Að tengja DualShock 3 við PC?

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Staða: Ótengdur

Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af Xovius »

Ég var að eignast eitt stykki DualShock 3 stýripinna (ps3) og langar að tengja hann við tölvuna, það væri svosem ekkert vesen (fann til dæmis þetta og fleira http://www.youtube.com/watch?v=TpSaOJJIun8" onclick="window.open(this.href);return false;) nema hvað ég á ekki MiniUSB-b í USB-A snúruna sem ég þarf víst til að tengja þarna á milli, ég er með bluetooth á móðurborðinu og ég á gamalt hleðslutæki með MiniUsb-b tengi svo ég get hlaðið fjarstýringuna og notað hana, ég virðist bara ekki getað installað driverum og svona. Þegar ég læt bluetoothið mitt leita og kveiki á stýripinnanum sér tölvan ekkert. Ég tjékkaði hvort hún sæi símann minn og það virkaði svo það er ekki bluetooth í tölvunni sem er að feila.

Get ég fundið þessa drivera einhversstaðar annarsstaðar eða er það kannski ekki vandamálið?
Er kannski alveg nauðsynlegt að finna sér svona snúru?
Skjámynd

MrSparklez
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Lau 04. Maí 2013 16:01
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af MrSparklez »

Er ekki viss með að nota bluetooth en mín ps3 fjarstýring virkar vel með snúru og DS3 driverunum :D
Skjámynd

Höfundur
Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af Xovius »

MrSparklez skrifaði:Er ekki viss með að nota bluetooth en mín ps3 fjarstýring virkar vel með snúru og DS3 driverunum :D
Arg!
Veit að ég á alveg að geta tengt hana með bluetooth (þannig tengist hún ps3) en samkvæmt þeim leiðbeiningum sem ég hef fundið þarf maður þessa snúru til að setja þetta upp. Ætli ég endi ekki bara með því að fá snúru lánaða hjá einhverjum til að installa :/
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af worghal »

þetta bluetooth á tölvunni getur ekki séð það, en það er hægt að fá bluetooth dongle sem getur það. eitthvað encoded shit býst ég við.
verður bara að redda þér snúru.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL

diabloice
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Mið 09. Mar 2011 08:44
Staðsetning: Keflavík
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af diabloice »

þarft að vera með forrit sem heitir motioninjoy , og svo þarf spes blutetooth dongle til að tengja þær í gengum bluetooth við pc en lítið mál að tengja með usb með þessu forriti
Rig 1: Amd Ryzen 3900X @4.2 Corsair H100i Pro , GPU: Asus GTX 1070 STRIX 16Gb DDR4 3600hmz
Rig 2: Intel Core I5 7600k @ Stock MB :Gigabyte GA-X270X -Utltimate Gaming GPU : GTX 1060 16GB DDR4
Laptop:Asus G61J Core i7 720QM 8GB Ram 120GB SSD 1024MB Nvidia 360m GTS

rubey
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 00:39
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af rubey »

Þarft snúru til að tengja hana við pc, alveg eins með ps3. Þannig veit hún hverju hún á að tengjast með bluetooth sem virkaði fínt á lappanum mínum.

stjani11
has spoken...
Póstar: 190
Skráði sig: Lau 29. Jan 2011 13:59
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af stjani11 »

þú þarft þessa snúru til að hlaða batteríin á fjarstýringunni svo að ef þú átt hana ekki þá geturu ekkert notað fjarstýringuna
Skjámynd

Höfundur
Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja DualShock 3 við PC?

Póstur af Xovius »

stjani11 skrifaði:þú þarft þessa snúru til að hlaða batteríin á fjarstýringunni svo að ef þú átt hana ekki þá geturu ekkert notað fjarstýringuna
Ef þú hefðir lesið upprunalega postinn hefðirðu séð að ég er með hleðslutæki...
Svara