Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?


DabbiGj
Gúrú
Póstar: 507
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af DabbiGj »

Það væri gaman að fá umræðu sem væri á almennilegu plani og sjá menn vitna í tölur frekar en að seinasti þáttur af andralandi hafi verið lélegur og að hann eigi ekki skilið að vera framleiddur.

hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af hkr »

DabbiGj skrifaði:Það væri gaman að fá umræðu sem væri á almennilegu plani og sjá menn vitna í tölur frekar en að seinasti þáttur af andralandi hafi verið lélegur og að hann eigi ekki skilið að vera framleiddur.
Góð hugmynd, mér finnst t.d. að þess hérna fyrir neðan ætti að byrja að útskýra hvar hann fær sýnar tölur :-"
DabbiGj skrifaði: Það eru sirka 7 sjónvarpsstöðvar á landinu og ein þeirra er ríkisrekin, fólkið í landinu vill fá innlenda menningarstarfsemi og þeim sem þykir þetta svo hræðilegt geta flust til t.d. bandaríkjana og farið að niðurgreiða maísræktun þar frekar.

Kvikmyndageirin hefur á seinustu tveimur árum pumpað milljörðum inní landið í gegnum erlend kvikmyndaverkefni auk þess að lítið hefur farið fyrir risaauglýsingum sem hafa verið teknar hér upp og kostað tugi og hátt í hundruði milljóna, það má ekki fara að blanda honum saman við báknið sem að Rúv er.

Íslenskar kvikmyndir eru að miklu leyti fjármagnaðar t.d. úr samevrópskum og norrænum kvikmyndasjóðum þarsem ða íslendingar hafa farið í víking og sótt margfallt meira fjármagn en þeir hafa lagt til seinustu ár.

322
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Mán 17. Jan 2011 19:33
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af 322 »

Mér finnst að það eigi að leggja niður löggæslu og heilbrigðisstéttina. Sogar peninga úr kerfinu og skilar engu til baka - annað en kvikmyndageirinn.
Skjámynd

Minuz1
1+1=10
Póstar: 1162
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Minuz1 »

DabbiGj skrifaði:Það væri gaman að fá umræðu sem væri á almennilegu plani og sjá menn vitna í tölur frekar en að seinasti þáttur af andralandi hafi verið lélegur og að hann eigi ekki skilið að vera framleiddur.
Það sem gerir þessa umræðu svona erfiða er einmitt að smekkur fólks er mismunandi "beauty is in the eye of the beholder"
Þess vegna verður að það sama að gilda um allt...ekki hægt að dæma eitthvað verðlaust útaf persónulegu áliti.

Þurfum einfaldlega að setjast niður og segja hvað á ríkið að borga, síðan ákveða hvernig eigi að fjármagna hvern lið fyrir sig.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af hakkarin »

322 skrifaði:Mér finnst að það eigi að leggja niður löggæslu og heilbrigðisstéttina. Sogar peninga úr kerfinu og skilar engu til baka - annað en kvikmyndageirinn.
'Ætla rétt að vona að þetta sé haldhæðni...
Svara