Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
Þarf ég að aftengja gamla kortið sem ég er með í tölvunni ? Er að velta fyrir mér hvort það gæti verið að hægja á leikjaspilun hjá mér.
Re: Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
já taktu það úr tölvunni...
Re: Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
Þetta er samt kort sem tilheyrir móðurborðinu . Get ég samt tekið það úr ?
Re: Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
já þú meinar haha ! nei þá geturu ekki tekið það úr held ég... er það ekki innbyggt í móðurborðinu ?jonomar skrifaði:Þetta er samt kort sem tilheyrir móðurborðinu . Get ég samt tekið það úr ?
kannski geturu slökkt á því í bios..
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort , slökkva á gamla ?
Í flestum tilfellum þarf að slökkva/disable Onboard skjákortið í Bios til að fá Pci-E kortið til að virka, sum móðurborð gera þetta sjálfkrafa. Ertu ekki örugglega með skjásnúruna tengda í nýja kortið ? Ef þú færð mynd á skjáinn og með skjásnúruna tengda í nýja kortið þá þarftu ekki að hafa áhyggjur.jonomar skrifaði:Þetta er samt kort sem tilheyrir móðurborðinu . Get ég samt tekið það úr ?
Nei það er ekki hægt að taka skjákortið sem er áfast móðurborðinu úr nema með þvi að eyðileggja móðurborðið
Ef þú færð ekki mynd á skjáinn með nýja kortinu skoðaðu þá leiðbeiningarnar sem fylgja móðurborðinu hvernig eigi að disable/slökkva á Onboard Graphis.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |