miðaskannar í sambíóunum

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
binnist
Fiktari
Póstar: 58
Skráði sig: Lau 23. Maí 2009 19:30
Staða: Ótengdur

miðaskannar í sambíóunum

Póstur af binnist »

Sælir

ég var að pæla hvort að þið vitið hvort að það virki.

Ég keypti miða inná sambio.is og fékk miðann sendann í pdf.

þeir hljóta væntanlega að vera með leiserskanna frekar en ljósskanna?

var því að pæla hvort að ég gæti komist upp með það að vera latur og mæta einfaldlega með símann minn og látið skanna af honum? :megasmile
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: miðaskannar í sambíóunum

Póstur af AntiTrust »

Já, það virkar. Þó eingöngu með stakan miða, þau vilja láta þig prenta þetta út eða fara í miðasöluna og fá miðana þar ef það eru fleiri en einn miði á pöntuninni, þar sem það koma allir miðarnir í einu PDF.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1558
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: miðaskannar í sambíóunum

Póstur af Halli25 »

AntiTrust skrifaði:Já, það virkar. Þó eingöngu með stakan miða, þau vilja láta þig prenta þetta út eða fara í miðasöluna og fá miðana þar ef það eru fleiri en einn miði á pöntuninni, þar sem það koma allir miðarnir í einu PDF.
ég hef oft farið með 2 miða í símanum og þeir hreinlega slá inn kóðan eða sleppa því og lesa bara á skjáinn hjá mér hvort ég sé ekki pottþétt með miða.
Starfsmaður @ IOD
Skjámynd

Orri
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Staða: Ótengdur

Re: miðaskannar í sambíóunum

Póstur af Orri »

Það eru alveg ótrúlega margir sem koma bara með þetta í símanum..
Það er svosem ekkert mál, nóg fyrir dyraverðina að lesa á miðann (þar sem skanninn nær ekki að skanna af skjám) svo lengi sem þú sért með rétt PDF opið (þau ertu tvö, annað er kvittun og hitt miðinn, er það ekki?).
Hinsvegar er auðvitað betra þegar fólk kemur með þetta útprentað, þannig ef það er lítið að gera í miðasölunni þá geturðu stokkið þangað og gefið upp netfang eða símanúmer og þá færðu miðana útprentaða :)
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS

Höfundur
binnist
Fiktari
Póstar: 58
Skráði sig: Lau 23. Maí 2009 19:30
Staða: Ótengdur

Re: miðaskannar í sambíóunum

Póstur af binnist »

ég prufaði amk að skanna hérna í vinnunni með leisarskanna á skjáinn minn og virtist virka. Var ekki viss hvernig skanna þeir væru með þarna :)
Skjámynd

Orri
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Staða: Ótengdur

Re: miðaskannar í sambíóunum

Póstur af Orri »

binnist skrifaði:ég prufaði amk að skanna hérna í vinnunni með leisarskanna á skjáinn minn og virtist virka. Var ekki viss hvernig skanna þeir væru með þarna :)
Þetta eru einhverjir Motorola snertiskjá símar of some sort með einhverju Windows Mobile stýrikerfi..
Algjört drasl ef þú spyrð mig.. tekur góðar 5-10 sekúndur fyrir hann að validate-a hvern einasta miða..
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS
Svara