Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
hrafn1995
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Fös 28. Des 2012 19:21
Staða: Ótengdur

Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hrafn1995 »

Ég var að pæla, má ég, 18 ára gutti samkvæmt lögum drekka áfengi?
Ég hef bæði heyrt að það sé löglegt og að það sé ólöglegt, hvort er satt?
Skjámynd

demaNtur
1+1=10
Póstar: 1165
Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
Staðsetning: 192.168.1.254
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af demaNtur »

Já þú mátt drekka áfengi, enn mátt ekki eiga/geyma né kaupa það.
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL

Höfundur
hrafn1995
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Fös 28. Des 2012 19:21
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hrafn1995 »

demaNtur skrifaði:Já þú mátt drekka áfengi, enn mátt ekki eiga/geyma né kaupa það.
Er þetta galli í lögunum? hvernig á maður að geta drukkið áfengi án þess að eiga það/geyma það?
Skjámynd

hfwf
Of mikill frítími
Póstar: 1946
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hfwf »

Sopafyllerí baby ;)

JReykdal
Gúrú
Póstar: 554
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af JReykdal »

Það er bannað að afhenda ungmennum undir 20 ára áfengi og ungmenni undir 20 ára mega ekki hafa það undir höndum.

Hvort hægt sé að neyta áfengis án þess að hafa það undir höndum er æfing fyrir ykkur.
Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
Skjámynd

hfwf
Of mikill frítími
Póstar: 1946
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hfwf »

V. kafli.
Meðferð áfengis í landinu.
16. gr.
Áfengi má ekki afhenda né veita neinum, sem er bersýnilega ölvaður.
Óheimilt er að selja þeim manni áfengi, er sekur hefur gerst um óleyfilega sölu eða bruggun áfengis. Skylt er að tilkynna útsölustöðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins jafnóðum, hverjir gerst hafa sekir um óleyfilega sölu eða bruggun áfengis.
Yngri mönnum en 20 ára má ekki selja, veita eða afhenda áfengi með nokkrum hætti. Ávallt þegar ástæða er til að ætla, að kaupandi eða viðtakandi áfengis hafi ekki náð þessum aldri, skal sá, sem selur, veitir eða afhendir það, láta hlutaðeiganda sanna aldur sinn á þann hátt að sýna nafnskírteini með mynd eða á annan fullnægjandi hátt.

If you wanna be technical.

Skippó
Nörd
Póstar: 136
Skráði sig: Mið 17. Apr 2013 18:01
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af Skippó »

Þú basicly mátt ekki drekka áfengi á almanna færi.
Intel i7 7700k, Gigabyte G1 Gaming GTX1070, 2x8 gb DDR4, PRIME Z270-K, Thermaltake 730W 80 Plus, Fractal Design Define R5.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af appel »

Ef þú ert úti í náttúrunni á göngu og kemur að læk þar sem í rennur 5% bjór frá náttúrunnar hendi, þá líklega er í lagi fyrir þig að seypa á því ef þú ert orðinn 18 ára.

Líklega yrði slíkum læk þó lokað fljót.
*-*
Skjámynd

hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hakkarin »

Ég held að þessi lumma um það að það megi ekki kaupa 20 en samt drekka 18 sé bara rugl. Hef stundum spurt fólk sem að veit eitthvað um þetta að þessu og alltaf fengið það svar að þetta sé ekki rétt.

Hvað er svon erfitt við að drekka bara 20? Persónulega þá var ég ekkert að flýta mér og drakk bara eftir að ég var orðinn 20.
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af Klaufi »

JReykdal skrifaði: Hvort hægt sé að neyta áfengis án þess að hafa það undir höndum er æfing fyrir ykkur.
Nota rör?
Mynd
Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af rango »

Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af dori »

rango skrifaði:Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Þá máttu ekki koma með það inní landið og í gegnum tollinn.
Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af rango »

dori skrifaði:
rango skrifaði:Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Þá máttu ekki koma með það inní landið og í gegnum tollinn.
Hvað ef danskur ríkisborgari kemur inn 18 með áfengi?

nonesenze
</Snillingur>
Póstar: 1064
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af nonesenze »

ef þú "finnur áfengi úti" og drekkur það heima hjá þér eða kunningja, og ekki á almannafæri, þá er það ekki bannað gegn lögum
Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p

sxf
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af sxf »

rango skrifaði:
dori skrifaði:
rango skrifaði:Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Þá máttu ekki koma með það inní landið og í gegnum tollinn.
Hvað ef danskur ríkisborgari kemur inn 18 með áfengi?
Danskur ríkisborgari þarf að fara eftir íslenskum lögum.
Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af rango »

sxf skrifaði:

Gangi þér vel að segja dönum það, Þússt þræla haldið og svoleiss. :-"
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af Nariur »

Klaufi skrifaði:
JReykdal skrifaði: Hvort hægt sé að neyta áfengis án þess að hafa það undir höndum er æfing fyrir ykkur.
Nota rör?
Það er þjófnaður.
rango skrifaði:
sxf skrifaði:
rango skrifaði:
dori skrifaði:
rango skrifaði:Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Þá máttu ekki koma með það inní landið og í gegnum tollinn.
Hvað ef danskur ríkisborgari kemur inn 18 með áfengi?
Danskur ríkisborgari þarf að fara eftir íslenskum lögum.
Gangi þér vel að segja dönum það, Þússt þræla haldið og svoleiss. :-"
Það er ekkert ákvæði í íslenskum lögum sem bannar neinum undir 20 ára að neyta áfengis eða að vera fullur. Hins vegar má enginn undir 20 ára eignast áfengi á neinn hátt, þ.e. ekki má selja eða gefa neinum undir 20 ára áfengi og (augljóslega) má ekki stela því eða brugga það. Það er líka bannað að skilja áfengi eftir handa (hvort sem er viljandi eða óviljandi) einstaklingi undir 20. Eini tæknilegi möguleikinn er ef einhver undir 20 finnur áfengi sem er sannanlega ekki í eigu neins.

Erum við ekki að tala um löglegar leiðir? Þú þarft ekki að fá dana til að flytja áfengið inn ef þú ætlast svo til að hann brjóti lögin. Ef þú ætlar að brjóta lögin geturðu bara fengið íslending til að fara í ríkið fyrir þig... eða bara farið á bar, oftast fá 18 ára afgreislu án spurninga.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af rango »

Nariur skrifaði:
Klaufi skrifaði:
JReykdal skrifaði: Hvort hægt sé að neyta áfengis án þess að hafa það undir höndum er æfing fyrir ykkur.
Nota rör?
Það er þjófnaður.
rango skrifaði:
sxf skrifaði:
rango skrifaði:
dori skrifaði:
rango skrifaði:Hvað ef ég kem með áfengi frá landi þar sem löglegt er að kaupa það?
Þá máttu ekki koma með það inní landið og í gegnum tollinn.
Hvað ef danskur ríkisborgari kemur inn 18 með áfengi?
Danskur ríkisborgari þarf að fara eftir íslenskum lögum.
Gangi þér vel að segja dönum það, Þússt þræla haldið og svoleiss. :-"
Það er ekkert ákvæði í íslenskum lögum sem bannar neinum undir 20 ára að neyta áfengis eða að vera fullur. Hins vegar má enginn undir 20 ára eignast áfengi á neinn hátt, þ.e. ekki má selja eða gefa neinum undir 20 ára áfengi og (augljóslega) má ekki stela því eða brugga það. Það er líka bannað að skilja áfengi eftir handa (hvort sem er viljandi eða óviljandi) einstaklingi undir 20. Eini tæknilegi möguleikinn er ef einhver undir 20 finnur áfengi sem er sannanlega ekki í eigu neins.

Erum við ekki að tala um löglegar leiðir? Þú þarft ekki að fá dana til að flytja áfengið inn ef þú ætlast svo til að hann brjóti lögin. Ef þú ætlar að brjóta lögin geturðu bara fengið íslending til að fara í ríkið fyrir þig... eða bara farið á bar, oftast fá 18 ára afgreislu án spurninga.
Ég er þá að spá hvort það sé í raun loophole þar sem ég eignaðist áfengið löglega.
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af dori »

Þú ert ekki að fara að finna eitthvað svona loophole í lögum um áfengi.
Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1115
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af g0tlife »

samt máttu vinna á bar 18 ára gamall sem er fáranlegt
Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold
Skjámynd

hfwf
Of mikill frítími
Póstar: 1946
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af hfwf »

g0tlife skrifaði:samt máttu vinna á bar 18 ára gamall sem er fáranlegt
Sem glasabarn, ekki á bar, þó margir barir brjóti þau lög.
Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 891
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Staða: Ótengdur

Re: Er það satt að 18 ára megi drekka áfengi smk. lögum?

Póstur af FriðrikH »

Lögreglan gæti ekki gert neitt við þig þegar þú ert að drekka 18 ára (nema að láta þig sofa úr þér á stöðinni ef þú værir með "óspektir á almannafæri" og taka af þér áfengið sem þú mátt ekki eiga), það væru alltaf þeir sem afhentu þér áfengið sem væru að brjóta lögin og gætu lent í sektum.
Svara