jæja, watzup?siminn skrifaði:Bara svo að ég upplýsi áhugasama nákvæmlega um stöðuna.
Planið var að fara í loftið í þessari viku, kerfin tilbúin og engar hindranir. Ákveðið var samt að fresta þessu svona stuttu fyrir hátíðarnar þar sem gangsetning á svona kerfi þýðir að margir tæknimenn okkar þurfa þá að vera á bakvakt og nokkrir helst að vera í vinnu við að fylgjast með kerfunum. Það er tæknilega flókið að setja nýtt kerfi í loftið, mörg undirliggjandi kerfi sem þurfa að tala saman og virka rétt svo ekkert fari í rugl.
Því var tekin ákvörðun um bíða aðeins, hreinlega til að gefa okkar fólki tækifæri á góðu jólafríi án truflana eins langt og þær ná.
kveðja,
Guðmundur hjá Símanum
4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nótt
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Þessi "afsökun/ástæða" er eiginlega ekki að virka lengur þegar það er kominn 15. janúar og líklega allir löngu komnir úr jólafríi...... Afhverju ekki bara að segja hlutina eins og þeir eru, það er ekkert verra PR fyrir fyrirtækið að lofa uppí ermina á sér og svíkja það sem sagt er.siminn skrifaði:Bara svo að ég upplýsi áhugasama nákvæmlega um stöðuna.
Planið var að fara í loftið í þessari viku, kerfin tilbúin og engar hindranir. Ákveðið var samt að fresta þessu svona stuttu fyrir hátíðarnar þar sem gangsetning á svona kerfi þýðir að margir tæknimenn okkar þurfa þá að vera á bakvakt og nokkrir helst að vera í vinnu við að fylgjast með kerfunum. Það er tæknilega flókið að setja nýtt kerfi í loftið, mörg undirliggjandi kerfi sem þurfa að tala saman og virka rétt svo ekkert fari í rugl.
Því var tekin ákvörðun um bíða aðeins, hreinlega til að gefa okkar fólki tækifæri á góðu jólafríi án truflana eins langt og þær ná.
kveðja,
Guðmundur hjá Símanum
Í staðin fyrir að koma með afsökun um að starfsmenn fái nú gott jólafrí og eigi bara eftir að ýta á ON takkann, þá segja bara að þetta eigi enn töluvert í land en komi vonandi á 1. ársfjörðungi eða hvert sem raunhæft markmið sé.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1623
- Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Einhver annar sem nær engu netsambandi hja simanum? Fæ upp LTE i mobile draslinu en hef ekkert fengið neitt net fra tvi i morgun, sama tho eg stilli a 3g.
Get ekki heldur sent sms :/
Get ekki heldur sent sms :/
Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD
-
- Fiktari
- Póstar: 76
- Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 10:04
- Staðsetning: Ármúli 25, Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Þetta var ástæðan þá, afsökun var þetta ekki enda ekkert að afsaka svo sem. Kerfið fer í loftið þegar okkar tæknimenn eru ánægðir,það er ekki venja hjá okkur að setja hlutina í loftið nema að þeir hafi verið prófaðir og það oft og þeir ánægðir með allt saman. En ég skal klárlega biðjast afsökunar á að hafa ekki tekið þennan þráð upp aftur og uppfært menn um stöðuna eftir því sem hún breyttist.Tiger skrifaði: Þessi "afsökun/ástæða" er eiginlega ekki að virka lengur þegar það er kominn 15. janúar og líklega allir löngu komnir úr jólafríi...... Afhverju ekki bara að segja hlutina eins og þeir eru, það er ekkert verra PR fyrir fyrirtækið að lofa uppí ermina á sér og svíkja það sem sagt er.
Í staðin fyrir að koma með afsökun um að starfsmenn fái nú gott jólafrí og eigi bara eftir að ýta á ON takkann, þá segja bara að þetta eigi enn töluvert í land en komi vonandi á 1. ársfjörðungi eða hvert sem raunhæft markmið sé.
Það var alltaf planið að setja kerfið í loftið fyrir jól en fyrrgreind ástæða gerði það að verkum að það var ákveðið að bíða með það og kannski sem betur fer. Allir starfsmenn sem hafa viljað og hafa 4G tæki hafa verið með aðgang að kerfinu og Nexus 5 sem dæmi hagaði sér eitthvað furðulega og því þurfti að debugga það með framleiðendum og laga það. Það er tæknilega flókið að setja upp svona kerfi, nýja senda og tryggja fallback yfir í 2G/3G ásamt því að flytja voice yfir 4G líka. Svo þarf að tryggja að öll bakendakerfin tali saman rétt, gögin flæði rétt yfir í reikningakerfi og fullt annað. Bara svo að fólk átti sig á flækjustiginu
Planið núna er að fara í loftið á næstu vikum. Áhugasamir geta sent tölvupóst með símanúmeri og tegund símtækis á nethjalp@siminn.is og ég mun reyna að koma viðkomandi inn í prufuhópinn.
kveðja,
Guðmundur hjá Símanum
Edit - leiðrétti innsláttarvillu.
Last edited by siminn on Fim 16. Jan 2014 17:23, edited 1 time in total.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Það er betra að mæla tvisvar og saga einu sinni.
Ég skil mjög við viðhoft Símans til þessa. Þeirra kerfi er solid.
En þegar það er kynnt undir hjá þessum gröðu tækniáhugamönnum/tæknifíklum, þá er betra að reyna láta það standa. Mér finnst þó vera líka soldil frekja hérna.
En fyrir mitt leyti, þá er það bara Síminn

- Gúrú
- Póstar: 556
- Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Nexus 4 styður ekki 4G, nema ef rootaður og þá bara band 4 sem er ekki í notkun hér á landisiminn skrifaði: ...Nexus 4 sem dæmi hagaði sér eitthvað furðulega og því þurfti að debugga það með framleiðendum og laga það.
-
- Fiktari
- Póstar: 76
- Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 10:04
- Staðsetning: Ármúli 25, Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Innsláttarvilla hérna megin, þetta átti auðvitað að vera Nexus 5steinarorri skrifaði:Nexus 4 styður ekki 4G, nema ef rootaður og þá bara band 4 sem er ekki í notkun hér á landisiminn skrifaði: ...Nexus 4 sem dæmi hagaði sér eitthvað furðulega og því þurfti að debugga það með framleiðendum og laga það.
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Ekkert að þessum hraða hjá símanum á 4G......
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Hvar eru menn eiginlega að ná LTE sambandi hjá Vodafone? Ég er búinn að vera með 4G síma í viku núna og hef hvergi séð LTE nema í höfuðstöðvum Vodafone í Skútuvogi...
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Ekkert 4G hjá Voda á höfuðborgarsvæðinu.
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Jú bara inni í verslunum Vodafone
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Síminn er með 4G loftnet upp á þakinu á Elko í Kópavogi þannig að það ætti að vera gott samband á því svæði.
Have spacesuit. Will travel.
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1268
- Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
- Staðsetning: Router(config)#
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Var í Smáralind um daginn og tók eftir því að síminn datt inn á LTE/4G - Vodafone eru greinilega með sendi þar.
Tók eitt speedtest... Þessi hraði á samt ekkert í þann hraða sem 4G Símans er með!
Tók eitt speedtest... Þessi hraði á samt ekkert í þann hraða sem 4G Símans er með!
Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Hvar næst LTE hjá Símanum?
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Það er greinilega svolítið takmarkað enn en vonandi í stækkun. Ég hef hvergi tengst annarstaðar en í RVK, ekki í Hafnarfirði nei neinstaðar. En það er á nokkrum stöðum í rvk allavegana.dori skrifaði:Hvar næst LTE hjá Símanum?
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Bara ótrúlegur seinagangur, auglýsa 4G hjá Vodafone, en það virkar bara á Selfossi og nágreni, og skorradal og svo einnig á Akureyri, hinsvegar er hraðin ekkert til að hrópa húrra yfir
svo bara virðist ekkert gerast, ekkert neitt sagt frá hvernig gengur að koma reykjavík á 4G eða neitt
svo bara virðist ekkert gerast, ekkert neitt sagt frá hvernig gengur að koma reykjavík á 4G eða neitt
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Hvaða dreifikerfi notar Nova? Ég bý sjálfur uppí Skorradal og er mjög ánægður með 4G sambandið þar. Hef svosem ekki kannað mikið hvar ég er á 3g og hvar á 4g. Er Tal eitthvað byrjað að bjóða uppá 4g? Þeir nota dreifikerfi símans, right? Var að fá fínasta tilboð fyrir símann hjá þeim, skipti samt ekki yfir ef ég held ekki 4g sambandinu mínu.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Nova eru með sitt eigið 4g kerfi síðast þegar ég vissi, voru fyrstir til að koma með 4g.Xovius skrifaði:Hvaða dreifikerfi notar Nova? Ég bý sjálfur uppí Skorradal og er mjög ánægður með 4G sambandið þar. Hef svosem ekki kannað mikið hvar ég er á 3g og hvar á 4g. Er Tal eitthvað byrjað að bjóða uppá 4g? Þeir nota dreifikerfi símans, right? Var að fá fínasta tilboð fyrir símann hjá þeim, skipti samt ekki yfir ef ég held ekki 4g sambandinu mínu.
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Er eitthvað að frétta af 4G hjá Síminn?
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1558
- Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
- Staðsetning: Hveragerði
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
https://www.siminn.is/adstod/farsimi/4g-thjonusta/" onclick="window.open(this.href);return false;tlord skrifaði:Er eitthvað að frétta af 4G hjá Síminn?
Starfsmaður @ IOD
-
- Fiktari
- Póstar: 76
- Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 10:04
- Staðsetning: Ármúli 25, Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Langt síðan við fórum í loftið. Ef þú ert ekki að detta inn en síminn þinn styður 4G hentu þá á okkur línu með símanúmeri og hvernig tæki þú ert með á nethjalp at siminn.istlord skrifaði:Er eitthvað að frétta af 4G hjá Síminn?
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 993
- Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
Þetta 4G kort hjá Símanum er nú frekar glatað, er ekki hægt að fá nákvæmari lista yfir það hvar 4G næst? Veit að 4G næst hjá Hörpunni í Reykjavík, Sævangur - Reykjarvíkurvegur í Hafnarfirði og rétt hjá Aktu Taktu í Garðabæ. Fleiri staði veit ég ekki um.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: 4G komið í loftið hjá Vodafone í Reykjavík, Siminn í nót
er endalaust í h og h+ og netið virkar ekki þá.
virkar í þau fáu skipti sem ég kemst á 4g. er hjá nova.
samsung galaxy s4+
virkar í þau fáu skipti sem ég kemst á 4g. er hjá nova.
samsung galaxy s4+
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL