Hvað er málið í skjáum í dag?

Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Staðsetning: Siglufjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er málið í skjáum í dag?

Póstur af AciD_RaiN »

appel skrifaði:Erfitt líka að bera saman skjái nema þeir séu hlið við hlið.

Eitt sem VA panelar hafa umfram IPS skjái er að þeir hafa dekkri svarta. Annars hef ég unnið við VA LED skjái áður og finnst þeir bara ágætir.

En ég hugsaði líka sem svo að best væri að eyða sem minnstu fé í sem bestan skjá, þangað til stærri og flottari skjáir verða ódýrari, vonandi eftir 2-3 ár.

En mestu máli skiptir er að nýji skjárinn sé betri en sá gamli, sem hann er.
Vonandi fyrirgefurðu mér fyrir að stela svona þræðinum þínum en fyrir þennan venjulega notanda sem er hugsanlega að fara að nota solid works og photoshop og auðvitað vafra á netinu og lesa, og segjum sem svo að þeir myndu báðir kosta það sama, myndirðu þá ennþá mæla með benq skjánum? (einn kominn með geðveika bakþanka)
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er málið í skjáum í dag?

Póstur af appel »

AciD_RaiN skrifaði:

Ég gat ekki borið saman skjáina hlið við hlið, þannig að ég veit ekki. (btw. verslanir eiga að hafa alla sambærilega skjái hlið við hlið fyrir samanburð...rosalegur skortur á því!!).

Miðað við það sem ég hef lesið þá er viewing angle og litir betri í IPS skjáum. Viewing angle er svosem ekki issue á VA skjáum finnst mér, þannig að eftir stendur litir. Fyrir venjulega notkun skiptir ekki miklu máli hvort skjár getur birt 80% af RGB eða 90% af RGB. En líklega skiptir það máli í ljósmyndavinnslu og þvíumlíkt.

En ég get skilið þig, er sjálfur með ákvarðanafælni á háu stigi. Ég er búinn að nota BenQ'inn núna í nokkrar klukkustundir og líkar bara vel við, og sé alls ekki eftir þessum 49.900 kr. sem ég eyddi í hann. Hann er betri en gamli skjárinn minn (Dell 2405FPW) sem gat birt miklu fleiri liti held ég.

Ef peningar er ekki issue, þá myndi maður fá sér 30" dell. En fyrir 49k þá er benq málið.

Svo er það, skjáir verða aldrei betri en augun í þér eru. Heyrnardaufur maður færi aldrei að eyða hálfri milljón í svaka hljómgræjur.
*-*
Skjámynd

gRIMwORLD
Tölvutryllir
Póstar: 645
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er málið í skjáum í dag?

Póstur af gRIMwORLD »

appel skrifaði: En ég get skilið þig, er sjálfur með ákvarðanafælni á háu stigi. Ég er búinn að nota BenQ'inn núna í nokkrar klukkustundir og líkar bara vel við, og sé alls ekki eftir þessum 49.900 kr. sem ég eyddi í hann. Hann er betri en gamli skjárinn minn (Dell 2405FPW) sem gat birt miklu fleiri liti held ég.
Það er í raun ekki hægt að bera saman liti í skjám nema vera búinn að calibrate'a þá báða. Alveg ótrúlegt hvað sumir skjáir eru nálægt 99% default (þeas fyrir calibration) á meðan aðrir eru alveg út og suður.
SAMSUNG GALAXY S8+ | Stock
Lenovo P50 | Xeon E3-1505M | 32GB DDR4 2133MHz | OS - 256GB NVMe | 2 x 24" HP E241i
Antec P190 | Gigabyte Z87X-UD5H | i7 4770K 3.5GHz | GTX 1070 8GB | CM 212 EVO | 32GB 2400Mhz | 120G Kingston SSD | ~8,7TB Storage
Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Staðsetning: Siglufjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er málið í skjáum í dag?

Póstur af AciD_RaiN »

Djöfull eruð þið erfiðir maður !! Síðasti tölvuskjár sem ég átti var CRT og svo á ég einhvern 17" dell svona til hliðar sem er með brotinn fót og alles.... 10 þús kall er alveg matur í 2 vikur !! En maður er líka að vonast til þess að þurfa þá ekkert að kaupa sér skjá í nánustu framtíð :P Svo er bezelinn á honum lítill sem enginn sem er bara svo stór plús......
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er málið í skjáum í dag?

Póstur af appel »

AciD_RaiN skrifaði:Djöfull eruð þið erfiðir maður !! Síðasti tölvuskjár sem ég átti var CRT og svo á ég einhvern 17" dell svona til hliðar sem er með brotinn fót og alles.... 10 þús kall er alveg matur í 2 vikur !! En maður er líka að vonast til þess að þurfa þá ekkert að kaupa sér skjá í nánustu framtíð :P Svo er bezelinn á honum lítill sem enginn sem er bara svo stór plús......
Bezilinn truflar mig ekki, nema ég sé að fara setja saman 2 eða 3 skjái.
*-*
Svara