veit ekki, fannst það einmitt skrítið þegar ég sá það fyrst en þeir hljóta að hafa ástæðu fyrir því, efa það stórlega að þetta hafi bara verið einhver spontaneous ákvörðun hjá þeim..
hagur skrifaði:Þarf meira? Eru ekki flestir með alvöru heimabíómagnara með slatta af HDMI in og svo bara einn kapall þaðan og í TV-ið?
Jú reyndar rétt hjá þér best að vera með magnara með slatta af HDMI
x2 er með 3 tæki með HDMI núna tengd en aðeins 1 HDMI yfir í sjónvarpið, allt hitt í magnarann.
Annars er maður rosalega fljótur að venjast svona myndavél er með 1 svona á sjónvarpinu heima (55" Samsung) og mjög auðvelt að fela, og það er bara snilld ef myndavélin fer niður þegar hún er ekki í notkun.
lol ... mætti ég þá bara biðja um fjarstýringuna takk
sástu ekki að maðurinn var með kámuga putta?
væri svo sem allt í lagi ef eini sjáanlegi parturinn væri linsan í efstu röndinni á skjánum, upp á útlitið að gera þ.e.a.s.
Tiger skrifaði:Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?
Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.
x2, en ég á nú eftir að sjá þetta tæki, og maður fer nú ekki að sitja nálægt svona risaskjá
Tiger skrifaði:Ég spyr samt, er ekki þörf á að svona stór tæki þurfi meiri upplausn en 1920x1080?
Þetta væri þess virði líklega ef þetta væri 4k upplausn.
4k er augljóslega betra, en það kemur á óvart hvað 1080p getur komið vel út á risastórum fleti.
Átti sjálfur 720p skjávarpa og var að varpa 112" mynd á vegginn hjá mér og 720p leit mjög vel út, sat í c.a 4 metra fjarlægð frá því. 1080p hefði að sjálfsögðu verið enn meira crisp.

akkúrat. Persónulega sé ég nákvæmlega engan mun á 1080p og 720p á 51" sjónvarpi í 4ra metra fjarlægð, 51" er einfaldlega of lítið fyrir 1080p í 4ra metra fjarlægð. 1080p er örugglega alveg nógu há upplausn fyrir 75" sjónvarp í ca 4 metra fjarlægð.
veit ekki hversu mikið er til í þessari töflu en skv henni er 1080p fullkomin stærð fyrir 65"-90" í 4ra metra(13fet) fjarlægð: