Að yfirklukka AMD XP2800+?


Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Að yfirklukka AMD XP2800+?

Póstur af ErectuZ »

Sko. Ég er að fara að fá mér Radeon x800pro skjákort en ég er með þennan örgjörva sem sást í titlinum. Til að hann haldi ekki öllum krafti úr skjákortinu ætla ég að reyna að yfirklukka örran í svona, ja 3000+. Kannski 3200+ ef ég kemst það langt :lol:. En með móðurborðinu fylgdi eitthvað EasyTune 4 of fylgir mynd af þessi sniðuga tóli. Með þessu forriti get ég yfirklukkað mjög auðveldlega. Ég er með þetta CPUidle og með það í gangi er örrinn í 40-45°C í idle. En án CPUidle er hann í 58-60°Idle. Hann getur farið alveg upp í 67°C í load. Hvaða viftu (hef ekki efni á vatskælingu) ætti ég að kaupa mér til að lækka hitann, og þar með geta yfirklukkað?
Viðhengi
EasyTune 4
EasyTune 4
EasyTune.jpg (153.08 KiB) Skoðað 1117 sinnum
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

Til að klukka eitthvað að viti þarftu að ná hitanum niður.
Þetta er besta HS sem þú getur fengið hér á landi http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=586 og með góðri viftu ertu að ná svipaðri kælingu og með vatni( en ert þá nátturulega með meiri hávaða ;) )

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

Mér er reyndar sama um hávaða, en geturu mælt með einhverju aðeins ódýrara? Sko, eftir skjákortskaupin verð ég alveg skítblankur :wink:

Svo önnur spurning. Hvað þarf ég að klukka örrann mikið ef ég ætla að fá hann upp í 3000+? Stóru tölurnar á EasyTune er sko hvað hann er að runna á. Hvað þarf ég að koma þeim upp í mikið?
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=456 en kælir ekki jafn vel samt fín og hljóðlát

CPU: 2.16 GHz
Type: XP 3000 Barton Core

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

ok. Takk. Svo ef ég þori og verð ríkur einhvern daginn, þá kannski bara reyni ég að koma honum upp í 3400+ :D

Edit: Mig vantar reyndar örraviftu sem passar í sökkul A...

machinehead
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Staða: Ótengdur

Póstur af machinehead »

Djöfull er þetta nett forrit!, virkar þetta á öll móðurborð, hefði ekkert á móti því að yfirklukka P4 2.8 örrann minn, p.s. hvar er hægt að nálgast þetta forrit

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

Þetta fylgdi móðurborðinu mínu. Linkur á það
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=219
Ég held að þetta fylgi með flestum Gigabyte borðum. ég er ekki viss, samt.
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

þetta virkar bara með ákveðnum gigabyte móðurborðum. þetta er svipað abit eq.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

Hvað haldið þið að ég myndi þurfa að koma örranum mínum upp í til að hann væri ekki að halda neitt aftur úr skjákortinu? hehe...
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

það er nánast ómögulegt að segja. ætli það sé ekki svona 3GHz á amd XP örgjörvum og um 4 á P4. annars myndi það áreiðanlega performa betur á 5GHz vél en 4GHz og betur á 6GHz heldur en 5GHz.
"Give what you can, take what you need."

machinehead
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Staða: Ótengdur

Póstur af machinehead »

gnarr skrifaði:þetta virkar bara með ákveðnum gigabyte móðurborðum. þetta er svipað abit eq.
hvar get ég fengið svona fyrir Abit
Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Póstur af fallen »

Er abiteq ekki forrit sem monitorar hita, vcore, volt og þessháttar ?
Annars er best að oc'a bara í bios.

machinehead
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Staða: Ótengdur

Póstur af machinehead »

Ég kann bara ekkert að oc-a í bios

Pectorian
Fiktari
Póstar: 52
Skráði sig: Mið 23. Jún 2004 23:56
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pectorian »

Það ætti að vera fínt að keyra þetta á 3000 til að byrja með.
Abit borðið mitt er læst í bios þannig að ég er bara með 166 og 200 fsb sem ég get valið um, þannig að ég verð að reyna þetta forrit þarna. :?

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

OK. Til að fá þetta alveg á hreint, hve mikið gæti ég hugsanlega komið þessu upp í?:

móðurborð: http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=219

CPU: http://www.computer.is/vorur/2401

Hitinn er venjulega í um 58-60° í idle og getur komist alveg upp í 65° í load... Hverju væri ráðlegast að byrja á?

Edit: Þá er ég að meina, koma þessu upp í án þess að þetta bráðni eða eyðileggist...

Edit: Og hvað gerir þetta? Sem bent er á á myndinni...
Viðhengi
Hvað er þetta?
Hvað er þetta?
Hvað er þetta.jpg (168.65 KiB) Skoðað 990 sinnum
Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Póstur af fallen »

Þetta er agp speed, alltaf að læsa agp/pci áðuren þú overclockar :>
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

ATH! passaðu að þetta sé ekki að hækka neitt, það væri ekki beint gaman að grill anýja x800 kortið...
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1629
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Stutturdreki »

Rainmaker skrifaði:Og hvað gerir þetta? Sem bent er á á myndinni...
gnarr skrifaði:ATH! passaðu að þetta sé ekki að hækka neitt, það væri ekki beint gaman að grill anýja x800 kortið...
Þetta breytir tíðni PCI, AGP og DRAM brautanna, DRAM er minnis brautin (að ég held).

Ef þú ætlar að fikta í DRAM tíðninni þá skalltu breyta 'linear' í 'async'. Á "linear" stillingunni hækkar/lækkar allt jafnt en á "async" breytirðu hverju gildi fyrir sig. PCI og AGP eru best geymd á 33/66.. Athugaðu að DRAM tíðnin og FSB tíðnin eru ekki það sama. Sennilega best að fikta ekkert í þessu nema þú vitir nákvæmlega hvað þú ert að gera (á reyndar við allt fikt :) )

Btw.. farðu svo í settings flipan ('s' -ið fyrir neðan takkann þar sem þú ýtir til að sja fanspeed og hita) og stilltu warning level fyrir vifturnar þínar í 1000..

Btw.. atl-printscrn tekur screen shot af active window.. ekki öllu desktopinu þínu

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

Ég notaði alt-PrtScrn. En gluginn er bara settur upp þannig að þetta kemur út svona :P

En hvernig læsi ég þessu, þá? Ég veit að það á örugglega að gera það í BIOS'num, en hvernig? Takk takk fyrir góð svör, annars :D
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

"PCI/AGP lock: on" þykir mér líklegast
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

gnarr skrifaði:"PCI/AGP lock: on" þykir mér líklegast
Ekkert þannig í BIOS'num. Ég leitaði alls staðar en fann þetta ekki. Ekki heldur neitt annað sem tengdist lock...
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

þá ertu líklegast bara alsekki með agp/pci lock. það er mög algengt með amd móðurborð. þú gætir annars prufað að reyna að aflæsa örgjörfanum ef hann er nógu gamall.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Staða: Ótengdur

Póstur af ErectuZ »

En ætti ég þá bara að prufa að yfirklukka hann núna? Engin hætta á að PCI/AGP'ið stútist ef ég er ekkert að fikta sérstaklega í því?

SkaveN
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 00:26
Staða: Ótengdur

Póstur af SkaveN »

Nei ég myndi ekki byrja að overclocka fyr en APG og PCI eru læst..

Alltaf hægt að festa APG og PCI í 66/33mhz

Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Póstur af Steini »

Fyrst þegar ég ætlaði að oc þá kunni ég ekki að læsa agp/pci og hækkaði um einhver fsb og þá kom það strax í 68/35 eða eitthvað svipað þannig að ég veit ekki..
Svara