærsla á lykli aðeins minor breyting á pointerum í grunninum sjálfum.
Og eins og verðskráin fyrir gagnagrunna er þá ertu ekki að fara að búa til auka CPU álag við venjulega vinnslu nema vera 100% viss um að þú þurfir á því að halda.
Svara