Sambíóin og gremja.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Sambíóin og gremja.
Góðan dag kæru vaktarar.
Ég ætla að bera undir ykkur furðulega viðskiptahætti Sambíóana uppá síðkastið og þá sérstaklega eftir að þeir drógu sig úr samstarfi við midi.is og fóru sína eigin leið og líka eftir opnun kvikmyndahúss í Egilshöll.
Eftir mikla bið fer ég á myndina Tron: Legacy í gær og passa mig á því að kaupa miðana tímanlega og geri mér fyllilega grein fyrir því að ég er að fara á mynd sem er í stafrænni þrívídd. Við erum 5 sem förum saman á þessa tilteknu mynd og svo vill til að ég á 3x 3D gleraugu hér heima og "kannski" í einhverri einfeldni athuga ég gaumgæfilega á allri sambio.is síðunni hvort að 3d gleraugun fylgi ekki og kemst að þeirri niðurstöðu að fyrst að verðið sé 1350kr og síðan er merkt MEÐ 3D þá hljóti að fylgja 3D gleraugu.
Ég fer í bíó og kemst að því að ég verð að borga 700kr fyrir öll þessi 3D gleraugu sem ég átti hvort sem er heima.
Ég einfaldlega krefst endurgreiðslu á þessum heilu 700kr sem ég eyddi í þessi gleraugu þar sem það stendur HVERGI í öllum þeim skrefum sem leiða að miðakaupunum að ég þurfi að kaupa þau sér og til að auka ánægjuna enn meir þá krefjast þeir þess að þú bíðir í langri röð eftir þessum gleraugum sem tekur allan ávinningin úr því að kaupa þessa miða á netinu.
Ekki er nóg með það þá hafa þeir hækkað miðaverð um 100kr sem maður myndi halda útfrá rökfræðinni að þarna væru þessi gleraugu sem fylgdu og plús það þá er engin afsláttur af því að eyða sínu eigin bleki og kaupa miðana á netinu.
Hvað finnst ykkur um þetta? Hvað segja neytendalögin um það að þú sért þvingaður til að borga aukalega án þess að maður sé látin vita?

- Viðhengi
-
- 1.jpg (54.69 KiB) Skoðað 2217 sinnum
-
- 2.jpg (136.96 KiB) Skoðað 2223 sinnum
-
- 3.jpg (104.72 KiB) Skoðað 2222 sinnum
-
- 4.jpg (112.81 KiB) Skoðað 2225 sinnum
-
- Untitled-1.jpg (207.05 KiB) Skoðað 2226 sinnum
-
- 6.jpg (67.01 KiB) Skoðað 2221 sinnum
-
- 7.jpg (34.24 KiB) Skoðað 2223 sinnum
-
- 8.jpg (20.04 KiB) Skoðað 2223 sinnum
Re: Sambíóin og gremja.
Já þetta er asnalegt hjá þeim, eflaust gert til að "fela" verðið, láta þetta virka ódýrara en það er.
Re: Sambíóin og gremja.
Ég er strax farinn að kvíða fyrir Tron ferð einmitt út af einhverju svona rugli sem kemur alltaf upp.
Re: Sambíóin og gremja.
Neytandi.is - Greiðslur og viðbótargreiðslur
Gætir prófað að leita á þessari síðu varðandi rétt þinn.
Gætir prófað að leita á þessari síðu varðandi rétt þinn.
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Hvar í andskotanum er þessi sundurliðaða kvittun?
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
-
- Vaktari
- Póstar: 2599
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Gleraugun voru alltaf ókeypis gegn því að maður skilaði þeim aftur. En svo er til fólk eins og þú sem tekur þau með sér heim.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1946
- Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
- Staðsetning: C:\Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Hvaða ásakanir eru þetta.Hvað veist þú um að hann hefur ekki keypt gleraugun?SolidFeather skrifaði:Gleraugun voru alltaf ókeypis gegn því að maður skilaði þeim aftur. En svo er til fólk eins og þú sem tekur þau með sér heim.
Alltaf þessi leiðinlegu comment frá þér.
-
- Vaktari
- Póstar: 2599
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Ef að hann hefur farið í 3D bíó og þurft að kaupa 3D gleraugu áður þá hefði hann líklegast kvartað fyrr.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Ég skil ekki alveg þennan dónaskap en þessi gleraugu voru keypt á sínum tíma í gegnum midi.is fyrir smárabíó og geymd til að spara okkur krónurnar næst þegar farið væri í 3D bíó. Þráðurinn er um það hvort það sé ekki rétt hjá fyrirtækjum að láta fólk vita af því að það þurfi að koma með sín eigin gleraugu.SolidFeather skrifaði:Gleraugun voru alltaf ókeypis gegn því að maður skilaði þeim aftur. En svo er til fólk eins og þú sem tekur þau með sér heim.
Svo er önnur pæling hvernig á maður að vita hvort sín gleraugu virki í þessu ákveðna bíói? t.d er Háskólabíó með allt annað kerfi heldur en Sambíóin
-
- Vaktari
- Póstar: 2599
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Pandemic skrifaði:Ég skil ekki alveg þennan dónaskap en þessi gleraugu voru keypt á sínum tíma í gegnum midi.is fyrir smárabíó og geymd til að spara okkur krónurnar næst þegar farið væri í 3D bíó. Þráðurinn er um það hvort það sé ekki rétt hjá fyrirtækjum að láta fólk vita af því að það þurfi að koma með sín eigin gleraugu.SolidFeather skrifaði:Gleraugun voru alltaf ókeypis gegn því að maður skilaði þeim aftur. En svo er til fólk eins og þú sem tekur þau með sér heim.
Nú skil ég ekki alveg. Seinast þegar ég fór í 3D bíó borgaði ég eitthvað um 1250 fyrir miðann (eitthvað svoleiðis) og inní því verði fékk maður gleraugu sem maður átti svo að skila eftir myndina.
Keyptir þú semsagt gleraugu af midi.is til þess að spara þér krónur næst? Hvaða krónur áttirðu að spara þegar þú gekkst útfrá því að gleraugun fylgdu með til að byrja með?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Þú hefur greinilega verið að misskilja tilgangin í að kaupa gleraugun sér. Þú kaupir gleraugun til að geta átt þau og afhakað þann möguleika við miðasöluna á netinu alveg eins og þú gerir í hini venjulegu miðasölu þá er spurt hvort þú viljir gleraugu eða ekki og ef þú vilt þau þá borgaru 150kr.SolidFeather skrifaði:Pandemic skrifaði:Ég skil ekki alveg þennan dónaskap en þessi gleraugu voru keypt á sínum tíma í gegnum midi.is fyrir smárabíó og geymd til að spara okkur krónurnar næst þegar farið væri í 3D bíó. Þráðurinn er um það hvort það sé ekki rétt hjá fyrirtækjum að láta fólk vita af því að það þurfi að koma með sín eigin gleraugu.SolidFeather skrifaði:Gleraugun voru alltaf ókeypis gegn því að maður skilaði þeim aftur. En svo er til fólk eins og þú sem tekur þau með sér heim.
Nú skil ég ekki alveg. Seinast þegar ég fór í 3D bíó borgaði ég eitthvað um 1250 fyrir miðann (eitthvað svoleiðis) og inní því verði fékk maður gleraugu sem maður átti svo að skila eftir myndina.
Keyptir þú semsagt gleraugu af midi.is til þess að spara þér krónur næst? Hvaða krónur áttirðu að spara þegar þú gekkst útfrá því að gleraugun fylgdu með til að byrja með?
Svo þegar maður á sjálf gleraugun þá getur maður sparað sér 150kr í bíó næst með því að geyma þau sem maður keypti síðast. Þetta er möguleiki hjá öllum hinum bíóunum og mér fannst eins og það væri inn í verðinu hjá Sambíóunum og að möguleikin til að sleppa því að taka gleraugun væri ekki til staðar. En auðvitað hugsar maður að gleraugun fylgi þegar miðaverðið er orðið svona hátt og manni er hvergi sagt að það þurfi að kaupa þau sér.
Re: Sambíóin og gremja.
Hvernig gleraugu fékkstu svo fyrir þennan 700 kall ?
Bara svona venjuleg RealD eða Dolby3D gleraugu eins og í Háskólabíó ?
Bara svona venjuleg RealD eða Dolby3D gleraugu eins og í Háskólabíó ?
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Venjuleg RealDOrri skrifaði:Hvernig gleraugu fékkstu svo fyrir þennan 700 kall ?
Bara svona venjuleg RealD eða Dolby3D gleraugu eins og í Háskólabíó ?
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Ég meina sko frá Sambíóunum, þar sem maður sér HVAÐ maður var að borga fyrir.intenz skrifaði:Hvar í andskotanum er þessi sundurliðaða kvittun?
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Ég er ekki frá því að eftir hrun hafi felugjöld og skíta markaðssetningar færst í aukana.
Re: Sambíóin og gremja.
Ég er nú nokkuð viss um að þetta sé ólöglegt það kemur hvergi fram að þú þurfir 3D gleraugu á myndina
það kemur hvergi fram að þau kosti sérstaklega þá myndi maður ætla að þau séu innifalin í miðaverði.
Ef þú ert ekki þegar búinn að því þá skaltu senda þetta til neytendasamtakana þetta verða þeir að laga
ég býst ekki við að þú hafir neitt upp úr því nema þá það að láta þá ekki komast upp með að gera þetta við fleira fólk.
Þú hefur sennilega hrist eitthvað upp í þeim núna kemur fram þessi testi
"(Gleraugu ekki innifalin þau má versla í sjoppu) "

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Ég er svosem ekkert að naga á mér handabakið yfir þessum 700kr en finnst þetta bara mjög óheiðarlegt og vona að breyting verði þarna á. Svo er efni í annan þráð hverskonar okur þessi sjoppa er hjá þeim verðið hækkað úr öllu valdi.lukkuláki skrifaði:Ég er nú nokkuð viss um að þetta sé ólöglegt það kemur hvergi fram að þú þurfir 3D gleraugu á myndina
það kemur hvergi fram að þau kosti sérstaklega þá myndi maður ætla að þau séu innifalin í miðaverði.
Ef þú ert ekki þegar búinn að því þá skaltu senda þetta til neytendasamtakana þetta verða þeir að laga
ég býst ekki við að þú hafir neitt upp úr því nema þá það að láta þá ekki komast upp með að gera þetta við fleira fólk.
Þú hefur sennilega hrist eitthvað upp í þeim núna kemur fram þessi testi
"(Gleraugu ekki innifalin þau má versla í sjoppu) "
Re: Sambíóin og gremja.
http://sambio.is/Websales/Movie/1290/#p ... %2F1916%2F" onclick="window.open(this.href);return false;
Þarna kemur nokkuð skýrt fram að gleraugu fylgja ekki...
Þarna kemur nokkuð skýrt fram að gleraugu fylgja ekki...
Ryzen 5 3600 _ X470 Aorus Gaming _ 2070 Super _ 16 GB 3200MHz _ 32" 1440p Lenovo
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Greinilega búið að breyta þessu núna, ef þú skoðar myndirnar í upphafspóstinum þá stóð þetta ekki.Frussi skrifaði:http://sambio.is/Websales/Movie/1290/#p ... %2F1916%2F
Þarna kemur nokkuð skýrt fram að gleraugu fylgja ekki...
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
- Græningi
- Póstar: 27
- Skráði sig: Fös 11. Apr 2008 19:46
- Staða: Ótengdur
Re: Sambíóin og gremja.
Sælir
ég starfa hjá Sambíóunum og vill endilega koma með eftirfarandi punkta.
Þetta var upprunalega sett inn með þessum hætti þar sem þrívíddarverð er ekki sama og verð á tvívíddarmyndir þar sem stúdíóin sem framleiða myndirnar krefjast hærra miðaverðs vegna aukins framleiðslukostnaðar, það var ekkert við þetta með ráðum gert til að vera með villandi verð eða til að blekkja viðskiptavini okkar, heldur mætti frekar segja að ekki hafi verið nægilega hugsað út í orðalagið.
Ég get tekið undir það að nafnið almennt miðaverð með 3D geti valdið misskilningi enda fengum við ábendingu um það og því hefur verið breytt í "almennt miðaverð í 3D" ásamt því sem nú er skýrt tekið fram fyrir aftan verðflokkana að gleraugu fylgi ekki með.
gleraugun má annaðhvort taka með sér eða kaupa í sjoppu bíósins á kostnaðarverði.
Varðandi sundurliðuðu kvittunina yfir hvað var keypt þá er hún fyrir ofan hjá þeim sem byrjaði með þennan þráð og kallast 7.jpg.
Vonandi skýrir þetta málið og takk fyrir ábendingarnar.

þetta kann ég að metaHörður Valgarðsson skrifaði:Sælir
ég starfa hjá Sambíóunum og ...r.
Kubbur.Digital
Re: Sambíóin og gremja.
x2, flott að sjá svonakubbur skrifaði:þetta kann ég að metaHörður Valgarðsson skrifaði:Sælir
ég starfa hjá Sambíóunum og ...r.
i7 2600K @ 4,5 GHz 1,3v | NH-D14 | Asus P8P67 Pro | 8GB 1600MHz | Asus GTX980 | Asus Xonar DX & Yulong U100 DAC | Samsung 840 PRO 256 GB | 10 TB HDDs| Seasonic SS-760XP Platinum | Fractal Design Define R4 | Sennheiser HD595 & Grado SR325e | Logitech G710 & G502 | BenQ XL2420T | Microsoft Surface Pro 3 i5 | LG G3 |
Re: Sambíóin og gremja.
x3. Alltaf gaman að sjá fyrirtæki taka þátt í umræðunni. Fyrirtæki sem gera það, bæði hér á Vaktinni, Twitter,Facebook og bara á netinu almennt fá plús í kladdann hjá mér.Hvati skrifaði:x2, flott að sjá svonakubbur skrifaði:þetta kann ég að metaHörður Valgarðsson skrifaði:Sælir
ég starfa hjá Sambíóunum og ...r.
Það er eitt að hlusta en að taka þátt í umræðunni er annað og meira, vel gert Sambíó.
Re: Sambíóin og gremja.
Frábært en alltof sjaldgæft þegar fyrirtæki bregðast svona við, bravó SAM
Re: Sambíóin og gremja.
Það væri samt áhugavert til að fá þennan Sambíóarmann til að útskýra hækkaða verðlagningu þeirra á gosi og sælgæti, hvort þeir geri sér grein fyrir því að þeir eru í samkeppni og hvort þeim sé ljóst að stærðir þeirra á gosi og poppkorni, sem eru minni en hjá samkeppnisaðilanum, kosta samt töluvert meira en stærri skammtar í öðrum kvikmyndahúsum. Eru Sambíóin með svona einstaklega slæman samning við Vífilfell, eða er salan á 3d gleraugunum ekki að skila nóg í kassann og markið því sett á heimsmet í álagningu á sælgæti, vélargosi og poppkorni? Kannski smámunalegar spurningar í samanburði við þessa undarlegu viðskiptahætti við miðakaupin, en þess verðlagning í sjoppunum er útúr kortinu.
count von count