Sælir vaktarar. Núna síðustu nótt dreymdi mig alveg snilldar hugmynd og veit ekki afhverju manni datt þetta fyrr í hug. Eru einhverjir hérna sem hafa einhverja reynslu af tölvukassasmíðum? Hugmyndin er svona ennþá í fæðingu en pælingin myndi vera svona í grófum dráttum kassi með custom made vatnskælingu, allar hliðar nema ein myndu vera úr efni sem mig vantar ennþá að uppgötva og ein hliðin væri alveg plexi gler. Allar hinar hliðarnar verða spraypaintaðar í danmörku með jungle þema og innvolsið verður líklegast með einhverskonar gervigróðri en eins og ég segi þá er þetta bara að fæðast. Ég er búinn að bera þetta undir vanan mann sem verður mér innan handar en hann hefur ekki smíðað kassa í 7 ár þannig það væri gaman að fá ykkar hugmyndir líka Það sem ég er búinn að vera að skoða eru síður eins og http://www.bit-tech.net/modding/" onclick="window.open(this.href);return false; og vatnskælingin kæmi líklegast frá http://www.dangerden.com" onclick="window.open(this.href);return false; þar sem vinur minn þekkir kauða til margra tuga ára. Endilega komið með myndir og hugmyndir og endilega einhverja sniðuga linka. Þetta verður bara gaman
þetta minnti mig á atriðið í "batman and robin" myndini þar sem að þeir félagar fara í yfirgefna verksmiðju eða einhvað sem að "poison ivy" var búin að leggja undir sig.
svona "overgrown" þema með toxic grænni lýsingu, og mögulega UV reactive laufblöðum.
plöntur hangandi niður og vefjandi sér um allt. líka fléttandi sig upp um kassan.
annasrvegar þá væri snilld að nota vökvakælinguna sem vökvuunarkerfi líka