Grafík vesen með ferðavél..(Ati Mobility Radeon 9700, 128mb)

Svara

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Grafík vesen með ferðavél..(Ati Mobility Radeon 9700, 128mb)

Póstur af DippeR »

Ég er í smá veseni hérna..

Ég keypti mér mitac ferðavél frá Start.is - http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=759

Allt gekk vel í upphafi, gat keyrt leikina tímunum saman o.s.frv.

En núna virðast þeir taka upp á því, þá sérstaklega bf 1942 & sw:kotor að frjósa. BF er líka á tímum óspilanlegur vegna truflana á skjánum (Svartar rendur sem færast lóðrétt eftir skjánum).

Ég hef einnig lent í vægum truflunum á desktoppinu.

Ég held að þetta sé driver mál.

En hér kemur það skuggalega, ég get ekki sett upp nýjustu Catalyst driverana því ég fæ því alltaf slengt í andlitið á mér að ég sé ekki með vélbúnað né hugbúnað til að keyra þá á. Sem er að sjálfsögðu algjört rugl, ef marka má device manager.

Síðan er annað sem er skuggalegt, ég sé 3 default monitora í device anager sem getur varla talist eðlilegt og þegar ég reyni að uppfæra driverana á þeim þá finnur vélin enga (Né hjá windowsupdate).

Hefur einhver elnt í svipuðu?
p.s. er með XP Pro + SP2
kv,
DippeR
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

dude! þú notar ekki catalyst með fartölvu! það eru sérsmíðaðir driverar fyrir fartölvu skjákort.
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Póstur af Daz »

Kom vandamálið fyrst upp eftir að þú settir upp SP2? Eftir að þú uppfærðir einhvern skjákortsdriver? Eftir að þú uppfærðir eitthvað?

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

gnarr skrifaði:dude! þú notar ekki catalyst með fartölvu! það eru sérsmíðaðir driverar fyrir fartölvu skjákort.


Ég googlaði líka eftir driverum fyrir skjákortið, fæ samt upp svipaða villu..

"INF error, Video drver not found"

wtF?
kv,
DippeR
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

þú verður að nota sérsmíðaða drivera sem eru skrifaðir sérstaklega fyrir móðurborðið þitt, mjög líklega fra Mitac.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

Daz skrifaði:Kom vandamálið fyrst upp eftir að þú settir upp SP2? Eftir að þú uppfærðir einhvern skjákortsdriver? Eftir að þú uppfærðir eitthvað?


Ef ég bara vissi nákvæmlega eftir hvað :?

Kotor átti það reyndar alltaf til að frjósa ..

Skrítið samt að ég gat alveg spilað UT & Q3 í gær en síðan fer bf í klessu.. bf runnar á d3d ekki satt?
kv,
DippeR
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Póstur af Daz »

En hefurðu eitthvað uppfært síðan þú fékkst tölvuna og varstu að fá svona "galla" í upphafi?
Og ein spurning, finnst þér tölvan ekkert hávær?

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

Daz skrifaði:En hefurðu eitthvað uppfært síðan þú fékkst tölvuna og varstu að fá svona "galla" í upphafi?
Og ein spurning, finnst þér tölvan ekkert hávær?


Kotor hefur alltaf látið illa, bf var fínn fyrsta kvöldið sem ég spilaði hann og nei.. Sætti mig við hávaðann fyrir svona öfluga vél :p

keypti meira að segja fartölvukælingu frá start líka :)
kv,
DippeR

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

Sér enginn neitt að því að ég sjái 3x default monitor í device manager??

Ég er farinn að halda að það sé að orsaka einhver vandamál þar sem ég er ekki með vélina tengda í neina aðra skjái.

Þegar ég hef prófað að nota tv out og spila leikina á sjónvarpi hafa engar truflanir komið upp þar.
kv,
DippeR

Rori
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Fös 15. Ágú 2003 00:11
Staða: Ótengdur

Póstur af Rori »


Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

Ég er víst búinn að finna rót vandamálsins...

Skjá driverarnir mínir eru 3 ára gamlir :/

Þarf víst að finna mér nýja.. eyddi þónokkrum klst. í það í dag en ekkert gekk, ætla bara að hringja upp í Start á morgun og sjá hvort þeir geti beint mér á rétt braut.

Takk fyrir góð svör samt sem áður. :D
kv,
DippeR

nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Póstur af nomaad »

Ég er að lenda í vandræðum með svipaða vél (reyndar keypta í Hugveri).

Þetta lýsir sér þannig að allir leikir (allavega Doom3 og UT2004) frjósa eftir 2-3 mínútur. Mig grunaði strax AGP Fast Writes (sem virðist vera til þess eins að valda vandræðum) en ég finn engan stað til þess að slökkva á þeim; hvorki í BIOS-num eða í driver stillingum. Reyndar fann ég eitthvað sem heitir Write Combining, ég las mér til og það hljómaði svipað og Fast Writes og því slökkti ég á því. Leikir stöðvast eftir smástund en detta aftur inn í Windows með villu sem segir að það sé villa í drivernum.

Frekar leiðinlegt að lenda í þessu með glænýja vél. Ég get ekki talað við Hugver fyrr en á mánudag þannig að ég tékka kannski á Start eða Task í fyrramálið.
n:\>

Rori
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Fös 15. Ágú 2003 00:11
Staða: Ótengdur

Póstur af Rori »

Ég held að það sé opið til 2 á laugardögum hjá hugveri.

nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Póstur af nomaad »

Jæja, var að koma frá Start. Gaurinn alltaf hjálpsamur (þótt ég hafi ekki einu sinni keypt tölvuna hjá honum :D).

Driverarnir sem fylgja með tölvunni eru algert drasl. Hann sagði að Omega driverarnir virki, hann var búinn að spila FarCry í klst. án vandræða á þeim.

http://www.omegadrivers.net

Hann sagði líka að það væri mjög mikilvægt að uninstalla gamla drivernum .

Ég tékka á þessu betur í kvöld, læt vita.
n:\>
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

nomaad skrifaði:Jæja, var að koma frá Start. Gaurinn alltaf hjálpsamur (þótt ég hafi ekki einu sinni keypt tölvuna hjá honum :D).

Driverarnir sem fylgja með tölvunni eru algert drasl. Hann sagði að Omega driverarnir virki, hann var búinn að spila FarCry í klst. án vandræða á þeim.www.omegadrivers.net

Hann sagði líka að það væri mjög mikilvægt að uninstalla gamla drivernum .

Ég tékka á þessu betur í kvöld, læt vita.


slæm vinna? :lol:
"Give what you can, take what you need."

nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Póstur af nomaad »

Jebb, Omegadrivernarnir svínvirka. Var að klára fínan leik í UT2004 :D

Muna þetta 8050d eigendur:
1. Uninstalla driver í Control Panel -> Add/Remove Programs
2. Restarta
3. Setja upp Omega drivera (með FastWrites OFF)
4. Restarta
5. YOU ARE GOLDEN
n:\>

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Póstur af DippeR »

hehe jamm.. ég hringdi einmitt upp í start fyrir helgi og þá var mér bent á þetta. Hefur ekkert klikkað síðan :)
kv,
DippeR

Major Bummer
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 21:58
Staðsetning: ísland
Staða: Ótengdur

omegadrivers ?

Póstur af Major Bummer »

eg er i þessu sama mitac 8050D , driver veseni . kemur bara cannot find server þegar eg reyni ad fara inna þessa omegadriver sidu.

Höfundur
DippeR
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mán 07. Okt 2002 20:00
Staða: Ótengdur

Re: omegadrivers ?

Póstur af DippeR »

Major Bummer skrifaði:eg er i þessu sama mitac 8050D , driver veseni . kemur bara cannot find server þegar eg reyni ad fara inna þessa omegadriver sidu.


Omegadrivers.net er það.. Ekki driver ef það er málið:)

En já.. kemur á daginn að það er e-ð að skjákortinu mínu og vélin er í viðgerð, bíð eftir að fá að heyra meira frá Start bara.
kv,
DippeR

Major Bummer
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 21:58
Staðsetning: ísland
Staða: Ótengdur

Póstur af Major Bummer »

þetta virkar ekki heldur kemur bara timed out

fann þetta annarstaðar : http://downloads.driverheaven.net/index4.htm
Last edited by Major Bummer on Mán 30. Ágú 2004 00:21, edited 1 time in total.

Major Bummer
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 21:58
Staðsetning: ísland
Staða: Ótengdur

Póstur af Major Bummer »

Skjámynd

Demon
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 363
Skráði sig: Þri 20. Jan 2004 20:13
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Póstur af Demon »

heh, það eiga nú allir að vita betur en að nota drivers sem fylgja með :P
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

já.. mér þætti gaman að sjá þig reyna það með fartölvu.
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

Demon
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 363
Skráði sig: Þri 20. Jan 2004 20:13
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Póstur af Demon »

gnarr skrifaði:já.. mér þætti gaman að sjá þig reyna það með fartölvu.

eh, I did?
Ég gerði það með mína ferðatölvu :P
Svara