Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Skjámynd

TheVikingmen
Nörd
Póstar: 108
Skráði sig: Fim 21. Okt 2010 23:41
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af TheVikingmen »

Snilldar forrit, á eftir að nota þetta.

En eins og eitthver minntist á hérna, væri snilld að geta sett sína kennara sem favorite til að vita að þetta sé kennari man.
Og ein hugmyn. Setja hvaða tíma hann er að kenna og hvaða tímar klukkan hvað falla niður einfaldlega með því einu að smella á eftirfarandi kennara.
[b][size=150]Nörd er jákvætt orð![/b][/size]
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af gardar »

Kobbmeister skrifaði: Smáhugmynd, væri ekki sniðugt að gera þannig að þú getur sett inn kennara sem eru að kenna þér og þá kemur upp notification þegar einhver kennarinn þinn sé veikur?
dori skrifaði:Frekar að þú gætir sett inn alla stundatöfluna þína og svo myndi forritið koma með notification ef kennari sem kennir þér í dag sé fjarverandi.

Það er bæði allt of mikil vinna fyrir notandann... Gera þetta bara eins og ég benti á, láta forritið fetcha stundatofluna sjálfvirkt :)

gardar skrifaði:
svo er bara að tengja systemið við myschool/innu eða hvað það er sem menn nota og parsa stundatofluna... svo að menn fái bara sms um þá kennara sem eru að kenna þeim og einungis á þeim dogum þegar þeir tímar eru :)
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af dori »

Algjörlega, það er bara næstum því alveg jafn useless að fá ábendingu um að einhver kennari sem kennir þér á föstudegi sé veikur á mánudegi og það er að fá bara ábendingu um leið og nýr kennari dettur inn sem fjarverandi.

Að sækja stundatöfluna á Innuna getur verið smá vesen því að þar ertu kominn með innskráningu og þ.a.l. sem krefst þess að þú farir í að búa til session og halda utan um kökur. Kannski sjúklega auðvelt að gera með Android en maður veit aldrei. Þess vegna vil ég fá þetta á github þannig að maður gæti hugsanlega hakkað smá í þessu í staðin fyrir að senda OP í einhvern vesenis leiðangur. Reyndar hef ég ekkert að gera við þetta app þar sem maður er búinn í menntaskóla fyrir þó nokkru en það er alltaf gaman af skemmtilegum hugmyndum :D
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af gardar »

Þegar við gerðum sms kerfið fyrir gamla menntaskólann minn (MH) þá notuðum við myschool aðgang hjá einum nemanda.. Það var gert vegna þess að í gegnum myschool var hægt að fletta upp stundatoflum allra nemenda :)
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af Frantic »

*UPDATE*:
Tækniskólinn v1.2:

Komið inná Android Market!

1: Yfirlýsing sýnd þegar smellt er á Tækniskóla lógóið neðst á síðunni.
2: Tilkynning sýnd þegar nýr kennari er skráður (ekki sama og notification).
3: Útlit bætt og breytt.
4: Appið uppfærir síðuna á 60 sekúndu fresti.

ATH: Það er mikilvægt að eyða út fyrri útgáfum áður en nýja er sett upp.

Skannið eða smellið:
Mynd
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af Frantic »

Ég vill þakka öllum fyrir frábær feedback.
Það er nokkuð ljóst að þetta app er að gera góða hluti.
Í gær fann ég lista yfir alla áfanga og hver kennir þá.

Núna er hægt að smella á myndina eða nafn kennarans til að sjá lista yfir áfanga sem hann kennir.
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af Frantic »

Sallarólegur skrifaði:Feitur næsari þetta, hvað var build time? Ef þú hefur áhuga að smíða fleiri íslensk öpp mæli eg með því að stofna þráð og leyfa vökturum að koma með hugmyndir. Þeir klikka aldrei.
Þyrfti að hafa meiri tíma til þess. Líklegast að ég myndi prófa það í sumar.
dori skrifaði:Frekar að þú gætir sett inn alla stundatöfluna þína og svo myndi forritið koma með notification ef kennari sem kennir þér í dag sé fjarverandi.

@OP: viltu ekki setja þetta á github?
@dori: Þetta yrði alltof umfangsmikið. Minna er oftast betra.
Þetta fer örugglega ekki á GitHub. Þetta er alltof mikið hack og tweeks til að safna gögnunum = forljótur kóði.
Kobbmeister skrifaði:Snilldar forrit =D>
Smáhugmynd, væri ekki sniðugt að gera þannig að þú getur sett inn kennara sem eru að kenna þér og þá kemur upp notification þegar einhver kennarinn þinn sé veikur?
S.s. markmiðið er að hægt sé að vista inn skammstafirnar hjá kennurunum og ef sá kennari er veikur komur notification.
En til þess að senda notification þarf að vera service í gangi í bakgrunni og það kostar miklu meiri vinnu.
Kíki á það seinna.
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af dori »

JoiKulp skrifaði:
dori skrifaði:Frekar að þú gætir sett inn alla stundatöfluna þína og svo myndi forritið koma með notification ef kennari sem kennir þér í dag sé fjarverandi.

@OP: viltu ekki setja þetta á github?
@dori: Þetta yrði alltof umfangsmikið. Minna er oftast betra.
Þetta fer örugglega ekki á GitHub. Þetta er alltof mikið hack og tweeks til að safna gögnunum = forljótur kóði.
Það þarf ekkert að skammast sín fyrir að gera einhver ljót hökk til að fá svona hobbíproject til að virka. Endilega hentu þessu inná github og sjáðu hvort það sé ekki áhugi meðal fólk til að laga og hjálpa þér. Þá gæti t.d. einhver sem vildi fá notification system komið með einhver drög að slíku og ef þú fílar það þá kippirðu því inní þína "official útgáfu".

Miklu skemmtilegra að vinna saman.
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af Frantic »

dori skrifaði:

Já það væri sniðugt að prófa það. Þyrfti samt að fixa svolítið kóðann og gera læsilegri.
Er eitthvað af íslendingum þarna inni?
Skjámynd

jagermeister
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Mán 16. Mar 2009 16:25
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af jagermeister »

er einhver einföld og fljótleg leið til að breyta þessu svo að þetta virki fyrir aðra skóla?
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af Frantic »

jagermeister skrifaði:er einhver einföld og fljótleg leið til að breyta þessu svo að þetta virki fyrir aðra skóla?
Stutt svar: nei.
Langt svar:
Það er forrit sem keyrir á 5 mínútu fresti sem parsar HTML kóðann hjá tskoli.is til að sjá hverjir eru veikir.
Einnig þurfti ég að parsa í gegnum lista af öllum starfsmönnum skólans til að fá slóðir á allar myndir af kennurum.
Svo parsaði ég annan lista af öllum áföngum og kennurum sem kenna þessa áfanga og ber þá saman við þá sem eru veikir til að sýna hvaða tímar falla niður þennan dag.
Þannig að, nei :megasmile
Skjámynd

DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Póstur af DoofuZ »

gardar skrifaði:þegar ég var í menntaskóla þá kóðuðum við nú bara lítið forrit sem sendi manni veikindi kennara í sms-i :sleezyjoe
Ég gerði það sama þegar ég var í FB nema það forrit var aðallega bara notað af mér, systir mín og ein vinkona hennar skráðu sig reyndar líka í það en það skipti samt voðalega litlu máli þar sem við bjuggum öll ekkert svakalega langt frá skólanum svo maður var yfirleitt búinn að kíkja aðeins á netið áður en maður lagði af stað.

En nú er ég aðeins byrjaður að koma mér inní Android forritun og er eins og er að reyna að fá það til að lesa eitthvað einfalt af vefsíðu en það gengur ekkert svakalega vel og erfitt að finna kóða á netinu sem virkar og kemur manni eitthvað áfram :? Hvernig ferð þú að því að ná í upplýsingarnar JoiKulp? Geturu bent mér amk. á einhverja síðu með smá kóða sem þú notar bara til að ná í einfaldan texta eða geturu kannski komið með smá kóðabút?
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Póstur af gardar »

DoofuZ skrifaði: En nú er ég aðeins byrjaður að koma mér inní Android forritun og er eins og er að reyna að fá það til að lesa eitthvað einfalt af vefsíðu en það gengur ekkert svakalega vel og erfitt að finna kóða á netinu sem virkar og kemur manni eitthvað áfram :? Hvernig ferð þú að því að ná í upplýsingarnar JoiKulp? Geturu bent mér amk. á einhverja síðu með smá kóða sem þú notar bara til að ná í einfaldan texta eða geturu kannski komið með smá kóðabút?
er ekki heill hellingur af upplýsingum í kringum android SDK-ið? http://developer.android.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Póstur af Frantic »

DoofuZ skrifaði:
gardar skrifaði:þegar ég var í menntaskóla þá kóðuðum við nú bara lítið forrit sem sendi manni veikindi kennara í sms-i :sleezyjoe
Ég gerði það sama þegar ég var í FB nema það forrit var aðallega bara notað af mér, systir mín og ein vinkona hennar skráðu sig reyndar líka í það en það skipti samt voðalega litlu máli þar sem við bjuggum öll ekkert svakalega langt frá skólanum svo maður var yfirleitt búinn að kíkja aðeins á netið áður en maður lagði af stað.

En nú er ég aðeins byrjaður að koma mér inní Android forritun og er eins og er að reyna að fá það til að lesa eitthvað einfalt af vefsíðu en það gengur ekkert svakalega vel og erfitt að finna kóða á netinu sem virkar og kemur manni eitthvað áfram :? Hvernig ferð þú að því að ná í upplýsingarnar JoiKulp? Geturu bent mér amk. á einhverja síðu með smá kóða sem þú notar bara til að ná í einfaldan texta eða geturu kannski komið með smá kóðabút?
Það er mjög gott að vera með einhverja kunnáttu í Java.
Ég nota bara einfalt svokallað WebView.
Myndi skoða top 5 útkomunar hér: http://www.google.is/search?q=android+webview" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

AncientGod
</Snillingur>
Póstar: 1002
Skráði sig: Mán 21. Feb 2011 22:38
Staðsetning: Hér og þar...
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af AncientGod »

Virkar þetta á black berry síma ?
http://www.heatware.com/eval.php?id=80799
Skjámynd

Marmarinn
has spoken...
Póstar: 181
Skráði sig: Mið 13. Feb 2008 16:57
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Póstur af Marmarinn »

DoofuZ skrifaði:Geturu bent mér amk. á einhverja síðu með smá kóða sem þú notar bara til að ná í einfaldan texta eða geturu kannski komið með smá kóðabút?
hérna er ein spennandi síða.
http://chrisrisner.com/31-Days-of-Android" onclick="window.open(this.href);return false;

svo kemur sdk með sample projects,
í eclipse veluru bara file->new->other->android->android sample project.
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af gardar »

AncientGod skrifaði:Virkar þetta á black berry síma ?

Nei, blackberry notar ekki android stýrikerfi
Skjámynd

gunnidg
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fim 13. Jan 2011 15:54
Staðsetning: Kef/Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Póstur af gunnidg »

Glæsilegt framtak =) vildi að þetta hefði verið komið þegar ég var enn í TS :D

Opes
FanBoy
Póstar: 761
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 12:02
Staða: Ótengdur

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Póstur af Opes »

Zedro skrifaði:Voooohoooo einhverjir lukkunarpamfílar fengu frí í STÆ. Gisli er allveg hrikalegur kennari :P
Sæll já, maður grenjaði ekki...

Annars, töff app...
Svara