Ég er að fara að kaupa mér kælingu núna í sumar og er að spá hvað er besta kælingin, ég er búinn að taka saman það sem ég "ætla" að kaupa.
Endilega komið með ykkar álit á þessum pakka og hvað þið munduð gera
( bæta við og sleppa ).
Ég myndi sleppa þessari "kassaviftu" og "HDD viftu" og kaupa í staðin 2*80mm eða 2*120mm kassaviftur, hægt að fá mjög hljóðlátar viftur, það er alveg nóg.. ein sem blæs köldu lofti inn að framan (og á hörðu diskana líklegast) og ein sem blæs heitu lofti út að aftan (líklegast frá örranum)
held að það sé talsvert sniðugra en t.d. þessi hdd box
líst helvíti vel á þig... þessi PCI vifta er geggjað góð blæs eins og andskotinn... en ef þú ert ekki kominn uppí 3 viftur þá er enginn þörf á viftustýringu...finnst mér
Ég er með eina kassaviftu, eina skjákortsviftu og held eina örgjörvaviftu fyrir. Er að spá í að sleppa Flowerinu og fá mér 2 kassaviftur, eina hvoru megin eins og Pyro sagði. Þá eru komnar 5 - 6 viftur...er þá ekki gott að vera kominn með mæli/viftustýringu ?
og sleppir þessari pci viftu, ég held að þú hafir í raun engin not fyrir hana.. kaupa frekar eins silent kassaviftur og örraviftu og þú getur. Ég t.d. er með 3 stóra harða diska í vélinni hjá mér og það er alveg nóg að vera með 2* kassaviftur bara... haldar mjög kaldir og fínir þannig.
spn skrifaði:Ég er að fara að kaupa mér kælingu núna í sumar og er að spá hvað er besta kælingin, ég er búinn að taka saman það sem ég "ætla" að kaupa.
Endilega komið með ykkar álit á þessum pakka og hvað þið munduð gera
( bæta við og sleppa ).
Ég var líka að hugsa um að fá mér Noiseblocker viftu í kassann, en veit ekki hvaða viftu ætti að velja
Þetta er í 1 lagi ekki mælir heldur er þetta hlutur sem kallast Viftustýring, 2 lagi á ég svona, 3 lagi þetta er fínn hlutur, 4 lagi mæli ég með þessu og í 5 lagi ekki neitt
pyro skrifaði:Ég mæli með 2*80mm noiseblockers, ein að framan sem blæs inn og ein að aftan sem blæs út
Ég er með eina að aftan sem að blæs út , held að það sé 92 mm vifta, þyrfti ég þá ekki bara að kaupa eina til að setja að framan ? ( sem að blæs inn.. )
pyro skrifaði:Ég mæli með 2*80mm noiseblockers, ein að framan sem blæs inn og ein að aftan sem blæs út
Ég er með eina að aftan sem að blæs út , held að það sé 92 mm vifta, þyrfti ég þá ekki bara að kaupa eina til að setja að framan ? ( sem að blæs inn.. )
Jú, auðvitað, nema náttúrulega að þér finnist of mikill hávaði í þeirri viftu og viljir skipta (ertu nokkuð að tala um viftuna sem er á aflgjafanum?)
neinei, þetta er ekki viftan á aflgjafanum, hún er fyrir ofan hana...en hvernig gerir maður gat fyrir svona viftu framan á, er þetta eitthvað sem maður gerir heima hjá sér eða fer og lætur gera fyrir sig ?
spn: þetta fer allt eftir því hvað þú telur mikla þörf á að kæla þetta og hvað þú ert að nota tölvuna mikið, plús það hvort þú viljir hafa hana silent og viljir geta sofið með tölvuna nálægt þér.
Þessi "mælir" er viftustýring og get ég mælt 100% með henni, mjög góð. Þarf hana samt ekki nema að þú sért með fleiri en 3 viftur, eða viljir geta slökkt/hægt á viftunum meðan þú sefur.
Örgjörvaviftan: Hef heyrt að hún sé mjög fín. Keypti svona en fattaði svo að það var ekki festingar fyrir hana á móbóinu þannig að ég varð að kaupa mér minni.
Kassaviftan: Ég er með svipaða svona viftu hjá mér og hún er að dæla heita loftinu vel út, sérstaklega ef maður tengir hana í viftustýringuna og lætur hana á max. Flot að hafa t.d. undir skjákortinu.
HDD viftan: Ættir ekki að þurfa hana ef þú ert með viftu að framan sem blæs lofti inn.
Þú sagðir sjálfur að þú værir með viftu að aftan, þá passar einmitt að henda einni að framan líka.
"Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool." //Lester Bangs - Almost Famous
Held að ég sé kominn með lausn á þessu núna,
ætla bara að setja eina 80mm Noiseblocker viftu framan sem að blæs inn og síðan PCI kassaviftuna og aðra hvora viftustýringuna :
pyro: maður þarf bara aðeins að "modda" það. Í minni viftu heyrist samt varla múkk þannig að það er ekkert nauðsynlegt að tengja hana á viftustýringuna. Ég tengdi hana bara afþví að ég vildi geta stýrt öllum viftunum
"Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool." //Lester Bangs - Almost Famous
CraZy skrifaði:hvað mundið þid segja að godur hiti væri fyrir harðadiska?
fyrir nedan 50? minn er oftast i 43-46 er það of mikid?
Algjört möst að vera fyrir neðan 50° c , minn samsung 160 gb keyrir á 30° c, og minnst hefur hann komist niður í 5 gráður, þegar ég setti hann í frystinn.
oki málid er ad eg er ekki med kassaviftu þannig ad etta er svona heitt hja mer, samt er ekkert heitt i kassanum flest um 30-35 nema hdd, en er reindar med viftu á heatsinki á örranum og einhver stokkur fra viftunni og út úr kassanum.