Sjónvarps Símans vandamál

Svara
Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af Pandemic »

Mikið rosalega er ég orðinn þreyttur á Sjónvarpi Símans og þeim vandamálum sem ég er að lenda í.

Vandamálið lýsir sér þannig að sjónvarpið er á sífellu flökti(digital glitches) og sumir tónar í hljóðmerkinu eru mjög distorted ásamt því að sjónvarpsútsendinginn stoppar stundum með miklum látum í hljóðinu.
Ég er búinn að reyna að debugga mig í gegnum allt til að finna hvað er þessu en finn ekkert.

Er með sjónvarp símans tengt í gengum switch og svo í innanhúslagnirnar í húsinu með cirka 40-50m Cat5e kapali sem er tengudr í router sem er í bílskúrnum.
Er á 3. myndlykli en ekkert hefur breyst, höfum ekki prófað að skipta úr routernum en það er möguleiki ef allt annað er í lagi.
Ef ég prófa að pinga með mismunandi pakkastærðum á routerinn í gegnum snúruna þá fæ ég ekkert packet loss og merkið er gott eða miðað við þær prófarnir sem ég get gert án þess að vera með alvöru cable tester.
Eina sem mér dettur núna í hug er annaðhvort að switchin sem er á milli sem gerir ekkert annað en að splæsa saman tveim netsnúrum sé að valda þessu, þó svo að merkið sé gott í gegnum tölvu eða þá að þessi router sé bilaður.

Hvernig er það, eru þessir myndlyklar svona rosalega viðkvæmir þegar kemur að merkinu?
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af GuðjónR »

Ég myndi alls ekki hafa IPTV á switch, langbest að beintengja það við routerinn.
Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2259
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af Plushy »

Já, mjög viðkvæmir

Fyrst myndi ég prófa að beintengja beint úr myndlykli í router og sjá hvort að vandamálið haldi áfram, þá fyrst er hægt að skoða hvort að það sé eitthvað að routernum.
Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af Pandemic »

Jæja, þá er búið að athuga með Switchin og hann er ekki vandamálið.
Einhverjar fleiri hugmyndir?
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af appel »

PM'aðu á mig símanúmerinu þínu, reyni að kíkja á þetta á morgun fyrir þig.
*-*
Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2010
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarps Símans vandamál

Póstur af tdog »

Mig minnir að ég hafi sett upp ljósnetið hjá þér, það ætti að vera þokkalega gert. Gæti verið ónýtur splitter?
EDIT
Splitter, switch segi ég.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Svara