Vifta á MSI KT3 Ultra-2 móðurborði vælir stundum

Svara

Höfundur
gummudu
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 23. Apr 2003 16:25
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Vifta á MSI KT3 Ultra-2 móðurborði vælir stundum

Póstur af gummudu »

Veit einhver hvar maður fær nýja viftu, eða enn betra hvar maður fær kæliplötu sem passar á kubbasettið.

Mér datt í hug að kíkja í Íhluti (http://www.ihlutir.is) en var ekki búinn að fara þangað ennþá. Þeir eiga að vera með einhverjar kæliplötur og svona stöff en ég nenni ekki að gera mér fýluferð ef þeir eiga ekkert sem passar á móðurborðs kubbasett.

Ég tók kæliplötu af kubbasetti á eldra móðurborði sem var dautt, en það er ekki alveg að rokka því kæliplatan verður sjóðheit eftir klst. vinnu á tölvunni.

Einhver sem hefur lent í svipuðu veseni og kannski skipt viftunni út?
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

Þeir á task.is eru með zalman heatsink á kubbasett.Þú átt síðan að geta sett hvaða 40mm viftu á sem þú vilt.Síðan er tölvulistinn með frá coolermaster , koparkæliplötur 8 í pakka.Sem þú getur sett á minni eða tvær saman á kubbasett.
vona að þetta hjálpi eitthvað.

Höfundur
gummudu
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 23. Apr 2003 16:25
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Póstur af gummudu »

Þakka þér :D

Þetta er líklega málið, ég ætla að byrja á því að prófa þennan heatsink á norðurbrúna (http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=59) og ef það gengur ekki þá er það bara vifta.
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

Þeir á overclocker.com eru mjög hrifnir að þessu og það á að duga nema þú sért að overclocka alveg hrikalega , þá er bara að fá sér 40mm viftu með.
Svara