Nuketown skrifaði:hvað haldiði að þessi gripur muni kosta hérna? 200+?
kostaði ekki Iphone 4 um 180 þús hérna á íslandi fyrst um sinn?
það er náttúrulega geðveikislegt verð á síma finnst mér:S
Ég keypti minn ólæstan í Kanada á 80.000 minnir mig.
Hann mun örruglega kosta jafn mikið og iPhone 4. Myndi samt alls ekki kaupa hann af ísl símafyrirtækjum, þeir eru með svona 80% álagningu sem er bara rugl.. ShopUSA er málið!
shop usa er samt líka með fáranlega háa álagningu:P
Auðvitað þurfa þeir að hafa eitthvað álagning til að græða eitthvað en þær eru alls ekki háar, félagi minn fékk til dæmis nýjan unlock iPhone 4 hjá þeim á 85-90 þúsund á meðan NOVA, síminn, elko og co. voru með hann á yfir 130 þúsund.
Og ýmindaðu þér hvað verðið hefði verið lágt ef hann hefði ekki farið með þetta í gegnum shop usa..
örfáir þúsundkallar...
ég panta alla varahluti þar í gegn eftir að ég komst að því þegar ég pantaði fyrir 50 þús úti heimkomið ef ég tæki þetta sjálfur var ekki nema tæplega 53 þúsund með shopusa........það fynnst mér ekki dýrt
Ég veit ekki hvaða verð þú færð hjá þeim en þetta er svo langt frá sannleikanum að það hálfa væri nóg.
Reiknum þetta bara, kaupi mér myndavél frá USA, kostar 2.475$ með fluttningskostnaði, þannig að komin heim með öllum gjöldum kostar hún mig 360.310 kr....... prufaðu nú að setja 2.400$ inní reiknivélina hjá SHOPUSA (ódýara því það er frí sending innan USA) og velja myndavélar og sjáðu þessa fallegu tölu sem kemur....... 456.713kr takk fyrir........96.000 bara í álögur til þeirra fyrir eina skítna myndavél sem er í kassa á stærð við skókassa!!!!
ég nenni nú ekki fyrir mitt litla líf að þrefa við þig en ég hef nú bara aldrei séð svona álagningu hjá þeim en þú ert líka ekki aðreikna með að þeir borga allt fyrir þig inn í þessari tölu, tollur, skattur...allt saman og ásamt tryggingu og þeir finna hlutina fyrir þig ef þeir týnast....það eitt og sér hefur bjargað mér frá heilmiklu veseni þegar partur af sendingu frá mér var sendur til taiwans
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
@biturk
Hahaha, gerðist líka við mig þegar ég pantaði fartölvu hjá þeim. Tölvan týndist og þeir redduðu þessu bara, ef ég hefði pantað þetta sjálfur hefði ég ekki hugmynd um hvað ég átti að gera.
ASUS X570-F | Ryzen 9 3900XT með Noctua NH-D15 | ASUS 1080ti | 32GB 3200MHz RAM | 2TB Samsung 970 EVO Plus NVMe
Ég skil vel að þú nennir ekki að þrefa við mig um þetta, enda lost case. Það eru öll gjöld inní 360þús verðinu frá B&H photo með tryggingum, vsk og öllu, nema það gæti verið 750kr skýrslugjald sem vantar uppá en er ekki viss, þannig að lítið meira um þetta að segja. Allt reiknað inní bæði verðin.
Og hvort sem þú hefur séð svona álagninu eða ekki segir ekkert um álagninguna þeirra, settu þetta bara í reiknivélina og þá sérðu þetta svart á hvítu.
Ef að nýr sími hefur verið til sölu hjá shopusa á 89.950 þá hefur það ekki verið nýr iPhone 4...ekki séns þar sem hann hefur alltaf kostað $649 (16GB) og $749 (32GB) hjá Apple. Verðið lækkar ekki fyrr en fimman kemur út. Gæti hafa verið iPhone 3GS.
Oak skrifaði:Ef að nýr sími hefur verið til sölu hjá shopusa á 89.950 þá hefur það ekki verið nýr iPhone 4...ekki séns þar sem hann hefur alltaf kostað $649 (16GB) og $749 (32GB) hjá Apple. Verðið lækkar ekki fyrr en fimman kemur út. Gæti hafa verið iPhone 3GS.
ASUS X570-F | Ryzen 9 3900XT með Noctua NH-D15 | ASUS 1080ti | 32GB 3200MHz RAM | 2TB Samsung 970 EVO Plus NVMe
jardel skrifaði:Er hardur windows madur. Er buinn ad eiga htc desire galaxy 9000, iphone er langbesti farsiminn a markadinum
Ég skil ekki alveg hvernig þú færð út að Iphone 4 sé langbesti farsíminn á markaðnum í dag. Það eru margir símar sem eru með mun meiri afköst en þessi blessaði Iphone. Annars eru þetta mjög góðir símar, en ekki nálægt því að vera bestir .
ég er nokkuð viss um að þótt að sími sé með einhvern stjarnfræðilegann búnað, þá er alltaf einhverjir sem finnast aðrir símar þægilegri, og þar með betri.
ég sé til dæmis síma ekki sem betri þótt hann sé með betri búnað. ef að notendaviðmótið er gott fyrir mig, þá er það besti síminn (fyrir mig).
ég hef prufað þetta blessaða android og windows síma og alltaf hallast ég aftur að iphone, ég á iphone 3gs akkúrat núna og er ég með plön með að færa mig í iphone 5.
Þetta verður kynnt um kl 18 á morgun að íslenskum tíma...ætli við fáum ekki upplýsingarnar 1-2 klst síðar...
Nema að einhver fylgist með þessu live - streamað og láti okkur vita...
Mjög spennandi.
jonsig skrifaði:Af hverju eru allir svona spenntir fyrir iphone ? Ég er 10x meira spenntur eftir Samsung galaxy s3... Það verður eitthvað mun stærra dæmi
ég get lofað þér því að hann verður ekki stærri en Iphone.
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Verður kannski betri "Speccar" í S3 en ég er nánast alveg pottþéttur að það mun enginn sími verða "stærri" en iphone. Og þá er ég að tala um sölutölur.