Ofhitnun?
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 4
- Skráði sig: Þri 28. Maí 2013 00:24
- Staða: Ótengdur
Ofhitnun?
Ég hef verið að spila stóra leiki á fartölvunni minni líkt og WoW, LoL og skyrim. Einnig fékk ég mér Darksiders 1 um daginn og það sama gerist við þann leik. Núna undanfarna 2 mánuði slekkur hún skyndilega á sér þegar ég er í leik og hef ég tekið eftir því að hún verði mjög heit þegar þetta gerist og var ég að spá hvort að ég þurfi fara með tölvuna í rykhreinsun eða hvort að það sé eitthvað annað að?
Þessi tölva er af gerðinni Packard bell og er rúmlega 2 ára.
Packard bell:
OS-windows 7, 64bit
Processor-Intel core i5
Graphics-Nvidia Geforce GT540M, 2gb VRAM
Memory-8gb DDR3 memory
Storage-750gb HDD
Þessi tölva er af gerðinni Packard bell og er rúmlega 2 ára.
Packard bell:
OS-windows 7, 64bit
Processor-Intel core i5
Graphics-Nvidia Geforce GT540M, 2gb VRAM
Memory-8gb DDR3 memory
Storage-750gb HDD
Last edited by Rykhreinsun on Þri 28. Maí 2013 01:21, edited 2 times in total.
Re: Vantar upplýsingar varðandi bilun á tölvu
Það þurfa nær allar fartölvur á rykhreinsun að halda reglulega, væri ekkert óeðlilegt við það ef vélin væri stútfull af ryki eftir 2 ára notkun. Ef þetta er ekki hreinsað reglulega endar vélin bara á því að slá út vegna ofhitnunar. Of heit vél þýðir alltaf minni líftími á vélbúnaði, svo það er um að gera að láta rykhreinsa hana, og skipta um hitaleiðandi krem í leiðinni.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 4
- Skráði sig: Þri 28. Maí 2013 00:24
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
Hvaða tölvubúð væri hentugast að fara í til þess að rykhreinsa?
Re: Ofhitnun?
Ég fór með mína vél í Rykhreinsun og að láta skipta um kælikrem í Tölvutækni. Topp þjónusta og mjög sáttur með tölvuna
Var orðinn 3. Ára og trooðfull af ryki.
Var orðinn 3. Ára og trooðfull af ryki.
I5 4670k @ 3,4| GA-Z87X-D3H| 8Gb DDR3 | Asus Gtx 770 |1TB HDD |64 GB Crucial M4| CM 720W| CM 690
Re: Ofhitnun?
Hvað borgaru fyrir slíkt þar?KrissiP skrifaði:Ég fór með mína vél í Rykhreinsun og að láta skipta um kælikrem í Tölvutækni. Topp þjónusta og mjög sáttur með tölvuna
Var orðinn 3. Ára og trooðfull af ryki.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Re: Ofhitnun?
Já, væri fínt að fá verðsamanburð á rykhreinsun
Re: Ofhitnun?
Eitthvað um 8 þúsund, man ekki nákvæma upphæðAntiTrust skrifaði:Hvað borgaru fyrir slíkt þar?KrissiP skrifaði:Ég fór með mína vél í Rykhreinsun og að láta skipta um kælikrem í Tölvutækni. Topp þjónusta og mjög sáttur með tölvuna
Var orðinn 3. Ára og trooðfull af ryki.
I5 4670k @ 3,4| GA-Z87X-D3H| 8Gb DDR3 | Asus Gtx 770 |1TB HDD |64 GB Crucial M4| CM 720W| CM 690
Re: Ofhitnun?
daaang it, hef semsagt verið að vanrukka fólk allsvakalega, þegar hef verið að gera þetta fyrir vini og ættingja, rukka ég bara 1000-2000kr fyrir
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
Re: Ofhitnun?
Það er munur á því að rykhreinsa og að blása með loftpressu inní tölvuna. Ég myndi passa mig á fólki sem segist ætla að gera þetta fyrir klink og fara frekar og borga aðeins meira fyrir þjónustu einhvers með þekkingu sem gerir þetta almennilega.
-
- Vaktari
- Póstar: 2037
- Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
Hvað er gert þegar maður fer með fartölvu í rykhreinsun, er hún alveg rifin í sundur? hef enga reynslu af fartölvum.
Re: Ofhitnun?
Ég veit ekki hvað er almennt gert þegar þú ferð með fartölvu í rykhreinsun en til að ná alveg útúr henni þá þarf að taka hana í sundur. Í besta falli geturðu aðeins losað um rykið með því að blása inní hana (í versta falli brotið eitthvað).Yawnk skrifaði:Hvað er gert þegar maður fer með fartölvu í rykhreinsun, er hún alveg rifin í sundur? hef enga reynslu af fartölvum.
Til að skipta um kælikrem (sem er gott að gera við og við, sérstaklega ef það er svona "stock" krem fyrir) þá þarf hvort eð er að taka hana í sundur.
Re: Ofhitnun?
Ef það á að gera þetta almennilega þarf að taka kæliunitið úr tölvunni og þegar þú ert búinn að því er náttúrulega sjálfsagt að skipta um kælikremið líka í leiðinni.
Re: Ofhitnun?
Ég lét skipta um kælikrem líka, er með HP vél sem þarf gersamlega að rífa í sundur.KrissiP skrifaði:Eitthvað um 8 þúsund, man ekki nákvæma upphæðAntiTrust skrifaði:Hvað borgaru fyrir slíkt þar?KrissiP skrifaði:Ég fór með mína vél í Rykhreinsun og að láta skipta um kælikrem í Tölvutækni. Topp þjónusta og mjög sáttur með tölvuna
Var orðinn 3. Ára og trooðfull af ryki.
Held það fari bara eftir því hvernig vél þú ert með.Yawnk skrifaði:Hvað er gert þegar maður fer með fartölvu í rykhreinsun, er hún alveg rifin í sundur? hef enga reynslu af fartölvum.
I5 4670k @ 3,4| GA-Z87X-D3H| 8Gb DDR3 | Asus Gtx 770 |1TB HDD |64 GB Crucial M4| CM 720W| CM 690
-
- Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
Þú gætir náttúrulega athugað hversu mikið vélin er að hitna.
Lítið forrit sem heitir HWmonitor getur sýnt þér það. En ég er samt eginlea alveg viss um að það sé kominn tími á rikhreinsun. En væri samt gaman fyrir þig/okkur að sjá hversu miklu það skilar
Lítið forrit sem heitir HWmonitor getur sýnt þér það. En ég er samt eginlea alveg viss um að það sé kominn tími á rikhreinsun. En væri samt gaman fyrir þig/okkur að sjá hversu miklu það skilar
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
Re: Ofhitnun?
Persónulega hef ég yfirleitt verið með fast verð á rykhreinsun á fartölvum, svo lengi sem það þarf að rífa þær alveg í sundur, og hef þá verið að rukka 5þús fyrir rykhreinsun og nýtt krem. Ef það þarf bara að taka lok af botninum og taka kælielementið af og skipta um krem hef ég verið að rukka 2500kr.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
- Vaktari
- Póstar: 2259
- Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
- Staðsetning: Grafarvogur
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
flest verkstæði rukka tímagjald af rykhreinsunni. Oftast er það samt bara 1/2 yfir í 1 tíma en stundum lengur eftir gerð tölvu og hversu strembið það getur verið að taka hana alveg í sundur og láta aftur saman, þess vegna má reikna með alveg 5-10þ í alhreinsun; rykhreinsun og kælikrem fjarlægt og látið nýtt.
Sniðugast að þekkja fólk sem getur tekið þetta að sér eins og t.d. Antitrust lítur út fyrir að hafa gert til að halda kostnaði í lágmarki
Sniðugast að þekkja fólk sem getur tekið þetta að sér eins og t.d. Antitrust lítur út fyrir að hafa gert til að halda kostnaði í lágmarki
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 4
- Skráði sig: Þri 28. Maí 2013 00:24
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
Fór með tölvuna í tölvutek, lét rykhreinsa og skipta um kælikrem, kostaði 3990. Get núna spilað leikina án þess að tölvan slökkvi á sér. Takk fyrir ábendingarnar.
-
- spjallið.is
- Póstar: 431
- Skráði sig: Sun 04. Nóv 2012 05:21
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Ofhitnun?
má ég sp. hvað gerðu þeir þegar þeir rykhreinsuðu? ég var lika að lenda í ofhitunarvandamálum, venjulega kælikremið í 1 og halft ar, skipti um og rykhreinsaði, bara blés úr ventunum þar sem heita loftið leitar út, og ég fór frá 95°-100° í 85-90° á örgjörva og 85-97°- 80-93° á skjákorti átti til að fara aðeins hærra en 100 gráður á örgjörva og leitaði í 100 gráður á skjákorti, en er eitthvað hægt að fá þetta meira niður eða? ég er með hana undir notepal x2 kælingu á meðan ég spila leiki
Mobo: MSI B85M-E33 CPU: Intel Core i5 4670k Ram: 8gb 1600mhz Graphics: GTX 650 ti 1gb