Kristján skrifaði:eru ekki lang flestir skjáir herna á islandi með tn panel?
og hvar gæti maður svo sem farið i betri panel? eins og ips eða eitthvað? og væri það ekki einhverjir 100 kallar?
Venjulegur user / gamer / office hefur 0 þörf fyrir IPS panel, þetta er bara high end notendur, grafísk vinnsla og slíkt. Ég er reyndar með IPS skjá, en satt best að segja finn ég bara engan mun
Mér finnst einmitt merkilegt hvað fólk er tilbúið að sætta sig við TN skjá og eina útskýringin sem ég finn er að fólk veit ekki betur. Ef fólk vill ekki vita og finnst TN panel skjárinn sinn flottur þá bara = frábært.
En það þýðir ekki að það sé ekki til eitthvað mikið mikið betra og IPS væri t.d. eitt af því.
Er með 3x IPS og 2x TN og ég sé muninn strax, sérstaklega þegar þeir eru hlið við hlið.
mind skrifaði:Mér finnst einmitt merkilegt hvað fólk er tilbúið að sætta sig við TN skjá og eina útskýringin sem ég finn er að fólk veit ekki betur. Ef fólk vill ekki vita og finnst TN panel skjárinn sinn flottur þá bara = frábært. En það þýðir ekki að það sé ekki til eitthvað mikið mikið betra og IPS væri t.d. eitt af því. Er með 3x IPS og 2x TN og ég sé muninn strax, sérstaklega þegar þeir eru hlið við hlið.
Tel það líklegra að þú sért akkúrat með IPS skjái vegna þess að þú sérð mun.
Annars sér maður auðvitað mun á litunum á t.d. 27" iMacs sem maður sér allstaðar og á skjánum sínum en ég hef enga þörf fyrir þá.
IPS viðbragðstíminn er jú almennt verri en á TN skjáum.
IPS hefur ótrúlega yfirburði á VA LCD skjái, grunar að LED parturinn geri ekki það mikið til að saxa á þann mun.
Ef þú ætlar hinsvegar í tölvuleiki sé ég enga ástæðu til þess að splæsa í IPS skjá einungis til að finna fyrir meira ghosting, farðu bara í ódýrari skjá.
já nákvæmlega, sérstaklega þar sem eg veit ekki muninn og finnst minn AL2216W acer bara alveg nokkuð góður, VA LED er alveg skref upp frá tn allavega ;D en samt ennþá TN bara smá upgrade við lísingu og annað
en samt er 8ms grey to gey á þessum VA LED hjá tölvutek og ekki nema 5 ms á minum en svo er það bara hvað er verið að mæla og svona, þetta er eitthvað nýtt sem maður þarf að spá í.
var að lesa eitthvað um response time og það á að fara að koma einhver staðall á þetta þannig hægt sé að bera skjái betur saman.
Ég hef nú reyndar ekki orðinn var við ghosting á IPS skjáunum þó maður sé að spila FPS, en það víst mismunandi hvað fólk finnur og/eða segjist finna.
Það er líka svolítið stórt vandamál hversu óstaðlaður svartími er. Eins og er þá er mælikvarðinn einungis á hversu hratt panelið í skjáinum sjálfum getur uppfært sig en vinnsluhlutanum bakvið það oftast sleppt.
Til að vita raunverulegan svartíma þyrfti formúlan að vera Tími til að vinna mynd + svartími panels
Því gæti t.d. IPS panel + góður myndvinnsluvélbúnaður haft lægri heildar svartíma en TN panel + lélegur myndvinnsluvélbúnaður.
Sem dæmi þá hafa sjónvörp t.d. oft 100-250ms auka svartíma sökum þess að þau vinna myndina alveg svakalega mikið svo litlu skiptir hvort panelið er 2,8 eða 12 ms.
Tölvuskjáir vinna myndina sjálfa lítið eða ekki neitt en ferlið er hið sama svo einhver aukalegur svartími verður til. Ég hef því ekki fundið marktækan mun á milli t.d. 2ms TN skjás og 8ms IPS skjás hvað ghosting varðar. Útskýringin væri því að heildarsvartími þeirra sé nægilega svipaður eða ég hafi bara ekki augun til að greina muninn. En ég er of latur til að vera taka einhverjar ljósmyndir á svaka hröðum shutter tíma fyrir VGA,DVI og svo líka HDMI tengjunum bara til að geta séð muninn í tölum.
Það sem Gúru segir er samt rétt, það er lítil sem engin ástæða kaupa IPS skjá fyrir tölvuleiki.
Kristján skrifaði:ég er bara ekki að gera það mikið i tölvuni að ég þurfi 2x skjái og er aðalega að spila eve og vill spila þannig að allt sé i max i grafík og að hann sé flottur, þannig mig langar i einn ofur skjá stórann og góðann ;D hef spilað hann i window mode hingað til.
Bara svo þú vitir, þú getur spilað eve á mörgum skjáum, það er geðveikt að spila eve á tveimur skjáum, setur hann í windowed og dregur hann yfir báða, það yrði bara draumur að vera með hann yfir þrjá eins skjái, miklu betra heldur enn bara einn stórann, þá geturu verið með td chat á vinstri skjánum, overviewið á hægri og skipið á miðjunni =)
JoiKulp skrifaði:Ojj ég er alltaf að sjá fleiri og fleiri ástæður til þess að byrja aftur í Eve EN ÞAÐ SKAL EKKI GERAST! Maður verður alltof háður þessum leik!
MSi z270 Tomahawk | i7 7700k | Msi GTX 1060 Gaming X 6GB | 16GB 3000mhz Corsair vengeance | Samsung 750 Evo 120Gb | WD Black Caviar 640Gb | BenQ G2420HDB | HAF 912 Plus | Og það er alltaf eitthvað hljóð í bílnum mínum...