Þetta er með því heimskulegra sem ég hef séð.blackanese skrifaði:allavega ekki hjá björgunarsveitunum.
myndi aldrei detta í hug að kaupa hjá þeim og styrkja einhverja kalla sem leika sér á snjósleða uppá jökli.
Fyrir þá sem versla flugelda af björgunarsveitunum
Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Haf X- i7 2600k @ 4,4 ghz - Noctua NH-D14 - Asus p8p67pro - 2x4GB Kingston - Sapphire HD 6970 2GB - Corsair HX 850w - 120gb SSD
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2334
- Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Verð samt að vera sammála þessu[/quote]blackanese skrifaði:fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
Þetta er alveg rétt, áróðurinn er svakalegur..
Maður skilur samt vel punktinn hjá þeim sem búast ekki við að þurfa nokkurntíman á hjálp þeirra að halda, þetta er allt önnur hugsun heldur en hjá þeim sem ferðast mikið eða búa þar sem oft er snarvitlaust veður.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Þetta er alveg rétt, áróðurinn er svakalegur..Klaufi skrifaði:Verð samt að vera sammála þessublackanese skrifaði:fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
Maður skilur samt vel punktinn hjá þeim sem búast ekki við að þurfa nokkurntíman á hjálp þeirra að halda, þetta er allt önnur hugsun heldur en hjá þeim sem ferðast mikið eða búa þar sem oft er snarvitlaust veður.[/quote]
búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
og síðan hitt, þó svo að "þú" búir í kjarnorkuheldu húsnæði, þá gerir systir þín eða foreldrar það hugsanlega ekki, já eða annað skyldfólk.
en já, ég svo sem gagnrýni ekki þá sem að versla ekki við björgunarsveitirnar, sérstaklega þar sem að ég á frekar erfitt með það, kaupi lítið eða ekkert af flugeldum sjálfur, en að halda því fram að björgunarsveitar fólk sé að leika sér á vélsléðum upp á jökli eða álíka, svoleiðis vitleysa fer í taugarnar á mér.
jújú vissulega fær fólk að nota þessi tæki á einn eða annan hátt, yfirleitt kallast þetta æfingar, og let´s face it, þú æfist aldrei betur á neinu tæki en einnmitt með því að "leika þér" á því
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2334
- Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
urban skrifaði: búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
Munurinn á því hvaða áhrif veðráttan hefur á kaffihúsafastagestinn sem býr í 101 og mannin sem býr á sveitabæ einhversstaðar fyrir austan vatnajökul er töluverður.
Það var minn punktur, en þetta fólk ætti að vera í minnihluta.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
jájá vissulega hefur það minni áhrif á þann sem að býr í 101.Klaufi skrifaði:urban skrifaði: búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
Munurinn á því hvaða áhrif veðráttan hefur á kaffihúsafastagestinn sem býr í 101 og mannin sem býr á sveitabæ einhversstaðar fyrir austan vatnajökul er töluverður.
Það var minn punktur, en þetta fólk ætti að vera í minnihluta.
en aftur á móti er ekki einsog það sé alltaf sama fólkið sem að björgunarsveitir aðstoða.
og í raun allir í svipaðri hættu þegar að kemur að því.
(lagaði kvótið fyrir þig)
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Smá trololol
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Aldrei heyrt talað um að stærðin skipti ekki máli?methylman skrifaði:Þetta er nærri því óséð það er ekkert mál á flugeldunum, eða ekkert eldspítur eða annað sem hægt er að meta stærðna á þessu eftir. Dettur ekki í hug að kaupa neitt óséðpattzi skrifaði:Var að panta tvo 10 flugeldar í pakka á kraftkaup


Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 901
- Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Þarna gerir hún það, fyrir mig allavega. Ekkert smáprump.Glazier skrifaði:Aldrei heyrt talað um að stærðin skipti ekki máli?methylman skrifaði:Þetta er nærri því óséð það er ekkert mál á flugeldunum, eða ekkert eldspítur eða annað sem hægt er að meta stærðna á þessu eftir. Dettur ekki í hug að kaupa neitt óséðpattzi skrifaði:Var að panta tvo 10 flugeldar í pakka á kraftkaup![]()
Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
blackanese skrifaði:allavega ekki hjá björgunarsveitunum.
myndi aldrei detta í hug að kaupa hjá þeim og styrkja einhverja kalla sem leika sér á snjósleða uppá jökli.
fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
imo.
Fyrirgefið að ég skuli vera að vera með smá þráðrán, en sjálfur er ég í björgunarsveit og hef verið í rúm 5 ár, sjálfur ferðast ég mikið á fjöllum og vinn sömuleiðis mjög mikið uppi á fjöllum og í óbyggðum Íslands við mína vinnu. Til að gefa smá hugmynd að þá eyði ég að jafnaði kannski 10-20 tímum í hverri viku í ýmiskonar sjálfboðavinnu í minni björgunarsveit og það er viðhald á tækjum, sjá til þess að búnaður er útkallshæfur, tiltektir, sinna mínum eigin persónulega útkallsbúnaði sem að ég hef verslað fyrir mína peninga og nýlega reiknaði ég að það væri búnaður að andvirði rúmlega 700.000 kr. sem að ég væri með í mínum skáp.
Björgunarsveitir á Íslandi eru flestar að nánast öllu leyti reknar fyrir tekjurnar af flugeldasölunni sem þýðir að þær hafa 6 daga á ári til að ná að brúa árið og fá fjármagna starfið yfir það ár. Sumar minni sveitir t.d. geta lent í vandræðum ef að tæki tjónast og hætta er á að þær leggist einfaldlega niður og sömuleiðis ef að flugeldasala gengur illa þarsem að ríkið styrkir björgunarsveitirnar ekki beint en kemur að rekstri 13 björgunarskipa sem eru hringinn í kringum landið.
Sjálfur hef ég ekkert á móti því að einkasalar séu að selja og fagna þeirri fjölbreytni sem þeir bjóða uppá og allt gott og ljómandi ef að fólk verslar þar.
En svona heimskuleg ummæli sem að byggja á ekki neinu nema fáfræði og skilningsleysi á því stórmerkilega starfi sem að er unnið undir merkjum björgunarsveita á Íslandi og er bara væl sem á ekki neinn rétt á sér.
Ég vona bara að ég sjái sem flesta Vaktara koma og versla af björgunarsveitum í sinni heimabyggð og vona að allir gott yfir hátíðirnar og eigi gleðilegt nýtt ár sama hvar þeir versli sína flugelda, þ.e. allir nema blackanese sem er klárlega rasshaus sem veit voðalega lítið.
-
- Græningi
- Póstar: 30
- Skráði sig: Þri 27. Des 2011 02:28
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Ég má til með að leggja hér smá orð í belg. Það er algerlega ólíðandi að íþróttafélög og önnur álíka óþörf samtök og fyrirtæki reyni að fá smá bita af þessari flugeldaköku, því það er gefið mál að allar forsendur fyrir hagnaði af flugeldasölunni eru brostnar ef Hjálparsveit skáta er ekki með a.m.k. 90% markaðshlutdeild á flugeldamarkaðnum hér á landi. Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað og gefa skít í það óeigingjarna starf sem skátarnir hafa unnið í þágu okkar þjóðar í gegnum árin. Frændi minn heitinn sem var eitt sinn var næstum því orðinn skátaforingi myndi snúa sér við í gröfinni ef hann vissi hvers konar níðingsverk væru framin hér um hver áramót af hálfu þessara arðræningja. Ég legg til að fólk fylki liði og mótmæli þessu óréttlæti. T.d. tunnumótmæli fyrir utan eitthvert íþróttafélagið og ef það kveikir ekki í mannskapnum þá væri jafnvel hægt að bera eld að fána viðkomandi félags. Það myndi sko þurrka glottið af þessu liði í eitt skipti fyrir öll. Einn fjúkandi reiður en jafnframt dyggur stuðningsmaður skátahetjanna okkar




-
- Vaktari
- Póstar: 2599
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Robertas Denton skrifaði:Ég má til með að leggja hér smá orð í belg. Það er algerlega ólíðandi að íþróttafélög og önnur álíka óþörf samtök og fyrirtæki reyni að fá smá bita af þessari flugeldaköku, því það er gefið mál að allar forsendur fyrir hagnaði af flugeldasölunni eru brostnar ef Hjálparsveit skáta er ekki með a.m.k. 90% markaðshlutdeild á flugeldamarkaðnum hér á landi. Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað og gefa skít í það óeigingjarna starf sem skátarnir hafa unnið í þágu okkar þjóðar í gegnum árin. Frændi minn heitinn sem var eitt sinn var næstum því orðinn skátaforingi myndi snúa sér við í gröfinni ef hann vissi hvers konar níðingsverk væru framin hér um hver áramót af hálfu þessara arðræningja. Ég legg til að fólk fylki liði og mótmæli þessu óréttlæti. T.d. tunnumótmæli fyrir utan eitthvert íþróttafélagið og ef það kveikir ekki í mannskapnum þá væri jafnvel hægt að bera eld að fána viðkomandi félags. Það myndi sko þurrka glottið af þessu liði í eitt skipti fyrir öll. Einn fjúkandi reiður en jafnframt dyggur stuðningsmaður skátahetjanna okkar![]()
![]()
ja ok
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
mér finnst skáti svo lame orð....... 

-
- Græningi
- Póstar: 30
- Skráði sig: Þri 27. Des 2011 02:28
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
U mad bro ?Robertas Denton skrifaði:Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
-
- Græningi
- Póstar: 30
- Skráði sig: Þri 27. Des 2011 02:28
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Kanntu annan, væni? Ég læt ekki einhverja netdólga eins og þig koma mér úr jafnvægi.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sýnist þú bara vera kominn úr jafnvægi alveg á eigin spíturRobertas Denton skrifaði:Kanntu annan, væni? Ég læt ekki einhverja netdólga eins og þig koma mér úr jafnvægi.

Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- Græningi
- Póstar: 30
- Skráði sig: Þri 27. Des 2011 02:28
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sitt sýnist hverjum hater 

-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
http://www.youtube.com/watch?v=WRmBChQjZPs" onclick="window.open(this.href);return false;
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 993
- Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Læra skátar sem sagt sjálfsvarnarlistir líka? Hélt að maður lærði bara hnúta og að kveikja eld í skátunum.Robertas Denton skrifaði:Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m
-
- Græningi
- Póstar: 30
- Skráði sig: Þri 27. Des 2011 02:28
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Ég held að þú sért búinn að horfa á aðeins of mikið af Disney myndum því þú ert greinilega með brenglaða hugmynd í kollinum um það að skátarnir snúist bara um að haldast í hendur og syngja kumbaya á meðan þeir grilla sykurpúða og orna sér við opinn eld.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Robertas Denton skrifaði:Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað

Also, fólk er akkúrat ekkert skuldbundið til þess að kaupa flugelda hjá björgunarsveitum. Þessi heimtifrekja er beyond mindblowing. Í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að versla púðrið sitt annarsstaðar þá hrópa menn landráð, hvílíka ruglið.
Fólki er frjálst að eyða peningunum sínum á þeim stöðum sem það kýs. Ekki myndi ég reka bissness undir því yfirskyni að 1 vika á ári borgi fyrir reksturinn og hvað þá ef sú vika innifelur ekki sölu á neinu sem ég hef einkaleyfi á. Björgunarsveitir ættu ekki heldur að gera það. Fólk ætti frekar að vera heimta nýjar söfnunaraðferðir en að standa í nornaveiðum á samborgurum sínum vegna þess að það er ekki í áskrift að forræðishyggju þeirra.
Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Ég veit ekki hvaða undarlega heimi þú og þeir sem að fallast undir þessa "okkur" lifa íGormurX skrifaði:Okkur ber siðferðileg skylda til að standa dyggilega við bakið á hjálparsveitunum um áramótin og flugeldasala er þeirra aðal tekjulind.
Þetta fólk fórnar ótrúlega miklu fyrir okkur, bæði í tíma og eigin fjármunum auk þess að það leggur sig í stór hættu við björgunarstörf.
Það kemur ENGINN annar flugeldasali og neglir fyrir gluggan þinn ef hann brotnar í ofviðri eða þakið fýkur af.
en mér ber ekki siðferðisleg skylda til að styrkja hjálparsveitir.
Sannleikurinn er sá að með því að kaupa flugelda hjálparsveitanna á dýrara verði er maður einfaldlega
að kjósa það að styrkja um leið hjálparsveitirnar og fá þar með minna af flugeldum fyrir peninginn sinn.
Það eru mun verðugri góðgerðarsamtök en hjálparsveitirnar á Íslandi og mörg þeirra geta bjargað mun fleiri mannslífum fyrir peninginn en þær.
Ef eitthvað er þá ber þér siðferðisleg skylda til að styrkja þau góðgerðarsamtök sem að munu nýta fjármagnið best;
bjarga sem flestum mannslífum og lágmarka hvað mestan sársauka.
Það eru hinsvegar ekki hjálparsveitirnar á Íslandi - og þær eru ekki nálægt því -, svo að þú ættir ekki að skírskota til siðferðislegra skyldna.

Ég veit fyrir víst að þetta eru í besta falli ýkjur, vissulega kemur megnið af fjármagninu inn um áramótinDabbiGj skrifaði:Björgunarsveitir á Íslandi eru flestar að nánast öllu leyti reknar fyrir tekjurnar af flugeldasölunni sem þýðir að þær hafa 6 daga á ári til að ná að brúa árið og fá fjármagna starfið yfir það ár.
en það er mjög misvísandi að segja "að nánast öllu leyti" ef þú spyrð mig.

Modus ponens
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Algjörlega sammála, maður fær samviskubit ef maður hugsar um að spara og kaupa af öðrum en björgunarsveitunum, slíkur er áróðurinn og heilaþvotturinn.fallen skrifaði:Robertas Denton skrifaði:Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað
Also, fólk er akkúrat ekkert skuldbundið til þess að kaupa flugelda hjá björgunarsveitum. Þessi heimtifrekja er beyond mindblowing. Í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að versla púðrið sitt annarsstaðar þá hrópa menn landráð, hvílíka ruglið.
Fólki er frjálst að eyða peningunum sínum á þeim stöðum sem það kýs. Ekki myndi ég reka bissness undir því yfirskyni að 1 vika á ári borgi fyrir reksturinn og hvað þá ef sú vika innifelur ekki sölu á neinu sem ég hef einkaleyfi á. Björgunarsveitir ættu ekki heldur að gera það. Fólk ætti frekar að vera heimta nýjar söfnunaraðferðir en að standa í nornaveiðum á samborgurum sínum vegna þess að það er ekki í áskrift að forræðishyggju þeirra.

-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: Fyrir þá sem versla flugelda af björgunarsveitunum
Er Hjálparsveit Skáta það sama og Björgunarsveitin? 

-
- 1+1=10
- Póstar: 1115
- Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
- Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
- Staða: Ótengdur
Re: Fyrir þá sem versla flugelda af björgunarsveitunum
eftir að hafa lesið þennann þráð þá hef ég tekið þá ákvörðun að ég ætla aldrei að versla flugelda hjá björgunarsveitinni aftur
Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
My CPU's Hot But My Core Runs Cold