Ný á teikniborðinu

Svara
Skjámynd

Höfundur
Hafst1
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Lau 16. Okt 2010 21:11
Staða: Ótengdur

Ný á teikniborðinu

Póstur af Hafst1 »

Nú held ég að það sé komið að því. Sú gamla orðin 10 ára og snýst varla hálfan snúning. ](*,)
Þar sem ég hef áhuga á ljósmyndum og nota Lightroom fyrir utanumhald á þeim og á eitthvað af minidv spólum sem eiga eftir að komast á harða diskinn hjá mér langar mig að hafa aðgengið þægilegt þegar ég tengi þessar græjur við. Geri mér grein fyrir að þessi gæti slagað í 300 þús.
Hef hugsað mér að keyra WIN7 64bit á þessu. Annars er notkun mjög almenn við netrölt og Office skjöl.

Kassi: Ég hef ekki séð neitt betra en HafX í þeim málum. Bæði með USB2, USB3 (future) og Firewire í þægilegu aðgengi. Það sem ég veit hinsvegar ekki - er þetta hljóðlátt? Það er eins og sumir kassar magni upp hávaðann í viftunum. :uhh1

Móðurborð: Asus P6X58D-E eða Gigabyte GA-X58A-UD3R Það er spurningin? Þarf í rauninni ekki RAID þar sem gögnin fara yfir á Synology NAS realtime.

Gjörvi: Þar sem ég er lélegur í að endurnýja þá hafði ég hugsað mér að setja i7 950 í relluna.

Minni: 12 GB. Spurning með Corsair HX3X12G1600C9 XMS3 12 GB PC3-12800 1600Mhz 240-pin Triple Channel Core i7 DDR3

Diskur: OCZ Technology 60 GB Vertex 2 Series SATA II 2.5-Inch Solid State Drive (SSD) OCZSSD22VTXE60G fyrir stýrikerfið. Svo þarf ég að finna mér einhvern sæmilegan 1TB 7200 snúninga fyrir rest.

Skjákort: Þar sem ég er ekkert í leikjum þá þarf ég engan heimsmeistara hér :-k Er frekar að hugsa um eitthvað hljóðlátt. Er með 19" IBM TFT skjá 1280x1024. Er þetta ekki nóg? Asus nVidia GeForce GT210 589MHz 512 MB DDR2 DVI/HDMI PCIE 2.0 Video Card EN210 SILENT/DI/512MD2(LP)

Kæling: Corsair Cooling Hydro Series H50 ? Þarf ég að kaupa fleiri viftur eða fylgir nóg með Haf X?

Spennugjafi: Það er nú það - hvað þarf ég öflugan hér :-k

Ég mun kaupa eitthvað af þessu í gegnum Amazon... en það sem er óhentugt að flytja í handfarangri (HafX) og aflgjafinn verður keyptur hér heima.
Hafst1
_____________________________________
Pentium 4 tryllir... mann.
Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1519
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Staðsetning: Á sporbaug sólar
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af Benzmann »

mæli með því að þú fáir þér 1tb seagate disk sem auka disk,

svo fá þér kanski 600-650W PSU í vélina, gæti verið smá Overkill, en samt hentugt fyrir framtíðina ef þú færð þér stærra skjákort í vélina
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2257
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Staðsetning: 109 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af Gunnar »

HAFX er ekki hljóðlátur turn. hann er ekki gerður til að halda hljóði frá.
http://buy.is/product.php?id_product=551 aftur á móti er hannaður til að vera hljóðlátur.
þar sem flest allir mæla alltaf með corsair þá ætla ég bara að gera það sama.
vandaður 650W aflgjafi ætti að vera nóg http://buy.is/product.php?id_product=1068
en ef þú ætlar að uppfæra hana í leikjatölvu einhverntímann seinna þá er 850W hentugur í það http://buy.is/product.php?id_product=891
Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1558
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af Halli25 »

Coolermaster Sileo er einnig mjög hljóðlátur kassi http://tl.is/vara/19489
Ef þú vilt ekki bíða í óratíma eftir Corsair aflgjafa frá Buy.is þá er TÖlvulistinn með þá á sambærilegu verði.
Starfsmaður @ IOD
Skjámynd

vesley
Kóngur
Póstar: 4139
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af vesley »

faraldur skrifaði:Coolermaster Sileo er einnig mjög hljóðlátur kassi http://tl.is/vara/19489
Ef þú vilt ekki bíða í óratíma eftir Corsair aflgjafa frá Buy.is þá er TÖlvulistinn með þá á sambærilegu verði.



bara til að leiðrétta aðeins þá er engin bið eftir þessum aflgjöfum. Þessi er til á lager.

Og antec p183 er besti kassi sem þú getur fengið ef þú vilt hafa hann hljóðlátann.


Sjálfur mæli ég með aðeins kraftmeira skjákorti en þessu sem þú valdir og annars er þetta nú bara ágætt hjá þér.
massabon.is
Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3105
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af Frost »

vesley skrifaði:
faraldur skrifaði:Coolermaster Sileo er einnig mjög hljóðlátur kassi http://tl.is/vara/19489
Ef þú vilt ekki bíða í óratíma eftir Corsair aflgjafa frá Buy.is þá er TÖlvulistinn með þá á sambærilegu verði.



bara til að leiðrétta aðeins þá er engin bið eftir þessum aflgjöfum. Þessi er til á lager.

Og antec p183 er besti kassi sem þú getur fengið ef þú vilt hafa hann hljóðlátann.


Sjálfur mæli ég með aðeins kraftmeira skjákorti en þessu sem þú valdir og annars er þetta nú bara ágætt hjá þér.


Ætti ekki eitthvað GTX 2xx kort að vera nóg fyrir hann?
Tölva, 2 skjáir, Varmilo lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól
Skjámynd

vesley
Kóngur
Póstar: 4139
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af vesley »

Mæli allavega með að hoppa eitt skref upp og taka gt220.

Þar sem þú ert nú að tala um ljósmyndun.
massabon.is
Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3065
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af beatmaster »

Borgaðu minni pening og fáðu meira afl með því að taka þetta skjákort.
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
Skjámynd

Höfundur
Hafst1
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Lau 16. Okt 2010 21:11
Staða: Ótengdur

Re: Ný á teikniborðinu

Póstur af Hafst1 »

Takk fyrir svörin.
beatmaster skrifaði:Borgaðu minni pening og fáðu meira afl með því að taka þetta skjákort.

Ég held ég fari eftir þínum ráðleggingum Beatmaster. Flott að það er viftulaust.

Hafst1 skrifaði:
Móðurborð: Asus P6X58D-E eða Gigabyte GA-X58A-UD3R Það er spurningin? Þarf í rauninni ekki RAID þar sem gögnin fara yfir á Synology NAS realtime.


Hvað með þetta? Þekkið þið muninn á þessum borðum?
Hafst1
_____________________________________
Pentium 4 tryllir... mann.
Svara