Líka hérnaPressan skrifaði:Njósnaði WikiLeaks um tölvur Alþingis og alþingismanna? Grunsamleg tölva fannst í skrifstofuhúsnæði þingsins sem hrökk í sjálfstortímingarham um leið og hún var aftengd.
Morgunblaðið hefur fengið staðfest að starfsmenn Alþingis kvöddu lögregluna á höfuðborgarsvæðinu á sinn fund í febrúar í fyrra, eftir að fartölva fannst í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti.
Lögreglan hafi tekið tölvuna til rannsóknar, en grunur leikið á að henni hefði verið komið fyrir til þess að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis, hlaða niður gögnum og senda í aðra tölvu.
Það var búið að má öll auðkenni af tölvunni, öll númer og þess háttar, þannig að það var ekki hægt að rekja hver átti hana. Þetta var mjög grunsamleg tölva, en við gátum bara ekki komist til botns í málinu og
lögreglan ekki heldur,
sagði Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, í samtali við Morgunblaðið.
Þegar tölvan var aftengd virðist sjálfvirkur hugbúnaður hafa eytt gögnum út af henni. Það hafi verið mistök að slökkva á henni og komið í veg fyrir að tölvusérfræðingar lögreglunnar kæmust til botns í málinu.
Samkvæmt frétt blaðsins leikur jafnvel grunur á að tölvuþrjótar á vegum uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks hafi komið tölvunni fyrir þar sem hún fannst, að minnsta kosti mun það hafa verið haganlega gert og greinilega sérfræðingur að verki.
Hvað finnst ykkur um þetta?
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3065
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Staða: Ótengdur
Hvað finnst ykkur um þetta?
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Sjálfseyðingarhugbúnaður sem kikkaði inn þegar slökkt var á tölvunni?

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Aftengd, ekki slökkt á henni. Ég veit svosem ekkert um þetta mál nema bara það sem stendur í fréttinni, en meðan annað kemur ekki í ljós er nú best að skilja orðin eins "vítt" og hægt er.ManiO skrifaði:Sjálfseyðingarhugbúnaður sem kikkaði inn þegar slökkt var á tölvunni?
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3065
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Segjum sem svo að þetta sé rétt, hvað er þá í gangi
Það eina sem að mér dettur í hug er forrit sem að færi sjálfkrafa að fylla diskinn af núllum en það ætti að vera hægt að bjarga einhverju af disknum með því að rífa hann úr samband við straum og fara í massíva gagnabjörgun
Nema þetta sé sami gæinn og sá um upptökurnar af níumenningunum sem að gufuðu upp fyrir utan nokkrar mínútur, "ég ýtti bara á next og next og svo varð alltíeinu bara allt svart á skjánum, þetta var einhverskonar sjáfstortímingarbúnaður"
Það eina sem að mér dettur í hug er forrit sem að færi sjálfkrafa að fylla diskinn af núllum en það ætti að vera hægt að bjarga einhverju af disknum með því að rífa hann úr samband við straum og fara í massíva gagnabjörgun
Nema þetta sé sami gæinn og sá um upptökurnar af níumenningunum sem að gufuðu upp fyrir utan nokkrar mínútur, "ég ýtti bara á next og next og svo varð alltíeinu bara allt svart á skjánum, þetta var einhverskonar sjáfstortímingarbúnaður"

Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Líklegra að þetta hafi verið einhver af stjórnmálaflokkunum frekar en Wikileaks.
Wikileaks safnar ekki upplýsingum sjálft, tekur einungis á móti þeim og birtir (að mér skilst).
Wikileaks safnar ekki upplýsingum sjálft, tekur einungis á móti þeim og birtir (að mér skilst).
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Svo efast ég um að "tölvusérfræðingarnir" gætu fundi einn einasta hlut. Svona ef við skoðum track recordið þeirra.. Barnaklámsdeilerinn t.d 

i7 4770k, MSI H97M-G43, 4x8GB, Corsair CX430, Antec P180B
Ryzen 3600, Gigabyte B450M DS3H, MSI GTX 970, 2x16GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Ryzen 3600, Gigabyte B450M DS3H, MSI GTX 970, 2x16GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Var ekki Birgitta bara að planta þessu fyrir Wikileaks ? 
Þetta alveg býður upp á samsæriskenningarnar en er náttúrulega háalvarlegt mál. Ef það er einhver starfsmaður þingsins eða þingmaður sem stendur fyrir þessu og það sannast þá jaðrar þetta við föðurlandssvik.

- Tölvutryllir
- Póstar: 623
- Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
- Staðsetning: 107
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Svo gæti líka alltaf verið einföld lausn eins og að starfsmaður á svæðinu hafi skilið eftir tölvu til að geta downloadað bíómyndum og tónlist.
Gamalt: http://www.dv.is/media/news/story/image ... 00_q95.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Það þarf ekki allt að snúast um samsæri og njósnir.
Gamalt: http://www.dv.is/media/news/story/image ... 00_q95.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Það þarf ekki allt að snúast um samsæri og njósnir.
Mkay.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
True...natti skrifaði:Svo gæti líka alltaf verið einföld lausn eins og að starfsmaður á svæðinu hafi skilið eftir tölvu til að geta downloadað bíómyndum og tónlist.
Gamalt: http://www.dv.is/media/news/story/image ... 00_q95.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Það þarf ekki allt að snúast um samsæri og njósnir.
En samkvæmt mbl. í morgun þá var búið að afmá fingraför af tövunni, rífa af henni seríalnúmer og auðkenni.
Til hvers ef þú ert bara að downloda bíómyndum?
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Vélin hlýtur að hafa verið dulkóðuð ofan á það, því það er ekkert script/forrit AFAIK sem getur eytt öllum gögnum af tölvu á non-recoverable hátt á svo stuttum tíma að ekki sé hægt að koma í veg fyrir það með því að rjúfa allan straum af móðurborðinu.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Mjög líklega hefur þessi tölva verið sett upp þannig að að hún sendir öll gögn áfram í aðra tölvu um leið og þau berast, eiði þeim svo þannig að engin gögn liggi á "njósnavélinni". Svo þegar hreyft er við vélinni fer í gang scripta sem eyðir öllum gögnum. Partition-in sem þarf því að fylla af núllum þarf því ekki að vera nema nokkur hundruð MB.
Ég geri ekki ráð fyrir að þessir aðiliar, sem sagðir eru sérfræðingar, noti Windows
Ég geri ekki ráð fyrir að þessir aðiliar, sem sagðir eru sérfræðingar, noti Windows

Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
Kannski var vélinni bara stolið og viðkomandi keypti hana á svartamarkaðnum sem myndi útskýra af hverju það væri búið að rífa öll serial númer og auðkennanleg númer af vélinni.GuðjónR skrifaði:True...natti skrifaði:Svo gæti líka alltaf verið einföld lausn eins og að starfsmaður á svæðinu hafi skilið eftir tölvu til að geta downloadað bíómyndum og tónlist.
Gamalt: http://www.dv.is/media/news/story/image ... 00_q95.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;
Það þarf ekki allt að snúast um samsæri og njósnir.
En samkvæmt mbl. í morgun þá var búið að afmá fingraför af tövunni, rífa af henni seríalnúmer og auðkenni.
Til hvers ef þú ert bara að downloda bíómyndum?
Ekkert obvious "saklaus" ástæða samt fyrir því af hverju maður myndi leggja í að þurrka út öll fingraför af vélinni, myndi kannski skilja að þrífa skelina á ferðavélinni ef þetta er glossy tölva en það væri þá væntanlega eitthvað á tökkunum á lyklaborðinu.. nema lögreglan hafi ekki fattað að dusta fingraför þar.
og svona miðað við fréttir sem maður hefur af lögreglunni þegar kemur að tæknilegum atriðum (sbr pedoinn á ljósnetinu) þá kæmi mér ekkert á óvart ef að þetta "self destruct" dæmi hafi ekki verið annað en quick format og lögreglan ekki fattað að keyra eitthvað recovery tól á þetta.
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
ég hugsa að það hafi verið sett upp einhverskonar encrypter, ekkert forrit sem getur skrifað á allan diskinn í einum grænum, jafnvel þótt diskurinn sé lítill, og ég veit allveg um fólk sem að myndi gera þetta fyrir frítt utanlands dl á ljósi ( er annars ekki ljósleiðari þarna) ?
Kubbur.Digital
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1022
- Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
- Staðsetning: 101
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
ég hugsaði einmitt fyrst að hún hefði bara verið að senda upplýsingar í aðra tölvu. ef þetta væri linux kerfi eða smá útgáfa af windows þá þyrfti diskurinn alls ekki að vera stór. eina sem ég skil ekki er hvernig hún hefði átt að vera með "Sjálfseyðingarhugbúnaði" er dulkóðun eða eitthvað þannig málið?
Re: Hvað finnst ykkur um þetta?
sambandi við eyðingu efnis útaf disknum, gæti ekki líka verið að þegar tölvan var rifin úr sambandi að þá hafi verið einhver búnaður inní tölvunni sem myndi eyðileggja diskinn alveg, segull orsom