when its free why make it expensive?????
afþví að maður hefur mikla meira vald á tölvunni sinni. Linux er meira svona hands-on stýrikerfi þar sem að það reynir ekkert að gera neitt fyrir aftan bakið á þér og þú getur stillt það einsog þú vilt.
Annars hef ég nú lofað sjálum mér að vera ekki að reyna að troða stýrikerfum á annað fólk. Use whatever you want.....
já svo þú segir það....... linux er samt drullu flókið það er ekkert bara nóg að vilja nota það marr þarf að læra einhvern helling til að geta jafnvel sett það upp eða allavega gentoo
Linux er ekki flókið...það er einfaldlega einfaldara ef eitthvað er, það fer eftir því hvaða útgáfu þú velur þér. Veit um nokkra sem hafa skipt úr Windows yfir í Lycoris og segja eina munin vera að skjáborðið sé aðeins öðruvísi. Þetta voru engir linux menn eða konur, bara venjulegt fólk.
Linux er einfaldlega til í svo mörgum bragðtegundum að það er eitthvað til sem kitlar alla, ég varð uppiskroppa með sömu afsakanir fyrir 2 árum varðandi það að nota ekki linux. Ég er certified microsoft looney (mcp) en ég einfaldlega vissi hvenær rökin hjá mér hættu að halda vatni og játaði mig sigraðan fyrir mér fróðari mönnum. Ég veit ekki með þig, en þetta er ekki mikið mál að læra þetta, tekur bara hugarfarsbreytingu, vilja og góðan kaffibolla.
noline: doing a little adversting are we
Það er rétt að maður þarfi að lesa(og hugsa) helling til þess að fá Gentoo til þess að virka en RedHat er ekkert mál að setja upp.
Já, bæði og! Mér finnst ekkert að því að benda fólki á alternetive við windows eftir að mbl.is birti einhliða grein frá microsoft á íslandi þar sem að Elvar hjá microsoft.is hélt því fram að windows væri notað í öllum critical þjónustum. Reyndar væri gaman að fá að heyra af hverju microsoft notar þá linux í alla sína critical netþjóna.
Hins vegar varðandi auglýsingar, jú, maður lætur vita þegar maður sjálfur eða aðrir eru að bjóða uppá eitthvað sem er hagstætt í anda vaktarinnar ekki satt?
Ég nota sjálfur Lycoris, og jú það er líkt windows í útliti, en þar hættir samanburðurinn. Lycoris er eins og allir linux-ar, mun öflugri, öruggari og stabilli heldur en windows. Lycoris er jú mjög einfalt í uppsetningu meðan að gentoo og aðrir eru kannski ýfið flóknari fyrir þá sem hafa aldrei komið nálægt linux. Náttúrulega mæli ég með lycoris, en það væri ekki heiðarlegt af mér að mæla með vöru sem við seljum, þannig að ég get líka bent á redhat sem er álíka einfaldur og svo mandrake, lindows og xandros.
jæja félagar. getur einhver sagt mér afhverju ég get ekki strauað vélina mína og sett upp windows (var fyrir linux) þarf að gera eitthvað or sum til að hann lesi diskinn. HJÁLP!!! =)