Arduino projects

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Arduino projects

Póstur af starionturbo »

Sælir, langaði bara deila með ykkur arduino projectinum mínum.

LED borðið auðvitað,
http://forritun.org/blog/details/2" onclick="window.open(this.href);return false;

Svo er ég kominn með nýtt project núna, þeas. keyless entry ásamt öryggiskerfi.

Þetta er stöff sem ég er kominn með
- Arduino mega 2560
- Wireless numpad
- Wiegand RFID lesara
- 5x RFID merki
- 2x Hreyfiskynjara
- 2x Hurða/Glugga skynjara

Það sem mig vantar
- RF link reciever 343mhz
- Raflæsingu á hurðina
- Ethernet shield
- Myndavél(ar) með nightvision
- Sírenu eða vælu

Allt það þráðlausa er 343mhz RF Link, og drífur alveg nógu langt, eða max 500ft óhindrað.
RFID lesarinn verður fyrir utan útidyrahurðina hjá mér, sem les RFID merki og opnar hurðina ef viðkomandi merki hefur réttindi.
Arduino talar við mysql server sem heldur utan um hverjir mega komast inn (á hvaða tíma, t.d. skúringarkona bara á miðvikudögum kl 9.00).
Ásamt því loggar mysql allar inn/út komur, hvaða RFID eru lesin ofl.
Numpaddið verður svo fyrir innan hurð til þess að slökkva á þjófavarnarkerfi ef opnað hefur verið með lykli (þeas. án RFID).
Hreyfiskynjari verður einnig notaður til að kveikja og slökkva ljós á baði.

Ég skrifaði Wiegand library til að byrja á allavega einhverju - http://github.com/birkir/arduino-wiegand" onclick="window.open(this.href);return false;


Mig langaði bara að sjá hvort þið hafið einhverjar sniðugar hugmyndir til að bæta við þetta ?

endilega deilið ykkar verkefnum líka
Last edited by starionturbo on Mið 18. Júl 2012 16:40, edited 2 times in total.
Birkir Rafn Guðjónsson
Web Application Developer
HTPC: GA-73PVM-S2H # Intel E8200 @ 3.2Ghz # 2GB 800mhz
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Arduino projects

Póstur af GuðjónR »

Þetta er bara of flott.
Skjámynd

Höfundur
starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Arduino projects

Póstur af starionturbo »

Takk gaui, pínu update.
Birkir Rafn Guðjónsson
Web Application Developer
HTPC: GA-73PVM-S2H # Intel E8200 @ 3.2Ghz # 2GB 800mhz
Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Staða: Ótengdur

Re: Arduino projects

Póstur af tlord »

'RF link reciever 343mhz'

tjekkaðu hvaða tíðni má nota á Íslandi, held að þessi sé ekki leifð
433 er ok amk
Svara