Ég er að setja tölvu saman handa foreldrum mínum og hún verður aðallega notuð í að lesa og senda tölvupóst, vafra um á netinu og svona.
0% í tölvuleiki. Hérna kemur hún.
Eiginlega full öflug fyrir vafur og slíkt...bara að tölvan slefi rétt yfir gígahertz-ið er nóg til þess að tölvan sé mjög spræk í öllu sem að hún á að gera fyrir gamalt sett.
Þarft enga kassaviftu á þetta.
Þurfa þau skrifarann?
Fáðu þér móðurborð með innbyggðu skjákorti, ekki eins og þau þurfi powerið.
J0ssari: 400MHz RAM er algert overkill, ég held að einn 512MB 266MHz kubbur sé málið(tveir 256mb eru dýrari), Windows XP er farið að verða svolítið frekt á RAM. Síðan væri 40gb eða jafnvel 20gb diskur alveg nóg.
"open source fólkið gerir ekkert nema að stela hugmyndum annara" -- "open source fólk hugsar bara um sinn eigin rass" - IceCaveman, 2003
Mömmu minni finnst víst tölva ekki vera tölva nema að það sé skrifari í henni.
Samt líst mér mjög vel á það sem J0ssari er að segja en ætla að halda öllu nema móðurborði, örgjörva og skjákort. reyna að finna móðurborð með innbyggðu skjákorti og svona. er að hugsa um að fá mér þennanörgjörva og þetta móðurborð.
yrði rúmlega 46þús
það þarf ekki meira en 256MB ef þetta er bara notað af gömlu setti þótt þau noti WinXP halanegri... þau eru með Celeron vél hérna með 256MB af lélegustu sort, virkar vel í öll hefðbundin skrifstofu forrit.
Jamm, það er samt alltaf gott að fá öflugustu græjurnar fyrir peninginn. Gamla settið mun þá geta notað tölvuna fyrir Windows 2010 meðan þau vafra á Internet Explorer 10.1
Nei þau munu aldrei ráða við Windows 6 sama hversu öfluga tölvu þau kaupa núna. Longhorn er gert fyrir nýjan vélbúnað og tölvur sem munu keyra longhorn verða með sérstakt security hardware. Annars verður það Internet Explorer 7 og kerfið kemur út 2006-7 ekki 2010, nema þú sért að vitna í server útgáfuna.
ICMan: ég held að þetta sé ekki alveg rétt hjá þér. ég er með 133MHz k5 tölvu sem er bara með isa og vesa raufum og edo minni.. og ég er búinn að setja xp á hana. þessi vélbúnaður er orðinn meira en 10 ára. longhorn verður alveg með stuðning við vélbúnað á tölvum í dag. það er hellingur af fólki sem er með eldgamlar tölvur (sem servera eða whatever..) en vill alltaf hafa sem nýjastann hugbúnað og stýrikerfi. ég efast um að microsoft sleppi að hafa stuðning við nýlegann búnað og tapa þannig mörgum viðskiptavinum.
Gnarr Longhorn er meiri breyting en þú gerir þér grein fyrir. Þar á að vera sér öryggisbúnnaður innbyggður í vélbúnaðin og Palladium... Ekki miklar vonir um að núverandi vélbúnaður muni styðja slíkt kerfi.