Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Svara

Höfundur
Treebeard
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 06. Jan 2010 02:59
Staða: Ótengdur

Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Póstur af Treebeard »

var að kveikja á borðtölvunni minni í fyrsta sinn í tvær vikur eða svo, en hún slekkur alltaf á sér fljótlega, kemst aldrei framhjá windows loading screen, stundum gerist ekkert þegar ég ýti á start takkann og stundum slekkur hún á sér eftir nokkrar sekúndur.
Hvað haldiði að sé málið? Harði diskurinn eða aflgjafinn kannski?
Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3298
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Póstur af mercury »

myndi ekki hafa áhyggjur af hörðum disk. ætla að giska á aflgjafa eða móðurborð.
i9 10900k - asus maximus formula - RTX 3090 asus rog strix oc - TridentZ 32gb ddr4 4000 cl17 - 2tb 970 evo plus - phanteks enthoo 719 - be quiet dp 1200w - Full custom loop 2x360 2x480 2xd5 - Samsung odyssey G7
Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Póstur af beggi90 »

Heldur hún sér í gangi ef þú bootar af t.d geisladisk.
Ef svo er, þá er pæling að keyra memtest.

Höfundur
Treebeard
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 06. Jan 2010 02:59
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Póstur af Treebeard »

takk fyrir hugmyndir, núna er hún alfarið hætt að fara í gang, veit einhver hvar það er ódýrast að fara með tölvu i viðgerð?
Skjámynd

DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Tölvan vill ekki starta sér almennilega

Póstur af DoofuZ »

Ég er nokkuð viss um að örgjörvinn sé af einhverri ástæðu að ofhitna, þá drepur tölvan einmitt á sér eftir stuttan tíma og ef þú reynir að kveikja aftur á henni þá endist hún mun skemur og ef þú heldur áfram þá endar það með því að hún neitar að fara í gang þar sem örgjörvinn er ekki að fá nægan tíma til að kæla sig niður.

Hvernig er hljóðið í tölvunni þegar hún er að keyra sig í gang? Kæliviftan á örgjörvakælingunni ætti að fara á fullt ef örgjörvinn er að ofhitna. Kælingin er líklega búin að losna frá örgjörvanum. Myndi mæla með því, ef þú treystir þér í það eða þekkir einhvern sem gæti aðstoðað þig, að skipta um kælikrem á milli örgjörvans og örgjörvakælingarinnar. Annars ef þetta er rétt hjá mér þá ætti ekki að vera mikið mál fyrir verkstæði að redda þessu :)

En ef þú færð hana hins vegar bara alls ekki í gang aftur þó þú bíðir í smá tíma og þó þú geymir hana jafnvel á köldum stað að þá er þetta líklega eitthvað meira en bara ofhitnun.
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Svara