Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af chaplin »

Getur e-h sagt mér hverju var breytt í lögunum sem voru sett árið 2009. 2. apríl?

http://www.althingi.is/altext/stjt/2009.032.html" onclick="window.open(this.href);return false;
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

blitz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1668
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af blitz »

Lestu lögskýringargögn

http://www.althingi.is/altext/136/s/0135.html" onclick="window.open(this.href);return false;
PS4
Skjámynd

Höfundur
chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af chaplin »

Takk fyrir þetta, en ég er með aðra spurningu, því skv. þessum lögum er lánveitanda ekki heimilt að krefjast þess að ábyrgðamenn greiði skuld ef lántakandi fer í greiðsluaðlögun, en skv. máli http://haestirettur.is/domar?nr=7026" onclick="window.open(this.href);return false; - var það síðan dæmt í hag láveitanda.

Með öðrum orðum, Hæstiréttur dæmdi ábyrgðamenn til að greiða skuldina þrátt fyrir að lögin sögðu að það væri ekki leyfilegt.

Getur e-h útskýrt þetta fyrir mér, á mannamáli væri mjög vel þegið. Það sem ég skil ekki er, af það er búið að setja lög, en þau stangast á við stjórnarskrá - eru þau gild í dag eða var þeim breytt?

Edit * Hér er fréttin af Vísi.is
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af Klaufi »

chaplin skrifaði:er búið að setja lög, en þau stangast á við stjórnarskrá - eru þau gild í dag eða var þeim breytt?
Kæmi þér það á óvart..?
Mynd
Skjámynd

Höfundur
chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af chaplin »

Klaufi skrifaði:
chaplin skrifaði:er búið að setja lög, en þau stangast á við stjórnarskrá - eru þau gild í dag eða var þeim breytt?
Kæmi þér það á óvart..?
Kæmi mér hvað á óvart? Ég hefði haldið að lögunum hefði þá verið breytt en finn ekkert um það. Eða var þetta einsdæmi þar sem skuldin var gerð fyrir lögin? Þá reyndar ekki einsdæmi, þar sem þetta myndi væntanlega gilda um öll önnur mál þar sem lánin voru tekin fyrir lögin.

Mín pæling, eru þessi lög gild í dag eða ekki?

Mjög góður pistill hér - http://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=129 ... _id=359948" onclick="window.open(this.href);return false;
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Höfundur
chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af chaplin »

Enginn hugmynd um þetta, rapport ert þú ekki klár í þessu?
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

END
has spoken...
Póstar: 159
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Staða: Ótengdur

Re: Lögfræðisnillingar - Uppls. um "Lög um ábyrgðarmenn"

Póstur af END »

Lögin tóku gildi 4. apríl 2009 og halda gildi sínu þrátt fyrir dóminn sem þú vísar til. Hins vegar felur hann í sér að ákvæði laganna um að hafi krafa á hendur lántaka verið lækkuð þá lækki krafan einnig gagnvart ábyrgðarmanni taka ekki til ábyrgðarskuldbindinga sem stofnað var til fyrir gildistöku laganna. Þ.e. þetta ákvæði á aðeins við um ábyrgðarskuldbindingar sem stofnað hefur verið til 4. apríl 2009 eða síðar.

Ef þú vilt kanna gildi tiltekinnar ábyrgðar þá getur verið að hún falli undir samkomulag um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga en það var í gildi fyrir setningu laganna en tekur aðeins til þeirra kröfuhafa sem eru aðilar að því. Einnig getur umboðsmaður skuldara aðstoðað við að kanna þetta.
Svara