varðandi kælingu

Svara

Höfundur
Plee
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Þri 25. Maí 2004 21:02
Staðsetning: 112 Reykjavík
Staða: Ótengdur

varðandi kælingu

Póstur af Plee »

svo eru mál með vexti að ég var að fá mér nýjan kassa, Thermaltake Xaser III (að ég held) og hann tekur 7 stk. viftur.

2 aftan á, ein svona í miðjunni og ein fyrir ofan.
2 á vinstri hlið kassans, ein í miðjunni og ein fyrir neðan.
2 á framhliðinni, ein alveg neðst við gólfið og hin rétt fyrir ofan.
1 ofan á kassanum.

til að gera almennilegt loftflæði og gera allt rétt þá langaði mig að fá álit frá ykkur tölvugúrúunum :D að sjálfsögðu útaf því að kalda loftið er niðri og heita uppi, þá eru væntanlega báðar vifturnar aftan á sem blása út, eða á kannski neðri að blása inn, þar sem hún er alveg í miðjunni? Þessar 2 á hliðinni ættu að blása inn skv. heita loftinu uppi og kalda niðri, en þá blæs ein þeirra á örgjörvann, og þá beint á móti heita loftinu sem blæs frá honum með örgjörvaviftunni. hvernig ætti ég að hafa þær?

Á framhliðinni blása þær báðar inn, að sjálfsögðu, og svo viftan ofan á kassanum blæs út.

ég gerði smá skýringarmynd(augljóslega í flýti samt :wink: )
Mynd

Rauða strikið merkir miðjuna, svo að það sést nokkurn veginn hvar vifturnar eru staðsettar. Viftur 2 og 3 eru aftan á, 4 og 5 vinstri hlið kassans og svo 6 og 7 framhliðin.

kk. Palli

P.S. ekki lumar einhver ykkar á tutorial yfir hvernig á að koma Sleeving kit yfir snúrur? mig skortir rökhugsun og veit ekkert hvernig ég á að setja þetta á :D ég er btw með þetta http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=819
Hnje.

aRnor`
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 16:03
Staðsetning: Reykjavik
Staða: Ótengdur

Póstur af aRnor` »

Þetta teygjist alveg slatta mikið. Þannig þú þarft ekkert að taka tengin af :P

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Þetta tegist bara fjandi hafi það ekki nógu mikið :evil:

aRnor`
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 16:03
Staðsetning: Reykjavik
Staða: Ótengdur

Póstur af aRnor` »

Nær Kannski ekki yfir stóra tengið sem fer í móbóið frá Psu. En allt annað sleppur.

Zkari
Staða: Ótengdur

Póstur af Zkari »

gumol er svo mikill nýliði að hann gat ekki sett svona cable sleeving á hjá sér án þess að eyðileggja viftustýringuna sína :P :D

Hlynzi
FanBoy
Póstar: 767
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Póstur af Hlynzi »

Ég held að hagkvæmast sé að láta viftur að framan blása lofti inní kassann, því vegna rökhugsunar að þá er yfirleitt eitthvað lokað rými bakvið tölvuna.
Svo má blása heita loftinu í lokaða umhverfið að einhverju leiti, þangað til það kemst ekki meira fyrir. Held að það sé ósniðugt að hafa viftu ofan á kassanum, einfaldllega vegna reynslu minnar á notkun á mínum kassa, sem fótaskemil og pappírs geymslu ;)

Þetta sleeving á að vera mjög einfallt, hjá mér þurfti ég að vefja því nokkuð marga hringi utan um kaplana. En þetta á að vera skorið eftir miðju (á sumum kapal hulsum) og það er einfallt að setja þannig á.
Hlynur
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pandemic »

Sko með Vantec Cable sleeving kit er ætlast til að taka molex tengin af ef þú gerir það ekki ertu að gera allt vitlaust og þú ert að nota kolvitlausan sleeving kapall

aRnor`
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 16:03
Staðsetning: Reykjavik
Staða: Ótengdur

Póstur af aRnor` »

The Vantec Cable Sleeving Kit is the ideal way to eliminate these problems. The braided sleeve is expandable up to 150%, making it easy to slip over any plugs or connectors. Made of flexible material, the Vantec Cable Sleeving Kit will not break or crack. Sleeving your cables not only makes the inside inside of your computer look cleaner,
ahah, þetta er tekið af linknum sem hann gaf
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=819

Höfundur
Plee
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Þri 25. Maí 2004 21:02
Staðsetning: 112 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Plee »

Aiiiit takk fyrir hjálpina allir :D en ég komst að þessu með sleeving kittið það er ekkert mál að setja það á(virkar eins og kínversku fingragildrurnar :wink:).

En með vifturnar er ég ekki viss, ætla að prófa fyrst að hafa 1 2 3 og 4 út, 5 6 7 inn, þó að ég er ekki viss með 4 og 5. Ætla bara að reyna að fikra mig smávegis áfram. Ég verð aldrei kominn með allt í kassann fyrr en eftir svona viku anyways.
Hnje.

BlitZ3r
spjallið.is
Póstar: 450
Skráði sig: Sun 06. Jún 2004 04:47
Staðsetning: Westmannaeyjar
Staða: Ótengdur

Póstur af BlitZ3r »

hér er mín tillaga
Viðhengi
kassinn.JPG
kassinn.JPG (21.99 KiB) Skoðað 876 sinnum
BlitZ3r > ByzanT-
-
Intel p4 2.6 @ 3.06 MSI 848p-Neo 2x256mb kingston 400mhz 120gb S-ATA WD diskur PowerColor RADEON 9800 PRO 256mb
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pandemic »

Þetta er meira bölvaða ruglið hjá þessum framleiðanda Ef þú ætlar að gera þetta eins og þeir segja verður sleeving alltof stórt utan um kaplana
1#Hérna sést hvernig á að gera þetta
2#Hérna sést hvernig á að gera þetta

Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1802
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Staða: Ótengdur

Póstur af Snorrmund »

GEturn einhver speglað þessu einhvert :)

Höfundur
Plee
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Þri 25. Maí 2004 21:02
Staðsetning: 112 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Plee »

ég þurfti ekki að skera eftir miðjunni, það er hægt að teygja þetta alveg nóg til að komast yfir flest tengin :D
Hnje.

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kristjanm »

Þú hlýtur að geta fundið upplýsingar um þetta á netinu, annaðhvort á síðu Thermaltake eða þá bara að leita á google.

Annars geturðu tekið forrit eins og SpeedFan til að mæla hitann á hinum ýmsu hlutum í tölvunni, og borið saman hinar mismunandi viftustillingar.

Annars það sem ég myndi halda: Báðar vifturnar að aftan og viftan uppi blása út, hinar inn. Það tryggir svakalegt loftflæði fyrir örgjörva og skjákort.

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Zkari skrifaði:gumol er svo mikill nýliði að hann gat ekki sett svona cable sleeving á hjá sér án þess að eyðileggja viftustýringuna sína :P :D
:(
Þjónustu hennar er sárt saknað :(
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

hvernig fórstu að því að skemma hana?
"Give what you can, take what you need."

Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Gumol... kommonn.. haha

meira að segja ég fer létt með svona .. öss...

og ég myndi kalla mig nooba í svona moddun og fikteríi...
Svara