Hefur einhver verslað við búðina?

Allt utan efnis

Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Staðsetning: Babylon rvk
Staða: Ótengdur

Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Meso »

Ég er að fara kaupa mér sjónvarp og sé að budin.is er með sjónvarpið sem ég er að spá í á ~100þ minna en Elko,
og fleiri sjónvörp hjá þeim talsvert ódýrari en annars staðar, eiginlega grunsamlega ódýrt, t.d. LG 50PK350 er á 260þ hjá Elko en 180þ hjá búðinni.
svo mig langaði að athuga hvort einhver hefði reynslu af viðskiptum við þá?
Sýnist þetta svipað battery og Buy.is sem ég hef góða reynslu af.
Svo endilega kommentið ef þið hafið reynslu af búðinni.

Andri Fannar
Tölvutryllir
Póstar: 687
Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Andri Fannar »

Væri til í að vita þetta líka, er að hugsa um að fá mér sjónvarp + heimabíókerfi þaðan og það er á flottu verði.
« andrifannar»
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af rapport »

Finnst þetta voðalega spes, tölti um Sundaborgina núna rétt fyrir jól og man ekki eftir að hafa séð þessa verslun þar skráða, líklega e-h sem rekið er með öðrum fyrirtækjum í Sundaborginni.

Reyndar þá munt þú alltaf fá vöruna eða endurgreitt ef þú borgar með korti vegna tryggingar Visa/Eurocard.. spurning um ábyrgðir og þjónustu...
Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1388
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af kubbur »

ef þessar tölur standast þá hefði ég ekkert á móti þessum http://budin.is/vara/-16gb-corsair-voyager-mini/132" onclick="window.open(this.href);return false;
Kubbur.Digital
Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 623
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af natti »

rapport skrifaði:Finnst þetta voðalega spes, tölti um Sundaborgina núna rétt fyrir jól og man ekki eftir að hafa séð þessa verslun þar skráða, líklega e-h sem rekið er með öðrum fyrirtækjum í Sundaborginni.
Um búðina skrifaði: Hvað er Búðin ?
Búðin er ný og spennandi vefverslun sem hefur það að markmiði að bjóða upp á mikið vöruúrval á lágu verði.

Hvar er Búðin ?
Búðin er eingöngu netverslun og erum við með skrifstofu og vöruafgreiðslu í Sundaborg 7-9, 104 Reykjavík.
Símanúmer okkar er 412-7575
Feitletrun er mín.
Enda engin verslun, heldur skrifstofa... Kemur ekkert á óvart að þú hafir ekki "rekist" á skrifstofuna.

En væri gaman að heyra hver reynsla fólks er/verður af þessari netverslun.
Mkay.
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af GuðjónR »

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af rapport »

natti skrifaði:
rapport skrifaði:Finnst þetta voðalega spes, tölti um Sundaborgina núna rétt fyrir jól og man ekki eftir að hafa séð þessa verslun þar skráða, líklega e-h sem rekið er með öðrum fyrirtækjum í Sundaborginni.
Feitletrun er mín.
Enda engin verslun, heldur skrifstofa... Kemur ekkert á óvart að þú hafir ekki "rekist" á skrifstofuna.

En væri gaman að heyra hver reynsla fólks er/verður af þessari netverslun.
Sundaborgin er ekki beint gata heldur langur gangur, þarna er hellingur af fyrirtækjum í og ég gekk þennan gang 2-3 í leit að ákveðnu fyrirtæki og þ.a.l. skoðaði ég flest nokkuð vel og man ekki eftir að hafa rekist á þetta fyrirtæki í minnileit (hefði munað það)

En þetta virðist vera flott framtak, endilega einhver að tékka á þessu og pósta hingað inn...

Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Staðsetning: Babylon rvk
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Meso »

Jæja, sló til og keypti 60" plasma hjá þeim, læt vita hvernig þjónustan er í framhaldinu, so far eru e-mail samskiptin hröð og góð :happy
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af bulldog »

hvað kostaði 60" plasma ?
Skjámynd

Moldvarpan
Of mikill frítími
Póstar: 1722
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Moldvarpan »

600.000 +++

icup
Nörd
Póstar: 105
Skráði sig: Mán 06. Apr 2009 17:20
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af icup »

Djöfull líst mér vel á Þetta. Ef það væri ekki kreppa væri maður kominn með eitt stikki.
Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3065
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af beatmaster »

Ég þekki Kára Sigurfinns sem að er einn af þeim sem að reka þetta og get staðfest að þar er solid náungi á ferð og ætti enginn að vera svikinn af því að versla þarna :happy
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
Skjámynd

KrissiK
vélbúnaðarpervert
Póstar: 902
Skráði sig: Lau 29. Nóv 2008 00:43
Staðsetning: In le matrix
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af KrissiK »

icup skrifaði:Djöfull líst mér vel á Þetta. Ef það væri ekki kreppa væri maður kominn með eitt stikki.
kannski að maður fái sér eitt stykki svona í sumar þegar maður fer að vinna :8) :megasmile
TURN:
- InWin GRone - Intel Core i7 6700K @ 4.0GHz - 16GB DDR4 2133Mhz - Gigabyte GA-Z170-HD3P (LGA1151) - EVGA Geforce GTX1070 8GB - 250GB Samsung EVO SSD - 3TB Seagate HDD

Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Staðsetning: Babylon rvk
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Meso »

bulldog skrifaði:hvað kostaði 60" plasma ?
LG 60PK250 kostaði 320k, sem er rúmlega 100þ ódýrara en Elko!
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af AntiTrust »

beatmaster skrifaði:Ég þekki Kára Sigurfinns sem að er einn af þeim sem að reka þetta og get staðfest að þar er solid náungi á ferð og ætti enginn að vera svikinn af því að versla þarna :happy
Sama hér, búinn að vinna með honum í tveim fyrirtækjum og algjör toppmaður með allt sitt á hreinu.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1115
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af g0tlife »

spurði elko afhverju buy.is væri oftast svona mikið mikið ódýrari þá sagði hann að það er mikill kostnaður við það að reka verslun. Starfsfólk og skattar og mun meira :) En að reka skrifstofu ?
Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af ManiO »

gotlife skrifaði:spurði elko afhverju buy.is væri oftast svona mikið mikið ódýrari þá sagði hann að það er mikill kostnaður við það að reka verslun. Starfsfólk og skattar og mun meira :) En að reka skrifstofu ?

Elko hefur minnst 40 starfsmenn myndi ég skjóta á, Buy.is hefur síðast þegar ég vissi 3. Elko hefur 5 verslanir í ansi stóru húsnæði, buy.is hefur eina mjög litla skrifstofu.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af bulldog »

plús að buy.is er með mikkkkkkkkkkkkluuuuuuuuuuuuuuuu betri þjónustu :megasmile

Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Staðsetning: Babylon rvk
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Meso »

gotlife skrifaði:spurði elko afhverju buy.is væri oftast svona mikið mikið ódýrari þá sagði hann að það er mikill kostnaður við það að reka verslun. Starfsfólk og skattar og mun meira :) En að reka skrifstofu ?
Það er talsvert ódýrara að reka skrifstofu með fáeinum starfsmönnum en nokkrar verslanir með tugi starfsmanna ásamt að eiga lager,
buy/búðin eru ekki með lager, panta bara jafnóðum, það er dýrt að koma upp lager.
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af ManiO »

Meso skrifaði:
gotlife skrifaði:spurði elko afhverju buy.is væri oftast svona mikið mikið ódýrari þá sagði hann að það er mikill kostnaður við það að reka verslun. Starfsfólk og skattar og mun meira :) En að reka skrifstofu ?
Það er talsvert ódýrara að reka skrifstofu með fáeinum starfsmönnum en nokkrar verslanir með tugi starfsmanna ásamt að eiga lager,
buy/búðin eru ekki með lager, panta bara jafnóðum, það er dýrt að koma upp lager.

Einmitt það sem að kom mörgum búðum á hausinn í þegar kreppan skall á :roll:
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af rapport »

Það er líka þannig að hraði er þjónusta...

Ef mig langar í e-h núna því ég er með pening í vasanum, þá þýðir ekkert að versla við Buy.is = þeirra markaðssylla er eingöngu hluti af stærri markaði sem aðrir keppa á.
Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1268
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af ponzer »

rapport skrifaði:
natti skrifaði:
rapport skrifaði:Finnst þetta voðalega spes, tölti um Sundaborgina núna rétt fyrir jól og man ekki eftir að hafa séð þessa verslun þar skráða, líklega e-h sem rekið er með öðrum fyrirtækjum í Sundaborginni.
Feitletrun er mín.
Enda engin verslun, heldur skrifstofa... Kemur ekkert á óvart að þú hafir ekki "rekist" á skrifstofuna.

En væri gaman að heyra hver reynsla fólks er/verður af þessari netverslun.
Sundaborgin er ekki beint gata heldur langur gangur, þarna er hellingur af fyrirtækjum í og ég gekk þennan gang 2-3 í leit að ákveðnu fyrirtæki og þ.a.l. skoðaði ég flest nokkuð vel og man ekki eftir að hafa rekist á þetta fyrirtæki í minnileit (hefði munað það)

En þetta virðist vera flott framtak, endilega einhver að tékka á þessu og pósta hingað inn...

Þeir eru í smá plássi þarna í gamla Jóhanns Ólafssonar endanum.
Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Staðsetning: Babylon rvk
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af Meso »

rapport skrifaði:Það er líka þannig að hraði er þjónusta...

Ef mig langar í e-h núna því ég er með pening í vasanum, þá þýðir ekkert að versla við Buy.is = þeirra markaðssylla er eingöngu hluti af stærri markaði sem aðrir keppa á.
Ég er alveg sammála því, ég er yfirleitt til í að borga pínu meira og fá vöruna strax, en þegar vara kostar 110þ meira þá get ég alveg beðið í viku :D
Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af reyndeer »

Ok, en það er ekkert svar komið hvernig þjónustan er þarna... any1?

jonorri
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Þri 05. Okt 2010 10:57
Staða: Ótengdur

Re: Hefur einhver verslað við búðina?

Póstur af jonorri »

Verslaði þarna 3 jólagjafir og gekk allt frábærlega fyrir sig. Toppþjónusta, Kári(gaurinn sem er með þetta) er mjög fínn og svarar öllum póstum fljótt og vel.
Myndi hiklaust mæla með þessu við alla. Skemmir ekki fyrir hvað þetta er ódýrt ;)
Svara