Fartölvan mín farin að hitna aðeins of mikið... viftan á fullu. Er nóg að láta hreinsa úr henni rykið eða þarfnast hún alvarlegri aðgerða?
Hvert á ég að snúa mér með þetta vandamál?
Mbk. Fernando
Rykhreinsa fartölvu - Hvert skal fara?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Rykhreinsa fartölvu - Hvert skal fara?
Flestar ef ekki allar tölvuverslanir taka þetta að sér, s.s. rykhreinsun. Það væri einnig hægt að skipta þá um kælikrem sem er á milli sjálfrar kælingarinnar og örgjörvans (skjákortsins líka ef staðan er þannig).
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Rykhreinsa fartölvu - Hvert skal fara?
Ef það er fjarlægjanleg loka f. ofan viftuna er þetta e-ð sem þú ættir að geta gert sjálfur með skrúfjárni, afskaplega einfalt. Yfirleitt nóg að taka lokið af og kæli unitið úr, blása úr viftunni og skipta um kælikrem. Sumar vélar þarf þó að taka meira eða minna í sundur til að komast að viftunni og þá er oft betra að láta fagmenn um þetta.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Re: Rykhreinsa fartölvu - Hvert skal fara?
Fínt að segja hvernig vél þetta er.Fernando skrifaði:Fartölvan mín farin að hitna aðeins of mikið... viftan á fullu. Er nóg að láta hreinsa úr henni rykið eða þarfnast hún alvarlegri aðgerða?
Hvert á ég að snúa mér með þetta vandamál?
Mbk. Fernando
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.