Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

Kannski á þetta ekkert heima hér en ætla samt að prufa :)

Ég á 20 ára afmæli í vikunni 4 - 10 júní og og ég er í vinnu tímabundið á Akureyri og bý þar í foreldrahúsum á meðan og unnustan mín er heima í Keflavík og okkur langar til að vera saman þessa viku, útaf fyrir okkur og ég var að pæla í því hvort einhver hér inná er sjálfur eða þekkir einhvern sem er að leigja íbúð í skammtímaleigu á Akureyri, Þá væri það frá mánudeginum 4 júní - föstudagsins 8 júní. Íbúðin þarf alls ekki að vera stór enda verðum við 2 bara þar. Við göngum vel um eigur annara og það verður ekkert partý eða neitt svoleiðis, ætlum bara að njóta þess að vera 2 ein og hafa það notarlegt :) Við höfum ekkert það mikið á milli handanna svo ég taki það fram þannig að það væri ekki verra ef leiguverðið væri eftir því :) Það er frekar erfitt að vera í fjarbúð en auðvitað verður maður að grípa tækifærið ef manni býðst vinna..... En auðvitað vill maður njóta 20 ára afmælisdagsins síns með sínum nánustu :)

Með von um góð svör.

Krissi.
Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2010
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af tdog »

Sniðug hugmynd ;) En ég mæli frekar með helgi í tjaldi, frekar en í íbúð. Þú þarft ekki að þrífa tjaldi eins og íbúðina á sunnudeginum og getur því notið samvistarinnar með kæró ennþá betur. Tjöld eru líka merkilega rómantísk!
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

tdog skrifaði:Sniðug hugmynd ;) En ég mæli frekar með helgi í tjaldi, frekar en í íbúð. Þú þarft ekki að þrífa tjaldi eins og íbúðina á sunnudeginum og getur því notið samvistarinnar með kæró ennþá betur. Tjöld eru líka merkilega rómantísk!
Tja.... Við erum nú ekkert mikið fyrir útilegur hehe, svo myndum við bara vera fram á föstudag :) Munum ekkert rusla það mikið til hehe, plús það að það er bara ákveðin stemming í að þrífa leiguhúsnæði eftir að leigutíma lýkur..... Líka gaman að skila því sem maður fær lánað í góðu standi :) Höfum oft leigt bústað í Ölfusborgum og aldrei hefur verið kvartað undan sóðaskap eða lélegri hreingerningu við brottför :D

capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af capteinninn »

Athugaðu endilega hjá stéttarfélaginu þínu hvort þeir eigi íbúðir til leigu.

Veit að VR er með mjög fínar íbúðir og Efling skilst mér líka og þeir rukka ekki of mikið fyrir þær, getur líka notað einhverja stéttapunkta hjá VR til að koma til móts við kostnaðinum af íbúðinni.
Er ekki viss hvort þeir eigi eitthvað laust svona nálægt dagsetningunni en það getur verið að eitthvað hefur losnað eða eitthvað álíka, hringdu allavega í þá
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

hannesstef skrifaði:Athugaðu endilega hjá stéttarfélaginu þínu hvort þeir eigi íbúðir til leigu.

Veit að VR er með mjög fínar íbúðir og Efling skilst mér líka og þeir rukka ekki of mikið fyrir þær, getur líka notað einhverja stéttapunkta hjá VR til að koma til móts við kostnaðinum af íbúðinni.
Er ekki viss hvort þeir eigi eitthvað laust svona nálægt dagsetningunni en það getur verið að eitthvað hefur losnað eða eitthvað álíka, hringdu allavega í þá
Ég borga núna í annað Stéttarfélag og ég held að ég eigi ekki rétt á neinu frá þeim eins og er því ég er ekki búinn að ávinna mér neinn rétt þar, gæti samt verið að ég eigi rétt í fyrra Stéttarfélagi, hætti að greiða í það í byrjun apríl. Plús það að Stéttarfélagið sem ég greiði í núna á engar íbúðir á Akureyri en hitt Stéttarfélagið sem ég greiddi áður í á eina íbúð hér. Ég er búinn að mail-a á þá og vonandi svara þeir mér sem fyrst :) Þó svo að ég eigi von á því að fá nei, kannski líka vegna þess að ég ætla ekki að vera frá föstudegi til föstudags, bara frá mánudegi - föstudags. Veit ekki hvort Stéttarfélög almennt leyfi svoleiðis leigutíma :)
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af urban »

úfff í fjarbúð og vill vera einn með konunni á 20. afmælisdeginum...

það þarf ábiggilega að henda rúmunum eftir það :D
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

HAHAHA!! :D það er nú ekkert það langt síðan seinast...... 21. maí..... hehehe!
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af Daz »

Ég hef pantað íbúð hjá http://gistingakureyri.is/" onclick="window.open(this.href);return false; einusinni. Gisti í "Amaro húsinu" og fannst það bæði mjög fín staðsetning og flott íbúð. Verðið var ekki bilað miðað við annað sambærilegt. Held ég hafi borgað ca 10 þúsund per nóttina þá, virðist hafa hækkað í lágmark 12 þúsund per nótt núna. Samt ódýrara en hótel :)
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

já, Myndi samt vilja helst fá á sambærilegu verði og Stéttarfélögin eru að bjóða :P
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af Daz »

krissi24 skrifaði:já, Myndi samt vilja helst fá á sambærilegu verði og Stéttarfélögin eru að bjóða :P
Þegar þú ert að tala um gistingu með viku fyrirvara, um háannatíma, á vinsælu ferðamannasvæði, þá er ekki hægt að krefjast þess að fá hana ódýrt líka. Stéttarfélögin niðurgreiða svona gistingar þó nokkuð, svo það er ólíklegt að þú fáir eitthvað á góðu verði. Ekki nema þú þekkir einhvern í réttu stéttarfélagi sem getur leppað fyrir þig (og yfirleitt getur fengið leigt, t.d. er allt upppantað hjá VR næstu 102 árin).

Nei ég vinn ekki við sölu gistinga á Akureyri, eða bara nokkurstaðar. Sé reyndar að þetta fyrirtæki sem ég linkaði á er ekki lengur að leigja út þá íbúð sem ég gisti í, en samt með nokkrar aðrar í boði.
Skjámynd

Höfundur
krissi24
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af krissi24 »

Veit ekki einhver um :)

ScareCrow
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 382
Skráði sig: Þri 25. Ágú 2009 23:19
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar íbúð á Akureyri frá 4 - 8 júní

Póstur af ScareCrow »

Búinn að prufa að skoða á http://www.dagskrain.is" onclick="window.open(this.href);return false;?

Við vorum einmitt að leigja íbúð á 7k per nótt en erum því miður byrjuð að gera hana upp akkurat nuna á næstu dögum, svo ég get ekki reddað þér.
Intel i9 9900k | nVidia RTX 2080 Ti 11gb | 4x8gb Corsair RGB Pro 3200mhz | 1TB 970 pro nvme, 1TB QVO SSD, 2TB SSHD | eVGA 850 Gold+ | Corsair 150i Pro | Corsair 570X Black | ROG Maximus XI Hero |
Svara