Hvaða turnar eru bestir?

Svara

Höfundur
dados
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 02. Apr 2003 17:19
Staða: Ótengdur

Hvaða turnar eru bestir?

Póstur af dados »

Hvað á maður að versla sér?

Hvaða turnar eru hljóðlátastir, kæla best og hvar fæ ég þá?

Kv,
dados
Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1197
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kiddi »

Það er ekkert til sem heitir hljóðlátur turn sem kælir vel ;) Allavega ekki hér heima, það eru til tilbúnir vatnskælingakassar úti en þeir kosta sitt :D

Ef þú tekur hljóðlátan kassa þá þýðir það að hann er vel einangraður, sem þýðir að hann heldur hitanum inni og þarafleiðandi þarftu enn fleiri viftur til að koma hitanum út, og þá ertu aftur kominn með lætin.

Persónulega mæli ég með bara eðlilegum kassa, t.d. þeim sem eru byggðir á eins grind og er notuð t.d. í Dragon & Thermaltake Xaser kössunum, og að þú vandir valið á viftum, skjákorti og hörðum diskum. Fleiri trick til að halda niður hávaðanum eru m.a. að hafa tölvukassana ekki uppi á skrifborði (synd þegar sumir þeirra eru eins flottir og raun ber vitni), heldur að þú setjir þá undir skrifborðin og eins langt frá þér og þú mátt við. Hver sentimeter skiptir máli :-)

Ég er með Dragon kassa með P4 2.4ghz og 4x kassaviftum (ekki að ég þurfi þess, ég er bara mod-nutt), nota viftustýringu til að halda kassaviftunum í kringum 1000 sn/min og tölvan mín er eins hljóðlát og hún getur verið án þess að vera vatnskæld. Ég keypti MSI GF4-Ti4200-8X aðallega því ég hafði lesið að það væri hljóðlátasta skjákortið í þessum flokki. Losaði mig við HDD'a sem voru komnir með hátíðnisuð og skipti út fyrir diska sem eru hljóðlátir. Þetta breytti miklu :)
Svara