Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Staða: Ótengdur

Póstur af hakkarin »

Finnst fólki það í alvörunni vera peningana virði?

Mér finnst þetta vera heimskuleg notkun á penningum þjóðarinnar á sama tíma og það vantar penning á sjúkrahúsin.

Af hverju erum við að borga skatta til þess að eitthvað fólk geti framleitt eitthvað það allra slappasta og ófyndnasta sjónvarpsefni sem að sögur fara af???

Af hverju er þetta ekki bara í einkarekstri? Þar er ekki eins og þetta séu eitthverjar lífsnauðsynjar sem við VERÐUM að hafa eins og heilsugæslu eða lögreglu!

Djö.....

Það fer svo taugarnar á mér að hugsa til þess hvað það er mikill penningur sem fer í eitthverjar svona ónauðsynjar. Íslenkst sjónvarpsefni, leikhús, list og svo framvegis...

Það á að hætta þessu rugli og nota penningana annarstaðar eða þá lækka skattana.

Finnst ykkur þessir hlutir vera penninga virði?

halldorjonz
vélbúnaðarpervert
Póstar: 994
Skráði sig: Þri 11. Des 2007 21:23
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af halldorjonz »

hakkarin skrifaði:Finnst fólki það í alvörunni vera peningana virði?

Finnst ykkur þessir hlutir vera penninga virði?
:happy
Skjámynd

hagur
Vaktari
Póstar: 2917
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af hagur »

hakkarin skrifaði:Finnst fólki það í alvörunni vera peningana virði?

... allra slappasta og ófyndnasta sjónvarpsefni sem að sögur fara af???
Þín skoðun ... ekki allir með sömu skoðun.

steinarorri
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af steinarorri »

hakkarin skrifaði:Finnst fólki það í alvörunni vera peningana virði?

hakkarin skrifaði:Af hverju erum við að borga skatta til þess að eitthvað fólk geti framleitt eitthvað það allra slappasta og ófyndnasta sjónvarpsefni sem að sögur fara af???
Hugsa að sá peningur sem fari í þetta frá ríkinu skili sér yfirleitt til baka, sérstaklega í kvikmyndageiranum
hakkarin skrifaði:Af hverju er þetta ekki bara í einkarekstri?
Veit ekki betur en Stöð 2 og Skár einn standi sig ágætlega í að útvega íslenskt sjónvarpsefni í einkarekstri... ef þú ert að tala um það sem kemur frá Rúv þá er ýmislegt gott efni sem e.t.v. stendur ekki undir sér en á fullan rétt á sér sbr. heimildarmyndir og slíkt
hakkarin skrifaði:Þar er ekki eins og þetta séu eitthverjar lífsnauðsynjar sem við VERÐUM að hafa eins og heilsugæslu eða lögreglu!
Eins mikilvægt og það er að halda uppi góðri heilsugæslu og löggæslu er list líka nauðsynleg. ég er í heilbrigðistengdu námi og starfi og veit að MARGT mætti fara þar betur, en við erum líka að gera mjög margt gott
hakkarin skrifaði:Það fer svo taugarnar á mér að hugsa til þess hvað það er mikill penningur sem fer í eitthverjar svona ónauðsynjar. Íslenkst sjónvarpsefni, leikhús, list og svo framvegis...
lífið væri nú lítið skemmtilegt ef engin væri listin
hakkarin skrifaði:Það á að hætta þessu rugli og nota penningana annarstaðar eða þá lækka skattana.
Ok
hakkarin skrifaði:Finnst ykkur þessir hlutir vera penninga virði?
flest já, e.t.v. mætti minnka kostnað við Rúv allverulega svona fyrst þeir eru á auglýsingamarkaði á annað borð (sem þeir ættu auðvitað ekki að vera)
Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Haxdal »

Af hverju erum við að borga skatta til þess að eitthvað fólk geti framleitt eitthvað það allra slappasta og ófyndnasta sjónvarpsefni sem að sögur fara af???
Hugsa að sá peningur sem fari í þetta frá ríkinu skili sér yfirleitt til baka, sérstaklega í kvikmyndageiranum
Að mér best vitandi þá hafa sárafáar Íslenskar myndir skilað sér í hagnaði.

Annars er mér er alveg sama hvað einkaaðilar eyða sínum peningum í (Stöð2/Skjár1) en þegar það er opinber peningur að fara í eitthvað rusl þá er það bara sóun..
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58

Póstur af AntiTrust »

Ég er meira eða minna sammála OP. Þoli ekki íslenskt efni, og ef ég hefði áhuga á því myndi ég vilja hafa möguleikann á þvi að versla efnið í gegnum VOD þjónustu eða þá að fara fyrir-svo-löngu outdated leiðina og gerast áskrifandi að sjónvarpsstöð.

Sjálfsagt að fjármagna þann kostnað sem þarf til framleiðslu á fréttastofum og helstu almannavörnum, rest á að koma úr einkareknu batterýi.

.. Skulum heldur ekki ræða %#Ö#!"=&% listamannalaunin.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.

steinarorri
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af steinarorri »

Haxdal skrifaði:
Af hverju erum við að borga skatta til þess að eitthvað fólk geti framleitt eitthvað það allra slappasta og ófyndnasta sjónvarpsefni sem að sögur fara af???
Hugsa að sá peningur sem fari í þetta frá ríkinu skili sér yfirleitt til baka, sérstaklega í kvikmyndageiranum
Að mér best vitandi þá hafa sárafáar Íslenskar myndir skilað sér í hagnaði.

Annars er mér er alveg sama hvað einkaaðilar eyða sínum peningum í (Stöð2/Skjár1) en þegar það er opinber peningur að fara í eitthvað rusl þá er það bara sóun..
Það þarf ekki endilega að vera að íslenskar bíómyndir skili sér í blússandi hagnaði, en ég hugsa að kvikmyndaiðnaðurinn á Íslandi væri ekki svona "stór" ef engar íslenskar myndir væru gerðar. Þá er ég að tala t.d. um erlendar stórmyndir að koma hingað og kaupa mikla þjónustu frá einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa sérhæft sig í að þjónusta kvikmyndafyrirtæki, innlend sem erlend. Stundum þarf smá stuðning, sérstaklega í landi þar sem markaðurinn er lítill. Svo hafa kvikmyndir sumar sögulegt gildi sem ekki verður metið til fjár.
Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af hakkarin »

steinarorri skrifaði:

Ég er að tala um ríkisrekið efni. Mér er alveg sama hvað einkageyrinn gerir við sína penninga.

Hvað varðar sögulegt gildi þá er ég heldur ekki að fatta hvað þú meinar. Hvernig hafa bíómyndir "sögulegt gildi"? Finnst að það sé ekki hægt að bera eitthverjar afþreyingar myndir saman við menningarleg verðmæti eins og Þingvelli. Ég hef allavega aldrei séð neina Íslenska bíómynd sem að mér hefur fundist vera eitthvert stórverk sem þarf að varðveita. Það er svona ein og ein sem er góð, hinnar eru rusl eða frekar slappar.

steinarorri
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af steinarorri »

hakkarin skrifaði:

Það sem ég var að meina var að peningur sem er veittur í styrki getur skilað sér í þekkingu og fólki sem eru tilbúin að tækla stærri verkefni sem þá skila pening inn í kerfið (samanber allt það fólk sem vinnur við að þjónusta hér risa hollywoodmyndir). Einnig endurgreiðir ríkið hluta af skattinum sem erlend kvikmyndafyrirtæki borga... viltu hætta því? Hugsa að það skili mun meiri pening inn í hagkerfið heldur en að sleppa því.

Hvað sögulegt gildi get ég bent á nýlega mynd, Djúpið segir sögu sem e.t.v fáir höfðu heyrt. Ég var ekki endilega að meina að fólk í framtíðinni horfi á þessar myndir og segi "vá hvað þetta var góð mynd" heldur kunni það að meta söguna enda er myndin byggð á sönnum atburðum. Annað dæmi er Mótmælandi Íslands frá 2003 sem hefði örugglega aldrei orðið til ef ekki fyrir styrki. Sólskinsdrengurinn er þriðja dæmið. Þessar (seinni tvær) myndir stóðu örugglega ekki undir sér peningalega séð (ekki byggt á neinum rökum hjá mér, ég geri bara ráð fyrir því) en þær hafa samt mikið gildi fyrir íslenskt samfélag. Lífið snýst ekki bara um pening :)

DabbiGj
Gúrú
Póstar: 507
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af DabbiGj »

Svona til að byrja með að þá vinn ég við kvikmyndagerð og hef gert það síðan 2007 með hléum, ég er sjálfstætt starfandi og þau verkefni sem að ég vinn við og flestir þeir sem að mér standa nálægt í geiranum eru t.d. að þjónusta auglýsingagerð og svo kvikmyndir þarsem að stærstu fjárhæðirnar koma inn í gegnum erlendar myndir.

Það eru sirka 7 sjónvarpsstöðvar á landinu og ein þeirra er ríkisrekin, fólkið í landinu vill fá innlenda menningarstarfsemi og þeim sem þykir þetta svo hræðilegt geta flust til t.d. bandaríkjana og farið að niðurgreiða maísræktun þar frekar.

Það hefur verið flatur niðurskurður hjá ríkinu allstaðar og það hefur líka átt við kvikmyndagerð og aðrar listir, er Þjóðkirkjan t.d. nauðsynleg eða hvað með jöfnunarstyrki eða húshitunarstyrki til þeirra sem búa í dreifbýli ? Ef að þú ert ekki tröll væri gaman að fá einhver haldbær rök fyrir því hvað ætti að skera niður og hvar en ekki bara að hrauna yfir störf og hugðarefni annars fólks þarsem þetta er lítið land.

Kvikmyndageirin hefur á seinustu tveimur árum pumpað milljörðum inní landið í gegnum erlend kvikmyndaverkefni auk þess að lítið hefur farið fyrir risaauglýsingum sem hafa verið teknar hér upp og kostað tugi og hátt í hundruði milljóna, það má ekki fara að blanda honum saman við báknið sem að Rúv er.

Íslenskar kvikmyndir eru að miklu leyti fjármagnaðar t.d. úr samevrópskum og norrænum kvikmyndasjóðum þarsem ða íslendingar hafa farið í víking og sótt margfallt meira fjármagn en þeir hafa lagt til seinustu ár.

Talandi um lélegar íslenskar myndir sem hafa engin menningarleg verðmæti

Börn náttúrunnar
Hafið
Djúpið
Sódóma Reykjavík
Djöflaeyjan
Lalli Johns
Rokk í Reykjavík
Hlemmur
Mótmælandi íslands
Þetta er ekkert mál
Björgunarafrekið við látrabjarg
Bjarnfreðarson

Og þótt að þú hafir ekki þroska né skilning til að geta metið þessar myndir gerir þorri þjóðarinnar það.

Annars mæli ég með því að þú drífir þig í framboð og byrjir á því að hringja inn í útvarp sögu til að afla þér fylgis.
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af AntiTrust »

DabbiGj, ertu ekki að rugla saman ríkisfjármögnuðu sjónvarpsefni við einkafjármagnað? Eða stendur RÚV á bakvið e-ð af þessum myndum sem þú telur t.d. upp?
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

Minuz1
1+1=10
Póstar: 1162
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Minuz1 »

DabbiGj skrifaði:Svona til að byrja með að þá vinn ég við kvikmyndagerð og hef gert það síðan 2007 með hléum, ég er sjálfstætt starfandi og þau verkefni sem að ég vinn við og flestir þeir sem að mér standa nálægt í geiranum eru t.d. að þjónusta auglýsingagerð og svo kvikmyndir þarsem að stærstu fjárhæðirnar koma inn í gegnum erlendar myndir.

Það eru sirka 7 sjónvarpsstöðvar á landinu og ein þeirra er ríkisrekin, fólkið í landinu vill fá innlenda menningarstarfsemi og þeim sem þykir þetta svo hræðilegt geta flust til t.d. bandaríkjana og farið að niðurgreiða maísræktun þar frekar.

Það hefur verið flatur niðurskurður hjá ríkinu allstaðar og það hefur líka átt við kvikmyndagerð og aðrar listir, er Þjóðkirkjan t.d. nauðsynleg eða hvað með jöfnunarstyrki eða húshitunarstyrki til þeirra sem búa í dreifbýli ? Ef að þú ert ekki tröll væri gaman að fá einhver haldbær rök fyrir því hvað ætti að skera niður og hvar en ekki bara að hrauna yfir störf og hugðarefni annars fólks þarsem þetta er lítið land.

Kvikmyndageirin hefur á seinustu tveimur árum pumpað milljörðum inní landið í gegnum erlend kvikmyndaverkefni auk þess að lítið hefur farið fyrir risaauglýsingum sem hafa verið teknar hér upp og kostað tugi og hátt í hundruði milljóna, það má ekki fara að blanda honum saman við báknið sem að Rúv er.

Íslenskar kvikmyndir eru að miklu leyti fjármagnaðar t.d. úr samevrópskum og norrænum kvikmyndasjóðum þarsem ða íslendingar hafa farið í víking og sótt margfallt meira fjármagn en þeir hafa lagt til seinustu ár.

Talandi um lélegar íslenskar myndir sem hafa engin menningarleg verðmæti

Börn náttúrunnar
Hafið
Djúpið
Sódóma Reykjavík
Djöflaeyjan
Lalli Johns
Rokk í Reykjavík
Hlemmur
Mótmælandi íslands
Þetta er ekkert mál
Björgunarafrekið við látrabjarg
Bjarnfreðarson

Og þótt að þú hafir ekki þroska né skilning til að geta metið þessar myndir gerir þorri þjóðarinnar það.

Annars mæli ég með því að þú drífir þig í framboð og byrjir á því að hringja inn í útvarp sögu til að afla þér fylgis.
Menning er allt sem maðurinn gerir.
Þótt þú sért því ósammála að þær hafi verðmæti, þá þykir það einhverjum.
Ég er samt sammála því að fyrirtæki eiga ekki að vera á ríkisstyrkjum, ætti að lækka skatta í staðinn, þannig að það væri auðveldara að búa til kvikmyndir eða hvaða atvinnustarfssemi sem er.
Það er ótrúlega mikið af starfsgreinum sem lifa á skattpeningum venjulegs fólks, meðan aðrar greinar fá varla greidd laun fyrir mikilvæga þjónustu sem ætti að vera betur launað.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af appel »

Þetta pirrar mig nú minna. Reyndar er kvikmyndasjóður eitthvað fyrirbæri sem á ekki að vera til. Hinsvegar er endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hér á landi í góðu lagi. Ég hef aldrei verið á móti því að ríkið geri vel að einstökum greinum með því að lækka eða afnema skatta á þær, en ekki gefa peninga í gegnum sjóði í formi styrkja.

Það sem pirrar mig mest er allt annað sem stjórnvöld eru að gera með skattpeninga okkar sem mér finnst vera algjör óþarfi og utan þeirrar kjarnastarfssemi sem ríkið á að sjá um.

En þetta tengist þeim hugsunarhætti að stjórnvöld megi þetta, að það sé í raun ekkert sem takmarkar stjórnvöld frá því að taka inn skatta og úthluta þeim, í hvaða hugarefni sem varða íslenska þingmenn hverju sinni. Listamannalaun er eitt gott dæmi, eitthvað sem var fundið upp fyrir hundrað árum sem fátækrastyrkur handa listamönnum. Núna í dag fá allir fínustu listamennirnir þessi laun, þó þeir þurfi nú ekki þessa peninga til að éta. Svo er alltaf huglægt hvað "list" er.

Að einu leyti er kvikmyndasjóður skárri en listamannalaun, því hann hvetur til framleiðslu á kvikmyndum en listamannalaun borga bara listamanninum fyrir að sitja á rassinum, ríkið eignast ekki neitt sem listamaðurinn framleiðir á meðan hann er á launum frá ríkinu!
*-*

Storm
has spoken...
Póstar: 168
Skráði sig: Mán 30. Jún 2008 18:19
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Storm »

appel skrifaði:Þetta pirrar mig nú minna. Reyndar er kvikmyndasjóður eitthvað fyrirbæri sem á ekki að vera til. Hinsvegar er endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hér á landi í góðu lagi. Ég hef aldrei verið á móti því að ríkið geri vel að einstökum greinum með því að lækka eða afnema skatta á þær, en ekki gefa peninga í gegnum sjóði í formi styrkja.

Það sem pirrar mig mest er allt annað sem stjórnvöld eru að gera með skattpeninga okkar sem mér finnst vera algjör óþarfi og utan þeirrar kjarnastarfssemi sem ríkið á að sjá um.

En þetta tengist þeim hugsunarhætti að stjórnvöld megi þetta, að það sé í raun ekkert sem takmarkar stjórnvöld frá því að taka inn skatta og úthluta þeim, í hvaða hugarefni sem varða íslenska þingmenn hverju sinni. Listamannalaun er eitt gott dæmi, eitthvað sem var fundið upp fyrir hundrað árum sem fátækrastyrkur handa listamönnum. Núna í dag fá allir fínustu listamennirnir þessi laun, þó þeir þurfi nú ekki þessa peninga til að éta. Svo er alltaf huglægt hvað "list" er.

Að einu leyti er kvikmyndasjóður skárri en listamannalaun, því hann hvetur til framleiðslu á kvikmyndum en listamannalaun borga bara listamanninum fyrir að sitja á rassinum, ríkið eignast ekki neitt sem listamaðurinn framleiðir á meðan hann er á launum frá ríkinu!
Nú skaltu þú googla og fræðast um listamannalaun. Nei betra gerið þið það allir. Ókey ókey ég skal gera það fyrir ykkur.

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1270582/

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1202 ... 2008-03-26

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af biturk »

það á að afnema þessi listamannalaun, ef þú getur ekki lifað sjálfur á listinni þinni þá geturu bara fundið þér starf sem gefur þér innkomu, við hin þurfum að gera það!
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2455
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af HalistaX »

Sammála Op, íslenskt sjónvarps efni er með því versta í heiminum í dag. Hvað væri hægt að gera mikið fyrir sjúkrahúsin með peningunum sem fara í Rúv? Rúv fær pening frá ríkinu OG fær að selja auglýsingar, ætlar einhver að segja mér að auglýsingarnar séu ekki nóg til þess að kaupa réttinn á þessum hræðilegu 80's-90's myndum sem eru sýndar hverja einustu helgi? Og listamannslaunin? Hahaha, æhj...
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.
Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Haxdal »

DabbiGj skrifaði:
Börn náttúrunnar
Hafið
Djúpið
Sódóma Reykjavík
Djöflaeyjan
Lalli Johns
Rokk í Reykjavík
Hlemmur
Mótmælandi íslands
Þetta er ekkert mál
Björgunarafrekið við látrabjarg
Bjarnfreðarson
Einu myndirnar á þessum lista sem hægt er að segja að hafi einhver "menningarleg verðmæti" eru Börn Náttúrunnar, Mótmælandi Íslands, Þetta er ekkert mál og Björgunarafrekið við látrabjarg .. restin eru bara venjulegar lélegar Íslenskar myndir, veit ekki með Djúpið .. á ennþá eftir að sjá hana.
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

DabbiGj
Gúrú
Póstar: 507
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af DabbiGj »

Og fyrir þá sem ekki vita að er velferðaráðuneytið að velta 225 milljörðum á ári, rúv er rekið fyrir 3 milljarða.
Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1558
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Halli25 »

svartur á leik var rosaleg!
Starfsmaður @ IOD
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Sallarólegur »

Haxdal skrifaði:
DabbiGj skrifaði:
Börn náttúrunnar
Hafið
Djúpið
Sódóma Reykjavík
Djöflaeyjan
Lalli Johns
Rokk í Reykjavík
Hlemmur
Mótmælandi íslands
Þetta er ekkert mál
Björgunarafrekið við látrabjarg
Bjarnfreðarson
Einu myndirnar á þessum lista sem hægt er að segja að hafi einhver "menningarleg verðmæti" eru Börn Náttúrunnar, Mótmælandi Íslands, Þetta er ekkert mál og Björgunarafrekið við látrabjarg .. restin eru bara venjulegar lélegar Íslenskar myndir, veit ekki með Djúpið .. á ennþá eftir að sjá hana.
Fáránleg alhæfing. Sódóma Reykjavík er t.d. með bestu myndum sem ég hef séð, flestallar myndir hafa einhver menningarleg verðmæti, en ekki fyrir öllum.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af worghal »

**ATH!** MÍNAR SKOÐANIR!
það er langt síðan ég keypti íslenskt sjónvarpsefni, ég downloada því ekki einusinni.
enfaldlega af því að þetta er svo lélegt.

síðasta góða nýja íslenska bíómynd sem ég sá var englar alheimssins en reykjavík rotterdam var ágæt líka.
síðustu íslensku þættirnir sem voktu einhverja athyggli hjá mér var fyrsta serían af næturvaktinni en þar á undan voru fóstbræður.

annars er ég búinn að fá nóg af þessu litla úrvali leikara sem eru á þessu landi sem eru allir menntaðir fyrir leikhús. :klessa
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1726
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Danni V8 »

Ég er algjörlega sammála því að það ætti ekki að sóa peningum í kvikmyndir og sjónvarpsefni þegar það er skortur af peningum fyrir lögreglu og heilsugæslu.

Ég er ekki að segja að mér finnst sjónvarpsefnið verðlaust, þvert á móti, heldur aðeins að ríkið ætti ekki að vera að halda því uppi á kostnað heilsu og öryggi almennings.
Mynd
Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Frussi
Gúrú
Póstar: 513
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af Frussi »

biturk skrifaði:það á að afnema þessi listamannalaun, ef þú getur ekki lifað sjálfur á listinni þinni þá geturu bara fundið þér starf sem gefur þér innkomu, við hin þurfum að gera það!
Hvað með fólk sem lifir á atvinnuleysisbótum? Þá meina ég til langs tíma, ekki bara í 1-2 mánuði á milli starfa? Að mínu mati er það miklu verra en að þiggja listamannslaun
Ryzen 5 3600 _ X470 Aorus Gaming _ 2070 Super _ 16 GB 3200MHz _ 32" 1440p Lenovo
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af worghal »

Frussi skrifaði:
biturk skrifaði:það á að afnema þessi listamannalaun, ef þú getur ekki lifað sjálfur á listinni þinni þá geturu bara fundið þér starf sem gefur þér innkomu, við hin þurfum að gera það!
Hvað með fólk sem lifir á atvinnuleysisbótum? Þá meina ég til langs tíma, ekki bara í 1-2 mánuði á milli starfa? Að mínu mati er það miklu verra en að þiggja listamannslaun
eru listamannalaun ekki bara fancy titill á betur borguðum atvinnuleysisbótum ? :guy
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Af hverju eyðum við penning í Íslenkst sjónvarpsefni?

Póstur af appel »

Velferðarkerfið á Íslandi er einnig alveg útþanið út í bull.
*-*
Svara