Ég er þrettán ára og er að fara að fermast á næsta ári. Var að pæla í hvaða fartölva væri best að fá í fermingargjöf fyrir 120.000 eða minna.
Ef þið hafið séð góðar og flottar fartölvur.. endilega segja mér það.
Er að pæla í einhverri betri en þessari ---> http://tolvutek.is/vara/packard-bell-ea ... olva-svort" onclick="window.open(this.href);return false;
Myndi fara í borðtölvu, þegar að ég fermdi mig keypti ég lappa var sáttur með þessi kaup í svona mánuð. En ef þú vilt lappa myndi ég bíða eftir að tilboðin koma.
|Macbook Air 2013|
|NZXT H440W|ASUS P8Z68-V/GEN3|Intel i5 2500k|MSI 560TI Twin Frozr III|16GB Corsair Vengence DDR3 1600mhz|EVGA 750W Modular|
! VERSLA EKKI VIÐ TÖLVUVIRKNI !
Ég myndi fá mér borðtölvu, nema þá þú sért að fara útí 10" tölvu þá svosem skiptir það engu hvað þú velur, ég keypti fyrir fermingarpeningana amd 4200+vél með 9600gt korti og sú vél virkar flott ennþá og spilar flesta leiki, ef ég hefði fengið mér fartölvu þá væri hún prob ónothæf núna.. þannig ég myndi fá mér desktop vél.
Ef þú ætlar að spila leiki þá færðu þér fartölvu með AMD Llano örgjörva, sem er með skjákortið á örgjörvanum sjálfum(A8-3850, A6-3600, o.s.frv.). Það er akkurrat það sem er í þessari Packard Bell tölvu sem þú ert að benda á. Ef þú ætlar ekki að spila neina leiki eða gera neitt sem krefst góðs skjákorts þá færðu þér Intel örgjörva, eins og tölvan á buy.is er með. Færð ekki skjákort sem er betra en skjákortið á Llano örgjörvunum fyrir þennan pening.
Hvenær mun þessi tölva vera keypt? Það er mjög erfitt að mæla með einhverri einni fartölvu núna því að þetta á eftir að breytast áður en þú fermist. Mæli með því eins og einhver annar sagði að bíða eftir fermingartilboðunum. Jafnvel getur verið að það verði komið eitthvað af AMD Trinity þá og þá jafnvel enn sniðugra að fara í AMD.
Held að menn fatti ekki hvað skjástýringarnar eru orðnar lúmskt öflugar í dag er með HP Probook 4530 með intel 2310 með HD 3000 eða eitthvað álíka og hún keyrir cs:s, TF2 og fleirri leiki með glans.
En auðvitað ef menn vilja nýjasta nýtt og fínast ða þá eru það önnur lögmál í gangi.
Intel skjástýringin getur ýmislegt í dag en AMD skjástýringin getur meira og kostar svipað. Þannig að ef maður hefur valið á milli Intel skjástýringu og AMD skjástýringu fyrir leikina þá velurðu AMD.
Ef ég væri að fara að kaupa mér fartölvu þá myndi ég tvímælalaust fá mér þessa Thinkpad e420 hjá búðin.is
Þessi kæmi líka til greina ASUS B43J-A1B hjá Kísildal
En eins og kom fram hér á undan þá eru nú einhverjir mánuðir í fermingar og bæði verðlækkanir og útsölur í millitíðinni svo ég myndi bíða og sjá til...
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.
Haha sammála!
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.
Svo þú varst sofandi á gólfinu áður þá?.
Atvinnunörd - Part of the 2% > FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
ég myndi ekkert vera að skoða 17 tommu fartölvurnar... fékk þannig og það var óþolandi hvað maður gat ekkert tekið þetta með sér, svo er batterís endingin ekkert betri.. mesta sem þu myndir fá eru 2 tímar
en þessi vél sem þú póstaðir er örugglega eitt besta valið, allaveganna af því sem ég hef séð á þessum tíma.
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.
Svo þú varst sofandi á gólfinu áður þá?.
Nei en ég er búinn að sofa í amerísku gæðarúmi síðan ég fermdist