Eins og áður segir þá restartar tölvan í leikjum, það kemur stundum blár skjár í augnablik ég næ ekki einusinni að sjá hvað stendur þarna, ég er með næstum allt nýtt í vélinni nema skjákortið þannig að mig grunar það helst. Ég er með Geforce 4200. Stundum frýs tölvan í Far Cry og þá get ég ekkert gert nema halda power takkanum inni þar til slokknar.
Jæja, einhverjar hugmyndir
Manager1 skrifaði:
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Hvernig færðu það út.......mig langar mjög mikið að vita það
Manager1 skrifaði:Hah, ég spilaði Farcry á medium með MX440 kortinu mínu
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Ef nýtt skjákort er lausnin, þá er nokkuð öruggt að það gamla var gallað og því ættir þú rétt á endurgreiðslu. Og það er ekki algilt að skjákort séu gölluð.
Jamm ég er að spila dótið í low þannig að ég er nú ekki að setja það mikið álag á dótið og tölvan gerir þetta líka í öðrum leikjum. Held samt að ég geti ekki skilað kortinu, finn nefnilega ekki nótuna, þarf maður ekki að hafa hana
hefurðu prófað að taka Automaticly Restart hackið af í System properties>advanced settings>Start and Recovery. Ef það er á, þá er windows stilltur á að restarta, ef villa gerist..þessi villa þarf ekki alltaf að vera stórvægileg
það er nú nánast alveg jafn mikið álag á kortinu í low og medium. þetta er líklegast ofhitnun. ekkert vera að fá þér nýtt kort, þetta er mjög fínt kort.
Ef að hitinn í kassanum sjálfum fer vel yfir 30°C þá er það vísbending um að skjákortið sé að ofhitna (svo lengi sem örgjörvinn er þá ekki í 70°C), athugaðu með hitann á því sem þú getur séð (með t.d. speedfan) og segðu okkur hvað þú færð.
1. Fá þér nýtt skjákort (ég mæli með Radeon X800 kortunum)
2. Formatta vélina (system partition) áður en þú setur nýja skjákortið í, svo
allt sé pottþétt í lagi.
mæli einna helst með að hann kíki á skjákortið, ef viftan í lagi, kannski farin að slappast þannig að kortið ofhitnar í mikilli vinnslu?
er allt í lagi með vélina í öðrum leikjum en farcry?
hefurðu keyrt 3dmark og hefur það gengið upp?
ef þú tekur lokið af kassanum gengur hún þá lengur/betur í t.d farcry?
ef þetta er bara í farcry, sótt nýjasta update fyrir hann og prufað?
Ok prófaði þetta sem Xtrife stakk uppá og tölvan hefur ekki restartað í dag en hún er búin að frjósa í Far Cry, meira að segja komu endalausar rendur yfir allan skjáinn. Þannig að ég held að það sé kominn tími á nýtt skjákort þegar ég hef efni á því
Manager1 skrifaði:Hah, ég spilaði Farcry á medium með MX440 kortinu mínu
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Ef nýtt skjákort er lausnin, þá er nokkuð öruggt að það gamla var gallað og því ættir þú rétt á endurgreiðslu. Og það er ekki algilt að skjákort séu gölluð.
Mér er hent útúr sumum leikjum og öðrum ekki. Tölvan virðist velja alveg random hvaða leikir það eru, og hvenær hún hendir mér útúr þeim
Ef þetta væri hitavandamál ætti mér að vera hent útúr öllum leikjum, eða amk langflestum. Ég spila t.d. Farcry, GTA3 Vice City og NFSU alveg leikandi, á meðan leikir eins og NFS Hot Pursuit 2 og GTA3 virka ekki.
Man ekki nákvæmlega hvaða skilaboð ég fá á bláskjánum, en það var m.a. stungið uppá að ég prufaði að slökkva á shading og einhverju öðru í BIOSnum.
shadowing meinaru... shading er hlutur sem skjákortið notar og tengist biosnum á móðurborðinu ekkert. hinsvegar er shadowing stilling íbios sem gerir töllvunni kleyft að afrita biosinn úr bios ROM-inu yfir í vinsluminnið, og eykur þannig vinslugetu tölvunnar.