leikjatölva vs. leikjatölva

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
thegirl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 310
Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
Staðsetning: Nígería
Staða: Ótengdur

leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af thegirl »

Er ég sú eina hérna sem finnst pirrandi að lesa leikjatölva þegar þið eruð að tala um borðtölvu? :hnuss
Mér finnst ég alltaf vera að fara að lesa eitthvað skemmtilegt um leikjatölvur en þá eruði með lýsingar á borðtölvu. Not cool. [-X

Er ekki hægt að finna eitthvað annað nafn yfir þetta?

t.d. leikjaborðtölva eða borðtölva sem spilar leiki :evillaugh
_______________________________________________________________________________________

Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1819
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af einarhr »

Þetta hefur með þá að gera sem setja upp auglýsinguna.

Yfrleytt er sagt Leikjavél þegar er verið að selja Borðtölvu sem er sérstaklega sett saman fyrir tölvuleikjaspilun.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af bulldog »

leikjatölva getur verið bæði borðtölva eða fartölva.

Höfundur
thegirl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 310
Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
Staðsetning: Nígería
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af thegirl »

bulldog skrifaði:leikjatölva getur verið bæði borðtölva eða fartölva.
hahahah ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um leikjatölvu. t.d. ps3, xbox, psp og fl.

En já Einar mér finnst rangt að nota leikjatölva þegar talað er um borðtölvu og frekar skrifa og segja leikjavél eins og þú segir. Það passar mikið betur
_______________________________________________________________________________________

Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af dori »

thegirl skrifaði:
bulldog skrifaði:leikjatölva getur verið bæði borðtölva eða fartölva.
hahahah ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um leikjatölvu. t.d. ps3, xbox, psp og fl.

En já Einar mér finnst rangt að nota leikjatölva þegar talað er um borðtölvu og frekar skrifa og segja leikjavél eins og þú segir. Það passar mikið betur
Enginn munur. Það sem þú getur reynt að læra til að þekkja muninn er að á þessu spjalli eru allir sem tala um leikja(far)?(vél|tölvu) að tala um fartölvu/borðtölvu. Það er tekið fram ef það er Playstation eða Xbox frekar en öfugt. ;)
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af bulldog »

thegirl skrifaði:
bulldog skrifaði:leikjatölva getur verið bæði borðtölva eða fartölva.
hahahah ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um leikjatölvu. t.d. ps3, xbox, psp og fl.

En já Einar mér finnst rangt að nota leikjatölva þegar talað er um borðtölvu og frekar skrifa og segja leikjavél eins og þú segir. Það passar mikið betur

ps3 er leikjatölva en líka alvöru borðtölvur litla stelpa \:D/

Höfundur
thegirl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 310
Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
Staðsetning: Nígería
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af thegirl »

bulldog skrifaði:

nei stóri karl. alvöru borðtölva er leikjavél. Það passar mikið betur. Leikjatölva er ps3 og svoleiðis tölvur. :evillaugh
_______________________________________________________________________________________

Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af bulldog »

takk fyrir að kalla mig stórann kall =D> 172 cm hefur hingað til ekki þótt stórt en tölvan mín er flott :lol:
Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2257
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Staðsetning: 109 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af Gunnar »

Leikjartölva = borðtölva
Console = ps3,xbox,wii

Höfundur
thegirl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 310
Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
Staðsetning: Nígería
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af thegirl »

dori skrifaði:
thegirl skrifaði:
bulldog skrifaði:leikjatölva getur verið bæði borðtölva eða fartölva.
hahahah ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um leikjatölvu. t.d. ps3, xbox, psp og fl.

En já Einar mér finnst rangt að nota leikjatölva þegar talað er um borðtölvu og frekar skrifa og segja leikjavél eins og þú segir. Það passar mikið betur
Enginn munur. Það sem þú getur reynt að læra til að þekkja muninn er að á þessu spjalli eru allir sem tala um leikja(far)?(vél|tölvu) að tala um fartölvu/borðtölvu. Það er tekið fram ef það er Playstation eða Xbox frekar en öfugt. ;)
já það á ekkert að taka svoleiðis fram:P hehe...en hinn gaur þarna console er enskt orð yfir þetta..Það fer enginn að skrifa hvernig console á ég að fá mér? Frekar að skrifa hvernig leikjatölvu á ég að fá mér....

en dori hvað varstu að gera af þér???? Eða einhver annar gaur.. Ekki sátt með ykkur. Ég ætla rétt að vona að þið farið í svona allsherjarinnar leit að hinum stelpunum.
_______________________________________________________________________________________

Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af lukkuláki »

Hérna inni er nánast ekkert verið að tala um leikjatölvur eins og PS3 - XBox - PSP eða aðrar sambærilegar.
Það venst alveg að sjá menn kalla þetta leikjavélar og mér finnst hinar oftast vera kallaðar leikjatölvur

Held að ég hafi ekki séð: "Leikjatölva til sölu" nema átt sé við PS3 ofl.

Oft SÉÐ auglýst: "Leikjavél til sölu" þá veit maður alveg að það er oftast borðtölva spekkuð fyrir leiki og einstaka sinnum fartölva.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

ljoskar
Fiktari
Póstar: 98
Skráði sig: Fös 06. Feb 2009 11:57
Staðsetning: Fásk
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af ljoskar »

Maður sér nú lítið af þeim hérna inni (PS3, XBox Etc.) en lýst vel á
Leikjavél = Borðtölva
leikjatölva = PS3 , Xbox og allt hitt.

Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af Icarus »

Þess vegna eru flokkarnir, leikjatölva sem er borðtölva er nánast alltaf í flokknum "PC tölvan mín" og svo leikjatölva as in ps3 er þá í flokknum "Leikja tölvan mín".

Varðandi ef þetta eru vélar til sölu eða óskast keypt. Þá myndi ég telja að "Leikjatölva til sölu" sé ekki mjög lýsandi titill, sérstaklega ekki þegar verið er að tala um PS3 eða svipað því ekki er erfitt að koma því með í titilinn.
Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: leikjatölva vs. leikjatölva

Póstur af Eiiki »

Ég ætla ekki að vera með nein móralísk leiðindi en Gat verið að skipulagði kvennmaðurinn hafi komið upp með þennan þráð. Það tekur í mesta lagi 5 sek af þínum tíma ef þú sérð auglýst leikjatölva að fara inn í þráðinn og átta þig á hverskonar leikjatölvu um er verið að ræða og fara síðan aftur út úr honum.
Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846
Svara