Ég notast við Google chrome vafran og alltaf þegar ég fer inná facebook þá eftir smástund loadast ekkert og síðan lætur leiðinlega.. og þegar ég reloada þá kemur "No data received" gluggi upp. Þá þarf ég að fara í history og eyða þar út og þá kemst ég aftur inná facebook, Og stundum þá kemur þetta strax aftur! Ég er búinn að prufa að goggla þennan vanda og prufa ýmislegt. Notabene þetta er ekki heima hjá bróður mínum og þetta er ekki svona í vinnunni. Ég henti út chrome og innstallaði honum aftur en þetta vandamál er enn til staðar. Var að detta í hug hvort þetta tengist eitthvað því að ég gæti verið með fasta IP tölu ??? Kann að hljóma heimskulega (hef litla þekkingu á þessu) En þetta var ekki svona. Og ég er einnig búinn að prufa IE vafran og Firefox og þar lendi ég í svipuðum vanda nema þar kemur ekki upp "No data received" skilaboð heldur bara eins og tengingin hafi dottið út :/
Vona að ég hafi gert mig skiljanlegan og Vonandi er einhver með ráð við þessu handa mér
gullis skrifaði:Prufaði þetta og það virkar ekki :/
Þá myndi ég keyra hreinsitól á vélina gætir verið kominn með spyware, vírusa eða eitthvað FB-drasl/vírus á vélina sem er að orsaka þetta.
Samt er sennilega fljótlegast að afrita bara gögnin og strauja vélina þá ertu örugglega laus við þetta vandamál.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.