Stella þýðir stjarna og upprunalega var aðeins um að ræða jólabjór. Hann varð svo vinsæll að nú er hann seldur allan ársins hring, en ef mér skjátlast ekki er flaskan atarna gamla jóla lúkkið.
Omerta skrifaði:Stella þýðir stjarna og upprunalega var aðeins um að ræða jólabjór. Hann varð svo vinsæll að nú er hann seldur allan ársins hring, en ef mér skjátlast ekki er flaskan atarna gamla jóla lúkkið.
Gaman að fá þessa útskýringu, en ef þetta átti að vera jólabjór eingöngu en varð svo að heilsársbjór þá hlýtur hann að vera góður.
Hef ekki smakkað Stelluna ennþá, en það er komið á to.do listann....hefði ekkert á móti svona korktappa flösku...alltaf stemning að skjóta tappa en líklegast verður maður að sætta sig við gamla góða tappann
paze skrifaði:Gerði mér ferð eftir þennan þráð og náði í einn...Reyndar ekkert svona fínerí eins og hjá ykkur, heldur 1stk Lager... Svona kl. 6 að morgni til..
Ég er svo innilega ekki að fíla Tuborg Julebryg, finnst eitthvað skrítið bragð...kannski var ég bara óheppin með dós...
En Malt jólabjórinn hann klikkar ekki. Það ætti að hætta að kalla hann jólabjór og setja hann í almenna sölu.
Kræst hvað hann er góður! Ætla að fá mér einn núna....Skál!
GuðjónR skrifaði:Ég er svo innilega ekki að fíla Tuborg Julebryg, finnst eitthvað skrítið bragð...kannski var ég bara óheppin með dós...
En Malt jólabjórinn hann klikkar ekki. Það ætti að hætta að kalla hann jólabjór og setja hann í almenna sölu.
Kræst hvað hann er góður! Ætla að fá mér einn núna....Skál!
Ég er sammála þér með Tuborg Julebryg. Keypti 12 svona gaura í litlum dósum og þeir eru ekki eins góðir og í fyrra :/ Er ekki Egill líka byrjaður að brugga þá núna? Var þetta ekki alltaf flutt inn frá DK síðustu ár ?
Annars Jóla Bock og venjulegi jólabjórinn frá Víking eru bestu bjórarnir að mínu mati þetta árið
CPU: Intel i9 10850K @ 5.2GHz in Asus ROG Z490-E Strix
Ram: Corsair Vengeance 4x16GB DDR4 3200MHz
Primary: Samsung 970 EVO Plus SSD 1TB - M.2 NVMe
Secondary: Samsung 970 EVO Plus SSD 1TB - M.2 NVMe
GPU: Asus RTX 3070 OC Strix
PSU: Corsair RM750x
Case:Fractal Design Define R6
Monitor:Samsung Odyssey G7 1440p 240hz
bjarturv skrifaði:
Ég er sammála þér með Tuborg Julebryg. Keypti 12 svona gaura í litlum dósum og þeir eru ekki eins góðir og í fyrra :/ Er ekki Egill líka byrjaður að brugga þá núna? Var þetta ekki alltaf flutt inn frá DK síðustu ár ?
Mig minnir það jú, þetta er eins og með Tuborg Classic.. Þessi í stóru dósunum er framleiddur á íslandi en þessi í litlu framleiddur í DK og margfalt margfalt betri!