Uppsetning á gervihnetti

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
sunna22
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Mið 07. Apr 2010 17:03
Staða: Ótengdur

Uppsetning á gervihnetti

Póstur af sunna22 »

Halló ég var að spá.Þið sema hafið sett upp gervihnattadisk.Hvað kostar að fá mann heim.Til að setja hann upp teingja og stilla.Nú þarf ég ekki lyftu(þvi þetta fer á svalirnar)Og hvað tekur þetta langan tíma.Frá þvi að hann kemur og þangað til
að maður gétur farið að horfa. :D Eins og ég segi verða og timi.Væri æði ef einhver kæmi með reynslu á þessu.Takk fyrir O:)
BÖNNUÐ GÆÐI BRAGÐAST BEST
Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 539
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Staða: Ótengdur

Re: Uppsetning á gervihnetti

Póstur af roadwarrior »

Himm á titilinn ekki að vera "uppsetning á gervihnattadiski"? :catgotmyballs
Myndi giska á innan við klst ef það er ekki mikið mál að koma diskinum fyrir og það fer eftir því hvaða hnött/kerfi þú ætlar að horfa á. Held að þú ættir að sjá eitthvað strax.
Hringdu í þá hjá Eico. Þeir eru bestir í þessu. Myndi giska á klst í vinnu en eins og ég seigi það fer eftir því hvað mikla vinnu hann þarf að leggja í það að festa honum.
Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3298
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Staða: Ótengdur

Re: Uppsetning á gervihnetti

Póstur af mercury »

ekkert mál að festa upp svona disk. bara einhver 4stk múrboltar. svo þarf hann bara að tengja diskinn við einhvern signal mæli til að stilla diskinn af þannig að hann nái nógu góðu sambandivið tunglið. tekur fagmann enga stund. :beer
i9 10900k - asus maximus formula - RTX 3090 asus rog strix oc - TridentZ 32gb ddr4 4000 cl17 - 2tb 970 evo plus - phanteks enthoo 719 - be quiet dp 1200w - Full custom loop 2x360 2x480 2xd5 - Samsung odyssey G7

axyne
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1695
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Uppsetning á gervihnetti

Póstur af axyne »

þegar ég var að vinna við þetta þá fór svona klukkutími og hálfur í þetta. Miðað þá við að setja saman diskinn, staðsetning ekki vandamál og lagnaleiðir ekki mikið vandamál.
Erfiðar eða eingar lagnaleiðir, festing á klæðningu, sérstök staðsetning eða sérstakur frágangur á myndlykli við sjónvarp getur auðveldlega aukið tímann margfalt.

Ef svalirnar þínar snúa Suður Suðaustur, staðsetning ekki vandamál og henda köpplum í gegnum glugga þá getur vanur maður verið hálftíma en ég býst ekki við því að neinn rukki fyrir minna en 1,5 tíma svo getur alveg búist við reikning uppá um 15 þús.
Electronic and Computer Engineer
Svara