Jólavinur (Secret Santa)

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
jericho
Tölvutryllir
Póstar: 693
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Staða: Ótengdur

Jólavinur (Secret Santa)

Póstur af jericho »

Í vinnunni hjá mér var að hefjast jólavinaleikur og þetta er alltaf sami höfuðverkurinn; að finna góða hugmynd að gjöf/gjörning til að gera fyrir jólavininn. Mér datt því í hug hvort ekki væri sniðugt að safna saman hugmyndum í einn þráð. Þeir sem eru í skóla geta því nýtt sér þetta seinna þegar þeir fara út á vinnumarkaðinn (trust me, þetta á eftir að koma að góðum notum). Ég mun safna svörunum saman og útbúa lista hérna í efsta pósti.

Leikurinn í vinnunni minni er þannig að maður skal gera eitthvað gott fyrir viðkomandi á hverjum degi, frá mánudegi til föstudags. Á síðasta degi kemur í ljós hver vinurinn var.

Vinsamlegast enga hrekki.

Reynum líka að STAY ON TOPIC.

1. Fá vin þinn til að koma í vinnuna í jólasveinabúning og færa viðkomandi kaffi/kakó og meððí
2. Útbúa lítinn ratleik og láta viðkomandi labba um allan vinnustaðinn til að finna svo litla gjöf.
3. Stofna gmail aðgang á nafni viðkomandi (fornafn.föðurnafn@gmail.com) og bjóða vinnufélögum í malt&appelsín í kaffinu (sem þú ert búinn að útbúa sjálfur)
.
.
.

5600x | DH-15 | ASUS GTX 1060 6GB | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Staða: Ótengdur

Re: Jólavinur (Secret Santa)

Póstur af Jim »

.
Last edited by Jim on Fim 28. Mar 2013 13:32, edited 1 time in total.
Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1519
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Staðsetning: Á sporbaug sólar
Staða: Ótengdur

Re: Jólavinur (Secret Santa)

Póstur af Benzmann »

það er nú yfirleitt bara unnið í vinnunni hjá mér, ekki mikið fyrir skrípaleiki þar
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Svara