Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Allt utan efnis

Höfundur
Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Staða: Ótengdur

Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Jim »

Hvað finnst ykkur? Mér persónulega finnst það rugl að hún hafi verið afleidd. Það var ekkert mál að læra reglurnar, þær voru með þeim einföldustu og sum orð líta einhvernveginn ekki rétt út skrifuð með essi en ekki zetu.
Skjámynd

MatroX
Besserwisser
Póstar: 3496
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af MatroX »

allavega mun klemmi samþykkja þetta. ég er aftur á móti þessu
Intel i7 8700k | Corsair H100i | ASROCK z370 PRO4m | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Nariur »

"z" er fullkomlega gagnslaus

/thread
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Höfundur
Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Jim »

Það var nú samt hálfgert metnaðarleysi að hætta að nota hana. Er viljandi verið að reyna að gera okkur heimskari? Hvað fylgir næst? y og ý?
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Gúrú »

Okkur vantaði ekki zetu í tungumálinu.

Sjá sérstaklega: Hversu sama öllum er að hafa misst hana, fólk hefði ekki hætt ef henni hefði verið þörf. :)
Modus ponens
Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Haxdal »

En ef við værum ekki með Z-u í stafrófinu þá myndi enginn vita hvaða stafur væri síðastur í stafrófinu.
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4270
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af KermitTheFrog »

Haxdal skrifaði:En ef við værum ekki með Z-u í stafrófinu þá myndi enginn vita hvaða stafur væri síðastur í stafrófinu.
Veit ekki alveg með þig kallinn, en ég held að aftasti stafurinn yrði áfram 'ö'

Annars þykir mér zetan pointless. Sætti mig við ypsílonið en zetan hefur engan sess. Hvernig er hún annars öðruvísi?

hallihg
Gúrú
Póstar: 521
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af hallihg »

Jim skrifaði:Það var nú samt hálfgert metnaðarleysi að hætta að nota hana. Er viljandi verið að reyna að gera okkur heimskari? Hvað fylgir næst? y og ý?
Það eru í raun sömu rök til staðar til að afnema y og ý og notuð voru til að afnema Z úr stafrófinu með lögum á sínum tíma, þ.e. að það er ekki munur á framburði á i og y lengur.

http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=828" onclick="window.open(this.href);return false;

Þarna segir að nefnd á vegum þingsins hafi talið það umsvifameira að afnema einnig y og ý og zetu brottfallið því látið duga.

Ég væri andstæður því að fella þessa stafi úr stafrófinu, en ég geti ekki sagt að ég sé eitthvað sérstaklega hlynntur zetunni. Ég hefði örugglega verið andvígur hennar brottfellingu ef ég hefði fæðst á þeim tíma að ég væri vanur henni.

Kjánalegast þykir mér samt þeir sem temja sér að nota hana, þó þeir hafi kannski ekki lært að lesa og skrifa fyrr en hún var horfin úr stafrófinu, þ.e. aðilar sem nota horfin bókstaf. Þeir sem hafa aldur og kláruðu skóla þegar zeta var í fullu gildi hafa gilda afsökun. Aðrir ekki imo.
count von count
Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Eiiki »

Z er töff.
Jim skrifaði:Það var nú samt hálfgert metnaðarleysi að hætta að nota hana. Er viljandi verið að reyna að gera okkur heimskari? Hvað fylgir næst? y og ý?
Sé samt ekki hvernig þú getur flokkað málfræði og heimsku undir sama flokk
Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Nariur »

Mig langar að benda á að "zeta" er ekki íslenskt orð, þar sem stafurinn "z" er ekki íslenskur. Notið íslenska orðið "seta" frekar, eða einfaldlega "z".
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Eiiki »

Nariur skrifaði:Mig langar að benda á að "zeta" er ekki íslenskt orð, þar sem stafurinn "z" er ekki íslenskur. Notið íslenska orðið "seta" frekar, eða einfaldlega "z".
Ertu feministi?
Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846
Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2755
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Staðsetning: Flight level 100
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af zedro »

Well y'all can go F*uk yourzelfz! :mad

Nei segi svona ég fíla zetuna, stafrófið er fínt einsog það er.
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla
Skjámynd

SIKk
Geek
Póstar: 870
Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af SIKk »

double postpost :dontpressthatbutton
Last edited by SIKk on Fim 30. Des 2010 03:22, edited 2 times in total.
Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant
Skjámynd

SIKk
Geek
Póstar: 870
Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af SIKk »

Zedro skrifaði:Well y'all can go F*uk yourzelfz! :mad

Nei segi svona ég fíla zetuna, stafrófið er fínt einsog það er.
fix'd :lol:
Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant
Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4270
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af KermitTheFrog »

Jim skrifaði:Það var nú samt hálfgert metnaðarleysi að hætta að nota hana. Er viljandi verið að reyna að gera okkur heimskari? Hvað fylgir næst? y og ý?
Við erum með fleiri stafi í okkar stafrófi en þeir sem tala enskuna, erum við gáfaðari afþví að við kunnum fleiri stafi?
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Nariur »

Eiiki skrifaði:
Nariur skrifaði:Mig langar að benda á að "zeta" er ekki íslenskt orð, þar sem stafurinn "z" er ekki íslenskur. Notið íslenska orðið "seta" frekar, eða einfaldlega "z".
Ertu feministi?
lol, nei. Það er fátt sem ég hata meira en feminista.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Höfundur
Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Jim »

KermitTheFrog skrifaði:
Haxdal skrifaði:En ef við værum ekki með Z-u í stafrófinu þá myndi enginn vita hvaða stafur væri síðastur í stafrófinu.
Veit ekki alveg með þig kallinn, en ég held að aftasti stafurinn yrði áfram 'ö'

Annars þykir mér zetan pointless. Sætti mig við ypsílonið en zetan hefur engan sess. Hvernig er hún annars öðruvísi?
Þetta er sáraeinfalt. 'z' er skrifuð, þar sem 'd', 't', eða 'ð' fellur niður í framburði. Dæmi: Verzlun (verð-slun), veizla (veit-sla, sbr. að veita), stanza (stand-sa), áherzla (áherð-sla), nízka (níð-ska), þrjózka (þrjót-ska), vizka (vit-ska).
Sama gildir um sagnir, en þó ber þess að geta, að 'z' leysir aðeins eitt 'd'/'t'/'ð', af hólmi, svo sérstök aðgát skal höfð við miðmyndir sagna. Dæmi: Þau hafa setzt (sett (sig)).
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Nariur »

Jim skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
Haxdal skrifaði:En ef við værum ekki með Z-u í stafrófinu þá myndi enginn vita hvaða stafur væri síðastur í stafrófinu.
Veit ekki alveg með þig kallinn, en ég held að aftasti stafurinn yrði áfram 'ö'

Annars þykir mér zetan pointless. Sætti mig við ypsílonið en zetan hefur engan sess. Hvernig er hún annars öðruvísi?
Þetta er sáraeinfalt. 'z' er skrifuð, þar sem 'd', 't', eða 'ð' fellur niður í framburði. Dæmi: Verzlun (verð-slun), veizla (veit-sla, sbr. að veita), stanza (stand-sa), áherzla (áherð-sla), nízka (níð-ska), þrjózka (þrjót-ska), vizka (vit-ska).
Sama gildir um sagnir, en þó ber þess að geta, að 'z' leysir aðeins eitt 'd'/'t'/'ð', af hólmi, svo sérstök aðgát skal höfð við miðmyndir sagna. Dæmi: Þau hafa setzt (sett (sig)).
var
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af rapport »

Nariur skrifaði:
Eiiki skrifaði:
Nariur skrifaði:Mig langar að benda á að "zeta" er ekki íslenskt orð, þar sem stafurinn "z" er ekki íslenskur. Notið íslenska orðið "seta" frekar, eða einfaldlega "z".
Ertu feministi?
lol, nei. Það er fátt sem ég hata meira en feminista.
Segið mér, hvað er slæmt við að vera femínisti?

Ég er bullandi femínisti enda elska ég konur og vil þeim alls hins besta, sérstaklega að þær njóti jafnréttis og jafnra tækifæra á við karlmenn í daglegu lífi.
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Gúrú »

rapport skrifaði:Segið mér, hvað er slæmt við að vera femínisti?
Ég er bullandi femínisti enda elska ég konur og vil þeim alls hins besta, sérstaklega að þær njóti jafnréttis og jafnra tækifæra á við karlmenn í daglegu lífi.
Feminismi í löndum sem hafa ekki lagalegt jafnrétti kvenna er baráttumál jarðarinnar enda rót mikils hluta vandamála á jörðinni.

Feminismi í frjálsum og ríkum löndum þar sem að konur hafa fullkomið frelsi til að athafna sig og lifa er.. það sem að fólk hefur sameinast í að hata.
Modus ponens
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af rapport »

Feminismi í frjálsum og ríkum löndum þar sem að konur hafa fullkomið frelsi til að athafna sig og lifa er.. það sem að fólk hefur sameinast í að hata.
Fáfræði í hnotskurn.

Orsök og afleiðing undirstrikuð í þessari tilvitnun.

Hann gefur sér forsendur og alhæfir í kjölfarið.

Hvernig á að vera hægt að svara svona viskubrunni... Ég einfaldlega neyðist til að bakka úr þessari umræðu með skottið á milli lappana. :shock:
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af GuðjónR »

Zetan er flott :)
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Gúrú »

rapport skrifaði:
Feminismi í frjálsum og ríkum löndum þar sem að konur hafa fullkomið frelsi til að athafna sig og lifa er.. það sem að fólk hefur sameinast í að hata.
Hann gefur sér forsendur og alhæfir í kjölfarið.
Hvernig á að vera hægt að svara svona viskubrunni... Ég einfaldlega neyðist til að bakka úr þessari umræðu með skottið á milli lappana. :shock
Þetta var ótrúleg tilraun til að breyta meiningu setningar. =D>
Modus ponens
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af Klemmi »

Ég legg til að öllum stöfum verði skipt út fyrir Z. Þetta verður mjög einfalt, allt verður skrifað líkt og binary þar sem stór Z verður sama og 1 og lítil z verður sama og 0.
Allt mun líta út eins og svefn.
zzZzZZZZzZZZzZzzzZZzZzzzzZZZzzZzzZZzzZzZzZZzzzzZzZZzzZzz
(skora á ykkur að setja þetta í binary to text converter ;) )
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: Hver er afstaða ykkar til zetu í íslensku máli?

Póstur af bulldog »

mér finnzt að zetan ætti að vera áfram.
Svara