Smá útdráttur fyrir þá sem lifa undir steini eða tíma ekki að nota útlandabandvíddina sína.
The Oatmeal eru æðislegar teiknimyndasögur teiknaðar af Matt Inman. Fyrir ári síðan var hann að pirra sig á því að það væri búið að margpósta flestum teiknimyndasögunum hans á FunnyJunk.com (frekar léleg síða sem safnar efni frá notendum, fæst af því OC, og fyllir allt af auglýsingum) og var að velta því upp hvað hann ætti að gera. FunnyJunk hvetja þá notendur sína til að bögga Inman og segja að hann sé að hóta því að loka vefnum (gripið algjörlega úr lausu lofti auðvitað).
Spólum aftur fram til júní í ár. Inman fær sent bréf frá lögmanni FunnyJunk sem krefjast þess að hann borgi $20.000 í skaðabætur fyrir skemma orðspor FunnyJunk á netinu (eins og svona síður hafi orðspor sem er hægt að skemma
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Allt í góðu. Flestir myndu gefast upp þarna og sætta sig við að þú ert ekki að fara að ná neinu góðu útúr því að eltast við þetta. En ekki Charles Carreon. Fyrst, í viðtali við MSNBC, hótar hann því að reyna að stoppa söfnunina. Svo fullyrðir hann að hann hafi jafn mikinn tíma og orku og internetið og ákveður að kæra Inman, IndieGogo, aðilana sem áttu að taka við styrkjunum og fleiri.
Þetta er staðan í dag. Fullt af efni um þetta á netinu. Mjög gott að fylgjast t.d. með Popehat.com (hluti I, hluti II, hluti III og hluti IV). Líka eitthvað á Google+ hjá Inman.
Mér finnst þetta rosa áhugavert, hafið þið fylgst eitthvað með þessu?