Skjávarpi, ráðleggingar þarfnast

Svara

Höfundur
darri111
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Fös 09. Des 2011 18:18
Staða: Ótengdur

Skjávarpi, ráðleggingar þarfnast

Póstur af darri111 »

Sælir, var að spá í að kaupa mér skjávarpa, vantar ráðleggingar
Er hægt að kaupa skjávarpa útí Bandaríkjunum og horfa á sjónvarp í gegnum hann hérna á Íslandi ?
Einhverjar hugmyndir af góðum skjávörpum ?
Einhver með slæmar eða góðar reynslur ?
Er hægt að fá Full HD skjávarpa ?

Vona að einhver geti svarað mér ;)
Skjámynd

Hrotti
FanBoy
Póstar: 733
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Skjávarpi, ráðleggingar þarfnast

Póstur af Hrotti »

darri111 skrifaði:Sælir, var að spá í að kaupa mér skjávarpa, vantar ráðleggingar
Er hægt að kaupa skjávarpa útí Bandaríkjunum og horfa á sjónvarp í gegnum hann hérna á Íslandi ?
Það skiftir yfirleitt engu máli hvar hann er keyptur, bara tékka á að henn sé örugglega 110/220v, hafðu samt í huga að þú þarft að bæta við u.þ.b. 65% (flutningur,tollar og vsk) ef að þú ætlar að flytja hann löglega inn. Það er ekki tv móttakari í skjávörpum en ef að þú ert með afruglara, sjónvarp símans (eða voda ofl) eða videotæki þá er ekkert mál að horfa á sjónvarp.
darri111 skrifaði:Einhverjar hugmyndir af góðum skjávörpum ?
Hversu miklu ertu að hugsa um að eyða?
darri111 skrifaði:Er hægt að fá Full HD skjávarpa ?
Já.
darri111 skrifaði:Einhver með slæmar eða góðar reynslur ?
Ég er búinn að vera með skjávarpa síðan 2002 og hef aldrei séð eftir því að hætta með tv. Ég er með 130" tjald núna og gæti ekki hugsað mér að fara niður fyrir 100" aftur.
Verðlöggur alltaf velkomnar.
Skjámynd

astro
spjallið.is
Póstar: 477
Skráði sig: Lau 07. Jan 2006 02:16
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skjávarpi, ráðleggingar þarfnast

Póstur af astro »

Hrotti skrifaði:Ég er búinn að vera með skjávarpa síðan 2002 og hef aldrei séð eftir því að hætta með tv. Ég er með 130" tjald núna og gæti ekki hugsað mér að fara niður fyrir 100" aftur.
Ég er með BenQ w1000+ Full HD 1080p skjávarpa, ég er að varpa honum á rúmlega 90" stórt tjald, langar svo í stærra.. 120-140" :) Nn ekki möguleiki útaf hvernig stofan er arkitektuð...
darri111 skrifaði:Sælir, var að spá í að kaupa mér skjávarpa, vantar ráðleggingar
Er hægt að kaupa skjávarpa útí Bandaríkjunum og horfa á sjónvarp í gegnum hann hérna á Íslandi ?
Einhverjar hugmyndir af góðum skjávörpum ?
Einhver með slæmar eða góðar reynslur ?
Er hægt að fá Full HD skjávarpa ?

Vona að einhver geti svarað mér ;)
Spila XBOX og streama FullHd efni inná varpann, og ég gæti ekki vera ánægðari.. kaupi mér sennilega seint aftur sjónvarp þar sem ég gæti alldrei farið undir 50" núna.. og þau KOSTA meðað við skjávarpa.

Ég er enginn expert, en ég er með BenQ varpa og mæli með þeim, getur fengið 1080p skjávarpa hérna: http://www.tolvutek.is/vara/benq-w1100- ... -skjavarpi" onclick="window.open(this.href);return false; & http://www.tolvutek.is/vara/benq-w1200- ... -skjavarpi" onclick="window.open(this.href);return false;
Fractal Design Meshify C * MSI Z170A Tomahawk AC * Intel Core i7-6700 * 16GB Corsair Vengeance LPX 3200Mhz * Zotac GTX1080 AMP Extreme * 240GB Samsung Evo 850 SSD MASTER * 120GB Corsair SSD SLAVE * 3x2TB SG Barracuda HDD SLAVE* Noctua NH-C12P SE14
Svara