snjokaggl skrifaði:Dúndraðir þú HDD sem var í góðu lagi nema "háværari en SSD" í jörðina?
Ég hef alveg encounterað diska sem víbra meira en annar diskur af sömu tegund. Getur vel verið að það hafi verið eitthvað ólag á disknum en þessi viðbrögð eru alveg út úr kú hjá op.
hehe. vill taka það fram að ég er með er með einn ssd og einn hdd + þessi sem ég tók úr turninum. mér er alveg sama um nokkra þússara, ég kom af stað umræðu
þorri69 skrifaði:hehe. vill taka það fram að ég er með er með einn ssd og einn hdd + þessi sem ég tók úr turninum. mér er alveg sama um nokkra þússara, ég kom af stað umræðu
Já þú gerðir það all rækilega. "Þarna er á ferðinni maður með ójálfráðar handahreyfingar. Ekki rétta honum brothætta hluti!"
Hver hefur ekki fengið "nei" á einum stað en staðið á rétti sínum og fengið í gegn þá þjónustu sem hann á skilið hjá næsta aðila, yfirleitt skörinni hærra í valdastiganum?
Það sem þú gerðir er hreint út sagt fyrir neðan allar hellur og kemur þjónustunni hjá Tölvulistanum ekkert við. Sýnir bara að þú getur hagað þér eins og krakki. Gæti þegar ég les svona.
worghal skrifaði:það sem ég sé við þetta að þú tapaðir einhverjum þúsundköllum og TL græddu nokkra þúsundkalla.
TL töpuðu líklega á þessu þar sem að þeir misstu líkleg viðskipti við hann í framtíðinni. Ef að verkstæði TL hefði innihaldið fagmenn sem að tækju eftir svona galla í hörðum disk og einfaldlega látið hann hafa annan í staðinn hefðu allir unnið. Þrátt fyrir öfgakennd viðbrögð hans þá finnst mér starfsfólk á verkstæði TL ekki vera að gera sína vinnu, ég hef reynslu af því sjálfur.
Ég sé við þetta að hann hafi tapað einhverjum þúsundköllum og að TL hafi misst framtíðar kúnna, ekki grætt nokkra þúsundkalla.
Ég sé bara ofsreiði og stórt fail hjá viðskiptavin.
Fyrir utan að halda að verkstæðið sé viljandi Ekki að reyna að skipta út gölluðum hlut er kjánaskapur. Tölvulistinn í dag er langt í frá sama apparat og þegar Ásgeir snillingur var og hét og réð þar ríkjum.
Hef alltaf fengið topp þjónustu þar undanfarin og aldrei vesen að skipta út biluðum vörum.
Og ætlist þið til að þetta eigi að vera fyrstu viðbrögð fyrirtækja??? Taka orð viðskiptavinar trúanlegu, taka til baka búnað sem þeir geta ekki lengur ábyrgst að hafi fengið góða meðferð (frá því viðskiptavinur keypti vöru og þangað til hann skilaði henni), láta viðskiptavin hafa nýja vöru og hvað svo?? Selja sem nýtt/notað, senda í ábyrgðarviðgerð til framleiðanda og fá svo mögulega aftur í hausinn.
Það er standard praktík að gera ráð fyrir að búnaður sé í lagi ef ekkert finnst athugavert að hlutnum við fyrstu skoðun. Hef lengið verið í þessum bransa og staðið báðum megin við borðið.
En bottom line er að ef þetta er þín leið til að tjá þína skoðun þá er það bara í fínu lagi. En að halda því fram að þjónusta á einhverjum stað sé verri en ella því þú fékkst ekki þínu framgengt í fyrstu tilraun er bara fásinna. Haltu áfram að veifa puttanum. Það eru eflaust fleiri sem veifa öðrum putta á móti fegnir að losna við svona viðskiptavin.