AciD_RaiN skrifaði:hahahaha... Kannski ekkert skrítið að maður keyri á þegar maður sest ekki undir stýri án þess að vera útúr kortinu
prufað að kikja þangað á föstudögum? Eyrargata 24a, Siglufjörður kl. 23:00 :troll
Hef ekki hugmynd hvar eyrargata er einu sinni :neiii Hvað er að gerast þar??
Edit: Ég var löngu hættur að keyra undir áhrifum áður en ég missti prófið og er líka hættur að vera undir áhrifum yfir höfuð en það eiga sér jú allir einhverja fortíð... Bara svo þetta skyljist ekki þannig að maður sé kengbeiglaður hérna
Edit2: Ef þú ert að tala um AA fundina þá er búið að færa þá í gömlu bólsturgerðina
haha ja var að meina AA fundina, hef farið á nokkra fundi þarna á sigló, þegar fer í heimsókn til gamla karlsins, gott að vita um breyttan fundarstað, sko, vaktin VEIT ALLT!!
en talandi um bílamál, þá held ég að ég verði að losa mig við VW polo'05 bílinn minn, alltof mikill kostnaður að gera við hann, þótt sé búinn að punga ut nu þegar 150þ fyrir viðgerð á vélinni.. lenti i að hann bókstaflega myglaði ALLUR að innan, sætisáklæði, loft, innan i mælaborðinu og loftstokkum, miðstöð u name it.. og rafkerfið er fuuuuuuuuuuuuuuuuuuucked up líka útaf raka, og svo auðvitað þurfti dempari og spindilkúla og stýrisendi að fara líka.. einhverjum sem langar i 7 ára póló keyrðan rett um 100þ km á slikkerí?
halli7 skrifaði:Haha er ekki að fara kaupa númeraplötur á bílinn fyrir 25 þús.
Það er ekkert svo dýrt... Getur meira að segja fengið þetta á 15þús með því að skrá þig í Fornbílaklúbbinn. Það kostar að vísu 5þús að skrá þig þar en þú færð alveg fullt af afsláttum í ýmsum varahlutaverslunum. Nærð upp ársgjaldinu í sparnaði léttilega þegar þú átt svona gamlan bíl, sérstaklega gamla Mözdu
Rosalega eru margir með aldraða bíla hérna. Meðalaldurinn á bílunum er c.a. 10-12 ár hérna. Er sjálfur á bíl á 13. aldursári og er enn bara sáttur við hann.
halli7 skrifaði:Haha er ekki að fara kaupa númeraplötur á bílinn fyrir 25 þús.
Það er ekkert svo dýrt... Getur meira að segja fengið þetta á 15þús með því að skrá þig í Fornbílaklúbbinn. Það kostar að vísu 5þús að skrá þig þar en þú færð alveg fullt af afsláttum í ýmsum varahlutaverslunum. Nærð upp ársgjaldinu í sparnaði léttilega þegar þú átt svona gamlan bíl, sérstaklega gamla Mözdu
Finnst samt þessar gömlu plötur ekki passa við þetta boddý, þetta boddý er minnir mig framleitt 88-91/92.
Svo kaupir maður sér nú einhvern flottari bíl seinna, þannig ætla ekkert að setja einhvern óþarfa pening í þennann.
appel skrifaði:Rosalega eru margir með aldraða bíla hérna. Meðalaldurinn á bílunum er c.a. 10-12 ár hérna. Er sjálfur á bíl á 13. aldursári og er enn bara sáttur við hann.
89' Golf 1.8L 16v Gti
Er búinn að rífa hann í spað, ætla græja hann meira til, skipta um motor og fleirra.
Og svo 82' Golf, sem er núna með mótorinn sem var í bláa.
Og svo ljótann pólo.
Eignaðist Mitsubishi Colt 93 árg og 4g63 mótor (ek 105þús) á klink fyrir 2 dögum.
liggur í tætlum inní bílskúr núna ( mótorinn á gólfinu og innréttingin og rafkerfið útum allt!) en verður vonandi ready fyrir Rallycross sem fyrst. Hellings smíði eftir, þarf að undirbúa vélarsalinn/smíða búr/ klára mótorinn/ laga bremsur/ sprauta og fullt fullt fleira.
tanketom skrifaði:dekkinn sem þú ert á eru alveg handónýt, ekki skrítið að þú festir þig þarna
Hah, þau eru alveg þokkalega fín.
Þú veist ekkert hvernig aðstæðurnar voru þarna. Mun stærri og öflugri bíll fór á undan og "festi" sig í þessari holu", það var alveg vitamál að Súkkan myndi festa sig, enda var holan svo djúp að framdekkin vorur alveg í botninum og miðja bílsins sat svo ofaná snjónum. Svo er eitt og annað sem spilaði aukalega inn í þetta
Annars var þetta eina festan, algjör snilld hvað þetta apparat kemst!
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
tanketom skrifaði:dekkinn sem þú ert á eru alveg handónýt, ekki skrítið að þú festir þig þarna
Hah, þau eru alveg þokkalega fín.
Þú veist ekkert hvernig aðstæðurnar voru þarna. Mun stærri og öflugri bíll fór á undan og "festi" sig í þessari holu", það var alveg vitamál að Súkkan myndi festa sig, enda var holan svo djúp að framdekkin vorur alveg í botninum og miðja bílsins sat svo ofaná snjónum. Svo er eitt og annað sem spilaði aukalega inn í þetta
Annars var þetta eina festan, algjör snilld hvað þetta apparat kemst!
já ég trúi því, en já miðað við myndina þá virðast þau vera frekar eydd
[color=#BF0000]Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do[/color]