S.s. að stýrikerfið sé optimize-að til að nýta móðurborðið í botn. Apple eru ekki að hanna neina íhluti.GuðjónR skrifaði:??SteiniP skrifaði:Held það sé einmitt akkúrat öfugt.GuðjónR skrifaði: En þú ert líka að borga fyrir móðurborðið sem er hannað af Apple til að nýta stýrikerfið í botn.
Mac/MacOs vs Pc/Win
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
SteiniP skrifaði:S.s. að stýrikerfið sé optimize-að til að nýta móðurborðið í botn. Apple eru ekki að hanna neina íhluti.GuðjónR skrifaði:??SteiniP skrifaði:Held það sé einmitt akkúrat öfugt.GuðjónR skrifaði: En þú ert líka að borga fyrir móðurborðið sem er hannað af Apple til að nýta stýrikerfið í botn.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Corsair, Samsung, ATI, Supermicro, Xeon.. Skil ekki alveg hvaða drasl þú ert að tala um?Snuddi skrifaði:
Þannig að þú líkir einhverju drasli við öflugstu Mac Pro vélina. Þetta er svo týpískt innlegg, bara OEM örgjörvanir í þessa vél þarna fyrir ofan og minnið kosta 4.000$..... og svo er allt eftir og tala ekki um build quality ofl .
Ekki misskilja mig, ég hef fullan skilning á hvers virði gæði og ending eru, en þegar kemur að borðtölvum hafa þessir hlutir bara x mikið vægi. Það að það sé rúmlega 4.000$ dollara munur á þessum vélum og að svart á hvítu sé customized vélin meira segja öflugri, segir allt sem verið er að reyna að segja.
Það þarf ekki einu sinni að ræða það hvort margar/flestar Apple vörur séu overpriced. Spurningin er frekar, hversu mikið.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
móðurborðið að grundvelli er intel + apple PUNKTUR!
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Turnkey vélar eru ekkert mikið ódýrari en macpro vélar þannig að ég legg til að menn gefist upp á því að rífats um þetta. Alveg einsog sumir velja sérþ að að versla sér íhluti og smella saman frekar en að versla rándýra compaq fujitsu siemens vél að þá velja sumir sér það að versla Macca sama hvaða formi þeir koma í.
Eftir að hafa staðið í því að vera að sérpanta dýrar pc fartölvur með 1080p skjám o.s.f. sem að eru sambærilegar macbook pro vélum t.d. að þá er verðið á þeim ekkert rosalega galið auk þess að maccinn er betur smíðaður í flestum tilfellum.
Eru ekki intel reference borð í þeim smíðuð af foxconn ?
Eftir að hafa staðið í því að vera að sérpanta dýrar pc fartölvur með 1080p skjám o.s.f. sem að eru sambærilegar macbook pro vélum t.d. að þá er verðið á þeim ekkert rosalega galið auk þess að maccinn er betur smíðaður í flestum tilfellum.
Eru ekki intel reference borð í þeim smíðuð af foxconn ?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
já og nei og nei og já...
overpriced?
Hvað stjórnar verðlagningu? framboð og eftirspurn er það ekki? Ef vara er sett á markað og hún selst ekki þá er verðið á henni lækkað í þeirri von að örvar sölu rétt?
Ef önnur vara er sett á markað og hún er svo vinsæl að sama hvað hún er veðrlögð hátt þá annar framleiðandi ekki eftirspurn, er sú vara þá overpriced?
Þegar iMac 27" kom á markaðinn þá var talað um overpriced vélar, samt annaði Apple ekki eftirspurn, það var þriggja vikna bið frá eftir tölvunum.
Sjáðið hvað gerist þegar "overpriced" iPhone koma á markað...þeir seljast svo vel að fólk erlendis tjaldar fyrir utan verslanir.
Ef vara selst og framleiðandi annar ekki eftirspurn þá er varla hægt að tala um "overprice" ... eða hvað?
Ég viðurkenni vel að þessar vörur eru rosalega dýrar, en á sama tíma segi ég fyrir mína parta að þær eru hverra krónu virði.

- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Apple mun allaf vera Overpriced á meðan fólk er tilbúið að borga of mikið fyrir vöruna. Ég persónulega er ekki tilbúinn að gera það og held mig frá öllu sem ber þetta Epli á sér.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Það er akkúrat málið!einarhr skrifaði:Apple mun allaf vera Overpriced á meðan fólk er tilbúið að borga of mikið fyrir vöruna. Ég persónulega er ekki tilbúinn að gera það og held mig frá öllu sem ber þetta Epli á sér.
Verð á vöru getur aldrei verið annað en það sem fólk er tilbúið að greiða fyrir hana.
Engin geimvísindi.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Þær eru overpriced þegar horft er á allt sem hægt er að setja á blað. Þrátt fyrir gæðin, lága bilanatíðni, endingu og útlit eru þessar vörur á blaði samt oft overpriced. Inn í þessa jöfnu vantar svo akkúrat þetta trend/tísku sem Apple hefur tekist að búa til í kringum vörurnar sínar. Það er alveg hægt að láta sérsauma á sig jakkaföt úr nákvæmlega sömu efnum og Armani notar, og líta jafn vel út - En samt myndu mjög margir mikið frekar kaupa Armani jakkafötin.GuðjónR skrifaði:já og nei og nei og já...
overpriced?
Hvað stjórnar verðlagningu? framboð og eftirspurn er það ekki? Ef vara er sett á markað og hún selst ekki þá er verðið á henni lækkað í þeirri von að örvar sölu rétt?
Ef önnur vara er sett á markað og hún er svo vinsæl að sama hvað hún er veðrlögð hátt þá annar framleiðandi ekki eftirspurn, er sú vara þá overpriced?
[..]
Ég viðurkenni vel að þessar vörur eru rosalega dýrar, en á sama tíma segi ég fyrir mína parta að þær eru hverra krónu virði.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
svo má ekki gleima endursölu möguleikum.
Apple heldur gildi sínu allveg rosalega vel þegar kemur að því að selja og það er plús
Apple heldur gildi sínu allveg rosalega vel þegar kemur að því að selja og það er plús
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
hahahaha akkúrat!AntiTrust skrifaði:GuðjónR skrifaði:Það er alveg hægt að láta sérsauma á sig jakkaföt úr nákvæmlega sömu efnum og Armani notar, og líta jafn vel út - En samt myndu mjög margir mikið frekar kaupa Armani jakkafötin.
Það mætti kannski kalla þetta snobb?
Það er pottþétt fullt af fólki sem kaupir Apple vorur, t.d. iMac, iPhone eða eitthvað annað "fancy" bara af því að það er það "dýrasta"...
Kitlar hégómagirndina að segjast eiga 200k síma...eða 600k tölvu...sem gerir kannski ekkert meira en eitthvað ódýrt drasl frá Samsung
Hárrétt, að kaupa iMac á 270k nota hana í tæp tvö ár og selja hana síðan á 210k er ekki slæmt, og sá sem kaupir selur svo á 150k tveim árum eftir það (4 árum eftir upphaflegu kaup).worghal skrifaði:svo má ekki gleima endursölu möguleikum.
Apple heldur gildi sínu allveg rosalega vel þegar kemur að því að selja og það er plús
Ekkert annað merki í tölvuheiminum heldur verðgildi sínum á þennan hátt.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
GuðjónR skrifaði:Það er akkúrat málið!einarhr skrifaði:Apple mun allaf vera Overpriced á meðan fólk er tilbúið að borga of mikið fyrir vöruna. Ég persónulega er ekki tilbúinn að gera það og held mig frá öllu sem ber þetta Epli á sér.
Verð á vöru getur aldrei verið annað en það sem fólk er tilbúið að greiða fyrir hana.
Engin geimvísindi.
Ég er oft á leiðinni að skrifa þetta í hinn eða þennan verðlögguþráðinn. Verðið er "rétt" ef nógu margir eru tilbúnir að borga það til að gera framleiðsluna/söluna arðbæra. Ekkert að því í sjálfu sér, þeir (við) sem vilja ekki borga jafn mikið pening leita þá á aðra staði.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Ég var svo sem ekki búinn að fara í gegnum allan þráðinn, en álit mitt á Mac tölvum er ekki gott. Ég fékk gefist 2008 Unibody vél og ákvað að uppfæra hana úr Leopard í Snow og svo Lion og við þetta þá skemmdist rafhlaðan í helvítis vélinni og ég fór aðeins að googla þetta og þá er þetta algengt...datt þetta bara engan vegin í hug. Svo er mitt álit á þessu stýrikerfi það að þetta er fyrir aldraða og þroskahamlaða. Engan veginn að fíla þetta þó svo að þetta sé ósköp svipað.
Fáránlegt að þegar að þeir koma með "nýja" tölvu þá er nánast engin uppfærsla. Kannski eitt ónothæft tengi eða svo. Þá helst þetta náttúrulega betur í verði.
iCloud er líka eitt fáránlegt dæmi...getur verið með Windows XP og það virkar en verður að vera með Lion svo að þú getir notað það. Er ekki alveg að fatta þá vitleysu.
Windows 7 er allavega þannig að þú getur verið með mjög auðvelt og gott stýrikerfi sem þú getur fiktað í ef þú vilt. Sumir eiga bara hreinlega ekki að eiga tölvu og þá skiptir engi máli hvort að hún sé epli eða eitthvað annað.
Hvað vírusa varðar þá þarftu eiginlega að leita eftir honum til að ná þér í vírus. Það er allavega mín reynsla.
Ég var mjög sáttur við iPhone-inn minn og var búinn að eiga einn slíkann í 4 ár. Þeir eru t.d. bara nothæfir Jailbreak-aðir...þó nokkrir gallar í iOS sem hægt er að laga með Jailbreak eða allavega svona í áttina.
P.s. rafhlaðan er ný búin að skemmast þannig að það er kannski smá pirringur í þessu hjá mér en svona er þetta bara...

i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Þetta verður alltaf svona stríð á meðan Apple haters neita að horfa í annað en tölur á blaði.
Þetta er alveg eins og með símana, Síminn með sverustu spekkana er sjálkrafa alltaf sá besti hjá þessum mönnum.
Þetta snýst ekki um megarið og gígabæt.
Þetta er alveg eins og með símana, Síminn með sverustu spekkana er sjálkrafa alltaf sá besti hjá þessum mönnum.
Þetta snýst ekki um megarið og gígabæt.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Það skilja það ekki allir.einsii skrifaði:Þetta snýst ekki um megarið og gígabæt.
P.S, búðu þig undir að verða plaffaður niður í næstu póstum.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Þegar ég skoðaði póstinn hans Steina kom bara einhver skrítinn "broskarl" þarna en ekki þessi innkaupakarfa þannig að ég hefði ekki hugmynd um hvaða íhluti hann væri að tala um. En jú þetta er "sambærileg" tölva ef þú tekur þessa tvo pakka saman. Þar sem það er jú vitað að þú borgar fyrir merkið og hef aldrei farið á bakvið það, eins og í öllu (sjónvörpum ofl með sama myndlampa en merkin toga verðið upp) þá eykst bilið ef þú velur dýrustu vélina frá Apple, en ef þú hefðir tekið vélina sem var umrætt fyrst þá hefði bilið ekki verið svona mikið, sem kostar 600þús hérna heima.
Sé reyndar ekki hvar þú færð út 70% mun, hjá mér reiknast þetta sem 43% verðmunur.
PS. og fyrir mitt leiti hef ég ekki mikið pælt í Mac Pro, aðalega fartölvunum þeirra (og elska nýju MacBook Air vélina mína) en eftir þessar umræður hafa líkurnar á að næsta "borðvél" verði bara líka Mac þegar þeir uppfæra í 2011 sökklana

Það er nú líklega bara einsog að láta hrauna yfir sig inni á leikskóla, maður tekur það ekki mikið inn á sigtdog skrifaði:Það skilja það ekki allir.einsii skrifaði:Þetta snýst ekki um megarið og gígabæt.
P.S, búðu þig undir að verða plaffaður niður í næstu póstum.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Ég þurfti svo sem ekki að hugsa mig 2var um.......Bara með einum xeon og engu skjákorti
vs
vs
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Kjartan, þú veist auðvita að HP vélin er eingöngu eingöngu server vél? Útskýrir möguleika af 192GB vinnsluminni vs. 64GB, SAS diskur + SAS Raid stýring ofl. þám. afhverju það er ekki skjákort í vélinni. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að þær eru báðar með Xeon örgjörva.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
þær eiga það líka sameiginlegt að vera server vélardaanielin skrifaði:Kjartan, þú veist auðvita að HP vélin er eingöngu eingöngu server vél? Útskýrir möguleika af 192GB vinnsluminni vs. 64GB, SAS diskur + SAS Raid stýring ofl. þám. afhverju það er ekki skjákort í vélinni. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að þær eru báðar með Xeon örgjörva.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
daanielin skrifaði:Kjartan, þú veist auðvita að HP vélin er eingöngu eingöngu server vél? Útskýrir möguleika af 192GB vinnsluminni vs. 64GB, SAS diskur + SAS Raid stýring ofl. þám. afhverju það er ekki skjákort í vélinni. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að þær eru báðar með Xeon örgjörva.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
Eins og að reyna að láta kubb í vitlaust gat
Jafn ómögulegt og að gera samanburð um þetta
massabon.is
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Hún er nú kölluð grafísk vinnustöð.daanielin skrifaði:Kjartan, þú veist auðvita að HP vélin er eingöngu eingöngu server vél? Útskýrir möguleika af 192GB vinnsluminni vs. 64GB, SAS diskur + SAS Raid stýring ofl. þám. afhverju það er ekki skjákort í vélinni. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að þær eru báðar með Xeon örgjörva.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Tekur auðvitað eina verstu OKurbúllu landsins sem dæmi. Álagnagningin hjá epli.is er líklega minni.Snuddi skrifaði:Ég þurfti svo sem ekki að hugsa mig 2var um.......Bara með einum xeon og engu skjákorti
http://myndahysing.net/upload/281322696921.png" onclick="window.open(this.href);return false;
vs
http://myndahysing.net/upload/111322697130.png" onclick="window.open(this.href);return false;
Er þetta ekki nokkurnveginn sama vél?
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6883147795" onclick="window.open(this.href);return false;
Reyndar með $750-800 quadro skjákorti.
Þú auðvitað borgar eitthvað fyrir HP merkið líka eins og með allar merkjavörur.
MacPro vélin = 1.71... * custom vélinSé reyndar ekki hvar þú færð út 70% mun, hjá mér reiknast þetta sem 43% verðmunur.
Fer eftir hvernig þú vilt reikna þetta.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
hahahaha vesley, held það sé ekki hægt að slátra umræðunni á betri hátt en þú gerir þarna
Re: Mac/MacOs vs Pc/Win
Þessi vél þeirra er nú undir "grafískar vinnslustöðvar"daanielin skrifaði:Kjartan, þú veist auðvita að HP vélin er eingöngu eingöngu server vél? Útskýrir möguleika af 192GB vinnsluminni vs. 64GB, SAS diskur + SAS Raid stýring ofl. þám. afhverju það er ekki skjákort í vélinni. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að þær eru báðar með Xeon örgjörva.
Ekkert ósvipað því að bera saman traktor og racer.
https://www.okbeint.is/hpbeint/ui/vorur/list.do?id=32