Nýr diskur -> Afrita ALLT á milli .... hmmm

Svara
Skjámynd

Höfundur
hagur
Vaktari
Póstar: 2917
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Nýr diskur -> Afrita ALLT á milli .... hmmm

Póstur af hagur »

Sælir,

Okey, first things first .... ég hafði ekki hugmynd um hvar ég ætti að setja þennan þráð, en fannst "uppfærslur"-spjallið ekki svo galið - eflaust einhverjir hérna sem hafa gert þetta áður.

Eins og kom fram hérna í öðrum nýlegum þræði, þá er ég að fara að versla 160GB Samsung disk í fína serverinn minn heima.

Hann er tiltölulega nýuppsettur og fínn - alveg eins og ég vill hafa hann.
Mig hryllir við tilhugsuninni að skella nýja disknum í hann og fara svo að installa og configura allt software uppá nýtt.

Mig dauðlangar að taka bara það sem er á henni núna á 20gb ibm disknum og afrita bara yfir á nýja diskinn þannig að ég geti svo bara bootað upp af honum. Ég hafði hugsað mér að taka þá gamla diskinn og þann nýja og skella þeim báðum í "hina" tölvuna mína og nota hana til að afrita á milli diskanna.

Þá er spurningin .. hvaða forrit er best til að gera þetta, þannig að ALLAR skrár, boot sectorar og hvað eina, bara gjörsamlega ALLT kóperist yfir á þann nýja?

Ég notaði soldið mikið Norton Ghost í vinnunni fyrir nokkrum árum til að gera svipaða hluti, en það er DOS-based og ekki alveg það nýtískulegasta.

Með hverju mælið þið (fyrir utan að fara að setja allt upp á nýja diskinn uppá nýtt) ?

BTW ... það er eiginlega ekki option að hafa gamla diskinn áfram í vélinni sem system disk og nota þann nýja sem data disk, vegna þess að ég er að reyna að losna við hátíðnisuðið í IBM disknum gamla, auk þess sem það er ekkert rosalega mikið pláss í þessum kassa fyrir 2 diska :S (Dell desktop, ekki turn).

Attila
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Fös 05. Des 2003 21:00
Staða: Ótengdur

Póstur af Attila »

Norton Ghost - nýja útgáfan er þannig að þú þarft ekki að nota floppy - getur gert stillingarnar í windows svo restartar hún sér og ghostar á milli diskana - tekur gamla draslið í burtu og ræsir upp af nýja diskinum .
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pandemic »

Það er forrit sem fylgir windows xp sem heitir FILE and setting transfer wizard
Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1949
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af elv »

Seagate er með tól til að gera þetta á síðunni sinni, virkaði fínt þegar ég uppfærði diskanna mína

hirrons
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Mán 10. Nóv 2003 22:11
Staðsetning: Reykjavík (í besta falli)
Staða: Ótengdur

Póstur af hirrons »

Maxtor líka, svínvirkar.
Undirskrift? Undirskrift! Aaaarrgghh, undirskrift.
Skjámynd

Höfundur
hagur
Vaktari
Póstar: 2917
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af hagur »

Þakka ykkur kærlega fyrir þetta, ég ætla að kíkja á þessi tól sem Seagate og Maxtor bjóða uppá.
Svara