Í byrjun vikunnar fékk ég að vita frá skólanum mínum að ég ætti að borga staðfestingagjald 5000kr til að tryggja mér setu á næstu önn.
Mér finnst þetta virkilega skrítið að heimta 5þúsundkr í enda mánaðarins af bláfátækum námsmönnum.
Það er eins og það sé verið að reyna að losna við fólk úr skólanum.
Ég er viss um að ég sé ekki sá eini í skólanum sem er algjörlega á kúpunni og rétt næ að skrapa saman pening fyrir mat.
Ég er í netpóst sambandi við skólafulltrúa Tækniskólans sem sagði:
S.s. ef ég á ekki 5þúsund krónur núna í dag þá fæ ég ekki að klára námið mitt. (Ég fékk lánað hjá foreldrum mínum svo ég er búinn að borga)Skólafulltrúi Tækniskólans skrifaði:það verður að borga staðfestingargjaldið í dag, annars verður lokað á umsókn þína.
Ég er að bíða eftir svari frá skólafulltrúanum hvers vegna það er svona mikilvægt að láta nemendur borga þetta í enda mánaðarins.
Er ég einn um það að finnast þetta skrítin vinnubrögð?