Grillað móðurborð?

Svara

Höfundur
90°hallandibeinn
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Sun 17. Nóv 2013 18:23
Staða: Ótengdur

Grillað móðurborð?

Póstur af 90°hallandibeinn »

Lenti í því áðan þegar ég opna youtube myndband að myndin á skjánum dettur út og tölvan (turn) gefur frá sér 3 píp hljóð.
Ég endurræsi tölvuna og fæ sömu píp hljóðin en heyri windows startup hljóðin í headphones svo það sem virkar ekki á þessum tímapunkti er display.
Fæ ráðleggingar um að prófa vinnsluminnin (er með tvö), skipta um slot og prófa eitt í einu. Þá breytast pípin í 4 löng píp (þrjú rúmlega 2 sek píp og eitt 1.5 sek) sem endurtaka sig stanslaust. Þegar ég set vinnsluminnin aftur í upprunaleg slot breytir að engu, hljóðin frá tölvunni eru ennþá 4 píp.
Fæ aðra ráðleggingu um að flasha BIOS-inn með því að taka út cmos batterýið. Finn leiðbeingingar hvernig eigi að gera það og tek það út í 30 mín og prófa að setja það aftur í en engin breyting.

Einhverjar uppástungur? Ég er enginn tölvumógúll svo allt "very hi-Tech" tal kem ég ekki til með að skilja. Minnir að tölvan sé 3 ára frekar en 4 ára. Móðurborðið er gigabyte.
Fyrirfram þakkir. :fly

Bioeight
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Grillað móðurborð?

Póstur af Bioeight »

Augljóslega skjákortið sem var vandamálið til að byrja með svo engin ástæða til að vera að fikta í minnunum. Ætti ekkert að vera að minnunum miðað við lýsingarnar nema þú hafir verið svo óheppinn að skemma minnin þegar þú fórst að fikta í þeim fyrst. Vertu bara viss um að minnin séu rétt sett í, ef þú ert með 2 eins minniskubba þá eiga þeir að vera í hvítu minnisraufunum.

Til að resetta CMOS áttu að nota jumperinn sem er á móðurborðinu, dæmi hér: http://www.youtube.com/watch?v=Pdp_L5IxaNI, stundum er líka takki sem er merktur Reset CMOS/Clear CMOS/ CMOS sem hægt er að ýta á til að cleara CMOS, þá þarf ekki að nota jumperinn. Að taka batteríið úr á líka að virka en það þarf líka að taka tölvuna úr sambandi og slökkva á power supplyinu til að það virki.

Þú ættir allaveganna að komast aftur í það að fá windows startup hljóð, en þá er vandamálið skjákortið. Þarft að athuga hvort það sé ekki almennilega sett í, allar tengingar og svo framvegis. Best svo að prófa hvort það virki að setja annað skjákort í, eða ef þú ert með skjákort og innbyggða skjástýringu að prófa að skipta yfir í innbyggðu skjástýringuna.

Ef þú ert enn í vandræðum eftir þetta væri gott að vita hvaða móðurborð þú ert með, hvaða örgjörva, hvaða skjákort og hvernig minniskubba.
Corsair Carbide 400Q|Gigabyte Nvidia 1070|AMD R7 2700X|Gigabyte X470 Aorus Gaming 5|EVGA SuperNOVA 750 G3

nonesenze
</Snillingur>
Póstar: 1064
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Staða: Ótengdur

Re: Grillað móðurborð?

Póstur af nonesenze »

væri fínt að vita hvernig hardware er í tölvunni og þá aðalega hvernig bios þú ert með

bíbin þýða ákveðið og það er hægt að vita hvað er að með að hlusta á þau og google hvað þau þýða, en það er mismunandi eftir hardware

edit : skoðaðu þetta
http://www.gigabyte.com/support-downloa ... px?fid=816

veit ekki hversu gamalt þitt er

edit 2:
eftir smá search er þetta það sem á að gera

1st. prufa annað minni bara í einni rauf, (helst minni sem þú veist að er í lagi og pasar í borðið)
2nd. minnis controler í móðurborði ónýtur

bioeight : ekki gera við tölvur
Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p

Bioeight
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Grillað móðurborð?

Póstur af Bioeight »

Miðað við að 3 beep er graphic card error og 4 beep real time clock error þá passar þetta nokkuð vel.
Corsair Carbide 400Q|Gigabyte Nvidia 1070|AMD R7 2700X|Gigabyte X470 Aorus Gaming 5|EVGA SuperNOVA 750 G3

Höfundur
90°hallandibeinn
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Sun 17. Nóv 2013 18:23
Staða: Ótengdur

Re: Grillað móðurborð?

Póstur af 90°hallandibeinn »

Takk fyrir svörin. Eftir að hafa lesið þau yfir ákvað ég að prófa að losa skjákortið til að skoða og rykhreinsa tölvuna. Komst að því að mjög líklega hafði ég ekki ýtt minnunum nógu fast í þegar ég var að prófa þau fyrst svo þar voru pípin 4 leyst. Eftir að hafa hreinsað tölvuna og sett skjákortið og allt annað á sinn stað aftur virkar allt eins og áður :D . Veit ekki hvað olli því að kortið klikkaði til að byrja með, tölvan var bara á sínum stað eins og alltaf og engin hreyfing á henni þegar display hætti að virka. Kannski rykið?
Vandamálið allavega leyst :happy
Svara